Mannkynið „að missa stjórnina“ á gervigreindinni

Kanadíski tölvunar­fræðingurinn Yoshua Bengio varar við því að þróun gervi­greindar gangi of hratt og að öryggis­rammi um tæknina sé of veikur. Hann segir þörf á alþjóð­legum reglum, stofnunum og sáttmálum, líkt og á sviði kjarnorku­vopna.

Viðbúið
Viðbúið „Fólk eins og ég hefur lengi búist við þessu,“ sagði Bengio í sam­tali við AFP. Hann er pró­fessor við Háskól­ann í Montreal og hlaut Turing-verð­launin árið 2018 Mynd: ANDREJ IVANOV / AFP

Kanadíski tölvunar­fræðingurinn Yoshua Bengio, sem er talinn einn af frumkvöðlum gervi­greindar, segir mannkynið vera „að missa stjórnina“ á tækninni og að koma þurfi á öryggis­reglum sem minni á það regluverk sem gildir um kjarnorku­vopn.

Ótti við hættur af gervi­greind hefur aukist á undan­förnum vikum. Starfs­menn stórra tækni­fyrirtækja hafa sagt upp störfum sínum og varað við því að hröð þróun tækninnar geti jafnvel skapað tilvistarógn fyrir mannkynið verði ekki dregið úr hraðanum.

„Sam­fé­lagið þarf tíma til að koma nauð­syn­legum var­úð­ar­ráð­stöf­unum á“

Bengio er prófessor við Háskólann í Montreal og hlaut Turing-verð­launin árið 2018, sem oft eru kölluð Nóbels­verðlaun tölvunar­fræðinnar, ásamt Geoffrey Hinton, sem gjarnan er nefndur „guðfaðir gervi­greindar“.

Að mati Bengio er „ástæða fyrir því að fyrirtæki segja að þetta gangi of hratt og að við séum að missa stjórnina“.

„Fólk eins og ég hefur lengi búist við þessu,“ …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Sennilega þurfum við að slökkva á internetinu til að stöðva gerfigreindina ef hún fer úr böndunum. Ekki örvænta. Það er hægt að lifa góðu lífi án internetsins. Ég gerði það í nokkra áratugi áður en það kom.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár