Stríðsleyfi Stalíns: Af hverju eru tvær Kóreur til?

Kóreu­ríkin eru í frétt­unum. Norður-Kórea sendir her­menn í Úkra­ínu­stríðið, Suður-Kórea er í greipum póli­tísks ofviðris. En hver er saga ríkj­anna?

Stríðsleyfi Stalíns: Af hverju eru tvær Kóreur til?
Ung stúlka í Kóreu reynir að koma litla bróður sínum undan skrið­drekum og stríði. Alltaf er alþýðan fórn­ar­lambið þegar vald­sjúkir menn veg­ast á.

Kóreu­ríkin tvö hafa verið í sviðs­ljós­inu und­an­farið. Norður-kóreskir her­menn eru orðnir fall­byssu­fóður á vegum Rússa á víg­stöðv­unum í Kúrsk en það furðu­lega upp­á­tæki for­seta Suður-Kóreu að skella á skamm­vinnum her­lögum hefur hins vegar hleypt öllu upp í loft í syðri hlut­anum.

Því er nú rétt að rifja upp í stuttu máli af hverju Kóreu­ríkin eru tvö og sömu­leiðis sögu þeirra fyrsta kastið.

Athygl­is­vert er að kóresk tunga er alls óskyld bæði kín­verskum tungu­málum og japönsku. Bæði það og gena­rann­sóknir hafa gefið til kynna að Kóreu­menn hafi verið orðnir sér­stök þjóð, aðskilin erfða­fræði­lega og mál­fræði­lega frá helstu nágrönnum, fyrir allt að 15 þús­und árum.

Kvalist undir japanskri stjórn

Nokkru fyrir upp­haf tíma­tals okkar var háþróuð menn­ing risin á Kóreu­skaga og hvert ríkið af öðru. Stundum voru þau fleiri en eitt í senn og börð­ust inn­byrðis, stundum fóru þau með hern­aði á hendur nágrönnum sínum, einkum í Man­sjúríu, en ella þurftu þau að verj­ast ásælni Kínverja og/eða Japana.

Sú saga öll verður ekki rakin hér en við lok 14. aldar var komið á legg í Kóreu öfl­ugt sam­einað ríki sem nefnt hefur verið Joseon. Næstu ald­irnar hélt Joseon-ríkið velli en skömmu fyrir alda­mótin 1900 voru Japanir farnir að seil­ast þar mjög til valda. Um þær mundir var mik­ill völlur á Japönum og þar var hafin mikil iðn- og hern­að­ar­væð­ing á vest­ræna vísu. Gátu Kóreu­menn ekki rönd við reist og 1910 inn­lim­uðu Japanir í raun skag­ann allan í ríki sitt.

Nú voru Japanir um skeið herrar Kóreu og er óhætt að segja að Kóreu­menn hafi unað illa hag sínum. Þeir máttu þola mik­inn yfir­gang, grimmd og arð­rán í eigin landi. Allar til­raunir til and­ófs voru barðar niður af mik­illi hörku.

38. breiddarbaugur

Árið 1945 hrundi veldi Japana hins vegar þegar þeir biðu ósigur fyrir Banda­ríkja­mönnum í síð­ari heims­styrj­öld­inni. Þá ákváðu Banda­menn að banda­rískar her­sveitir skyldu her­taka Kóreu­skag­ann norður að 38. breidd­ar­baug en sov­éskar her­sveitir tækju svæðið þar norður af.

Með tíð og tíma skyldu Kóreu­menn sjálfir svo ákveða stjórn­ar­far sitt og fram­tíð­ar­skipan mála þótt ekki væri kveðið á um smá­at­riði í því sam­bandi.

Tekið skal fram að ekk­ert sér­stakt réði því að miðað var við 38. breidd­ar­baug annað en að hann skipti skag­anum nokkurn veg­inn í tvennt.

Fram að 1945 hafði sem sé ekki verið neinn menn­ing­ar­legur, sögu­legur eða félags­legur munur á Kóreu­mönnum eftir því hvort þeir bjuggu í norðr­inu eða suðr­inu.

Nú er það svo að strax og heims­styrj­öld­inni lauk hófst því­lík tog­streita milli sig­ur­vegar­anna, einkum Banda­ríkj­anna og Sov­ét­ríkj­anna, að fljót­lega var farið að tala um „kalda stríðið“ millum þeirra. Og nú vildi hvor­ugur aðili gefa hinum færi á sínum parti Kóreu­skag­ans. Fór svo að árið 1948 stofn­uðu Sov­ét­menn svo­nefnt alþýðu­lýð­veldi í norð­ur­hlut­anum en Banda­ríkja­menn lýð­veldið Kóreu í syðri hlut­anum.

Fanturinn Syngman Rhee

Yfir þessi nýju ríki settu stór­veldin sína menn. Þjóð­ern­is­sinn­aður stjórn­mála­maður var settur yfir Suður-Kóreu, Syngman Rhee, var hann kall­aður á Vest­ur­löndum, en for­seti Norður-Kóreu varð Kim Il-sung.

Syngman Rheevar mennt­aður í Banda­ríkj­unum og var á móti komm­ún­istum. Það dugði til að Truman Banda­ríkja­for­seti gerði hann að ráða­manni Suður-Kóreu.

Hófst nú mikil per­sónu­dýrkun á Kim í norðr­inu og látið var í veðri vaka að hann hefði stýrt öfl­ugri and­spyrnu­hreyf­ingu gegn Japönum í heims­styrj­öld­inni en öll sú hetju­saga mun þó hafa verið mjög ýkt — væg­ast sagt.

Syngman Rhee var ekki fínni pappír en Kim. Hann hafði að vísu verið á sinn hátt ötull bar­áttu­maður fyrir frelsun Kóreu undan Japan en þegar hann var kom­inn til valda í Suður-Kóreu var hann ekki lengi að sýna og sanna að hann var fyrst og fremst stjórn­lyndur fantur.

Til harðra mót­mæla og upp­þota kom gegn honum strax 1948 en hann bældi það niður með gríð­ar­legri hörku og munu tug­þús­undir hafa látið lífið.

Banda­ríkja­menn létu sér það lynda því þótt Syngman Rhee væri skít­hæll var hann klár­lega „þeirra skít­hæll“ eins og gjarnan var kom­ist að orði í kalda stríð­inu. Og hann hafði svarið þess dýran eið að vernda Suður-Kóreu fyrir komm­ún­ism­anum.

Kim Il-sung í Norður-Kóreu vildi hins vegar fyrir alla muni sam­eina alla Kóreu undir sinni stjórn.

Kim nauðar um að fá að fara í stríð

Hann hafði komið sér vel fyrir í norðr­inu og um þetta leyti voru lífs­kjör alþýð­unnar í Norður-Kóreu umtals­vert betri en í Suður-Kóreu, og var svo áfram lengi vel.

Kim Il-sungvar viss um að her­sveitir hans myndu sigra í því lang­þráða stríði sem hann hóf í júní 1950.

Um það verður fjallað nánar síðar en Kim Il-sung taldi sig alt­ént hafa ástæðu til að ætla að almenn­ingur í suðr­inu tæki því bara vel ef hann yrði frels­aður undan lepp­stjórn Banda­ríkj­anna og Syngman Rhee.

Kim nauð­aði í Stalín að fá að fara með hern­aði gegn Suður-Kóreu en lengi vel bann­aði Stalín slíka ævin­týra­mennsku.

Sárs­auka­full og erfið upp­bygg­ing eftir hörm­ungar heims­styrj­ald­ar­innar var þá í miðju kafi í Sov­ét­ríkj­unum.

Þá var Stalín að upp­lagi var­kár maður og taldi lengi vel enga ástæðu til að  efna til átaka út af Kóreu.

Í upp­hafi árs 1950 hélt Dean Acheson utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna hins vegar örlaga­ríka ræðu þar sem hann lýsti því yfir að Banda­ríkin hefðu myndað eins konar varn­ar­svæði gegn ágangi komm­ún­ista — en komm­ún­istar höfðu þá fyrir tæpu hálfu ári náð völdum í Kína líkt og í Sov­ét­ríkj­unum.

Innan þessa varn­ar­svæðis voru, að sögn Achesons, bæði Japan og Fil­ipps­eyjar en hann nefndi ekki Kóreu.

Stalín gefur stríðsleyfi

Af því dró Stalín þá ályktun að Harry Truman Banda­ríkja­for­seti myndi ekki kveðja út banda­rískan her ef Kim Il-sung gerði árás á Suður-Kóreu og féllst því á það á fundi þeirra Kims í Moskvu í apríl 1950 að norður-kóreski her­inn réð­ist suður yfir 38. breidd­ar­baug.

Norður-kóreski her­inn var þegar mjög vel búinn nýj­ustu her­gögnum úr verk­smiðjum Sov­ét­ríkj­anna.

Maó Zedongvildi gera hið nýja ríki komm­ún­ista í Kína gild­andi í hópi stór­velda og sam­þykkti því að hjálpa Kim Il-sung í stríðs­brölti hans.

Af hálfu Stalíns var leyfi Kims til að fara í stríð þó háð því að Kín­verjar væru því sam­þykkir og myndu draga vagn Kims ef á þyrfti að halda.

Sjálfur ætl­aði Stalín hins vegar ekki Rauða hernum að taka eig­in­legan þátt í hinu yfir­vof­andi stríði.

Kim Il-sung brun­aði nú á bryn­var­inni járn­braut­ar­lest sinni til Bejing og fékk þar upp­á­skrift Maó Zedongs for­manns fyrir að hefja stríð.

Og þann 25. júní 1950 ræstu her­menn Kim Il-sungs skrið­dreka sína og héldu yfir 38. breidd­ar­baug og hófu þar með Kóreu­stríðið sem átti eftir að standa í þrjú ár og kosta ógrynni manns­lífa.

Og færa mann­kynið í fyrsta sinn fram á barm kjarn­orku­stríðs.

Frá því segir í þess­ari grein hér.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár