Hætta við að koma fram með Ed Sheeran

Finneas, Aaron Rowe, Beoga og Lukas Graham hafa dregið sig úr tónleika­ferð Ed Sheerans eftir að Macklemore var látinn víkja vegna ummæla hans til stuðnings Palestínu­mönnum. Sheeran segir ákvörðunina hafa verið tekna af tónleika­haldara en ekki honum sjálfum.

Vinsæll
Vinsæll Tón­leikar Ed Sheeran eru gjarnan upp­seldir en hann er einn allra vin­sæl­asti tón­list­ar­maður sam­tím­ans. Mynd: Markus Hillgärtner

Finneas, Aaron Rowe, Beoga og Lukas Graham, sem öll áttu að koma fram á tónleika­ferð bresku stór­stjörnunnar Ed Sheerans, hafa ákveðið að yfirgefa tónleika­ferðalagið og koma ekki fram á tónleikum hans. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að rapp­aranum Macklemore, sem hafði verið með upphitunar­atriði á tónleikum Sheeran, var gert að hætta þátttöku eftir að lýsti yfir stuðningi við frjálsa Palestínu á tónleikum.

Sheeran hefur hafnað því að hafa sjálfur tekið ákvörðunina og segir tónleika­haldara hafa staðið að henni.

„Ég get hins vegar ekki staðið hjá og horft upp á millj­arða­mær­inga nota valda­stöðu sína til að þagga niður í þeim sem með réttu tala gegn þjóð­ar­morði Ísraels“
Aaron Rowe

Finneas, sem einnig er þekktur fyrir samstarf sitt við systur sína Billie Eilish, írski tónlistar­maðurinn Aaron Rowe og bandið Beoga auk dönsku hljóm­sveitarinnar Lukas Graham tilkynntu öll að þau hygðust …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár