Dæmdur hasssmyglari varð andlit Grænlandsáforma Trumps

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti fagn­aði í gær græn­lensk­um manni á sam­fé­lags­miðl­um sem ósk­aði þess að Banda­rík­in legðu land­ið und­ir sig. Mað­ur­inn á lang­an glæpa­fer­il að baki og var með­al ann­ars dæmd­ur í stóru hasss­mygl­máli þar í landi ár­ið 2019. Hann var eft­ir­lýst­ur tíu ár­um áð­ur eft­ir að hann slapp úr fang­elsi.

Dæmdur hasssmyglari varð andlit Grænlandsáforma Trumps

Ef þú gætir sagt hvað sem er við Trump, hvað myndir þú segja? 

Kauptu Grænland.

Svona byrjar myndband með hinum grænlenska Timmy Zeeb, sem stuðningsfólk Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hefur deilt á samfélagsmiðlum, rétt eins og forsetinn sjálfur gerði á samfélagsmiðli sínum Truth Social. 

„Grænland er ótrúlegur staður og fólkið þar mun græða virkilega mikið á því ef, og þegar, landið verður hluti af okkar þjóð. Við munum vernda það frá mjög grimmum heimi. GERUM GRÆNLAND GEGGJAÐ AFTUR!“ skrifaði forsetinn með myndbandinu.

Sonur Trumps, Donald Trump Jr., heimsótti Grænland á dögunum og vakti það mikla athygli vegna yfirlýsinga Trumps um að honum hugnist að ná undir sig Grænlandi.

Sakaferill Zeebs vekur athygli

Deilingar Trumps og stuðningsfólks hans á myndbandinu af Zeeb hafa orðið fréttamatur danskra og grænlenskra fjölmiðla af þeim sökum að Zeeb á langan sakaferil að baki. Hann var meðal annars dæmdur í fjögurra ára fangelsi í einu stærsta hassmáli Grænlands árið 2019 og var talinn lykilmaður í því máli.

Þegar hann sat í fangelsi 10 árum áður þurfti að lýsa eftir honum því honum hafði tekist að flýja úr fangelsinu, samkvæmt grænlenska miðlinum Sermitsiaq sem segir Zeeb þekktan fyrir hættulega glæpi.

Þegar danska ríkisútvarpið hafði samband við Zeeb í gær og óskaði eftir viðtali sagðist hann ekki hafa tíma í það. Í skriflegum skilaboðum sagðist hann hafa hitt fólk Trumps fyrir tilviljun og að fortíð hans á glæpabrautinni eigi ekki að draga úr hæfi hans til þess að hafa skoðun á mögulegri yfirtöku Bandaríkjanna á landinu. 

„Fjandinn sjálfur, nei. Allir eiga rétt á sínum skoðunum,“ skrifaði Zeeb og tók fram að hann hefði ekki fengið neitt greitt fyrir þátttöku sína í myndbandinu.

Í því segir Zeeb Dani misnota sér Grænlendinga og auðlindir þeirra. Því hugnist honum hugmyndir um sameiningu við Bandaríkin vel.

„Kauptu okkur! Kauptu Grænland.“ Við viljum ekki vera nýlenduríki Dana lengur,“ segir Zeeb, með Trump derhúfu á höfðinu.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kolbrun Þorkelsdottir skrifaði
    Gott væri að sjá samanburð á velferðarkerfi beggja landa, þ e sjúkratryggingar, fæðingarorlof, atvinnuleysisbætur, ellilífeyrir o S fv.
    0
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Hér sérðu aftur hið sanna andlit 'maga'. Ég skammast mín fyrir að vera bandarísk núna.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mikilvægi hvíldar vill oft gleymast
3
Viðtal

Mik­il­vægi hvíld­ar vill oft gleym­ast

Hvíld er ekki lúx­us held­ur líf­fræði­leg nauð­syn, seg­ir Bene­dikt Jó­hanns­son, sér­fræð­ing­ur í klín­ískri sál­fræði. Svefn og hvíld séu ein af grunnstoð­um góðr­ar heilsu og að lík­ams­klukk­an kalli á hvíld yf­ir dag­inn. Rann­sókn­ir sýni að hvíld skerpi ein­beit­ingu, minni og starfs­þrek. Bene­dikt tel­ur að vafa­samt hafi ver­ið að af­leggja kaffi­tíma á vinnu­stöð­um, því starfs­fólk­ið þurfi eft­ir sem áð­ur að kúpla að­eins frá vinnu og end­ur­næra sig.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Í minningu afastráksins
3
Viðtal

Í minn­ingu afastráks­ins

Gunn­ar Rand­vers­son starf­aði í ára­tugi sem tón­list­ar­kenn­ari, hef­ur skrif­að ljóð og smá­sagna­safn. Áföll­in hafa mót­að líf hans. Ell­efu ára gam­all horfði hann á föð­ur sinn deyja, 21 árs missti hann móð­ur sína og fyr­ir þrem­ur ár­um lést fjög­urra ára gam­all dótt­ur­son­ur hans. Í ljóða­bók­inni Hvernig er sökn­uð­ur á lit­inn? eru ljóð skrif­uð í minn­ingu litla drengs­ins. Eft­ir frá­fall hans leit­aði Gunn­ar í kirkj­una.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
2
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu