Yrði yngsti forsætisráðherra í sögu lýðveldisins

Verði Kristrún Frosta­dóttir næsti for­sæt­is­ráð­herra þegar ný rík­is­stjórn verður mynduð um helg­ina verður hún yngsta mann­eskjan til að gegna emb­ætt­inu frá því að Ísland öðl­að­ist sjálf­stæði.

Yrði yngsti forsætisráðherra í sögu lýðveldisins
Kristrún Frosta­dóttir varð for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar haustið 2022. Mynd: Golli

Nú kepp­ast fjöl­miðlar lands­ins við að spá fyrir um það hvernig næsta rík­is­stjórn lands­ins muni verða skipuð. Stjórn­ar­sátt­máli milli Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins verður kynntur á morgun og ráð­herra­skip­anin einnig. Rík­is­ráðs­fundur mun fara fram og ný rík­is­stjórn skipuð á Bessa­stöðum á sunnu­dag.

36 ára og sjö mánaða

Bæði Morg­un­blaðið og Vísir full­yrða að sam­kvæmt heim­ildum þeirra verði Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, næsti for­sæt­is­ráð­herra. Þá segja miðl­arnir að Viðreisn muni fá bæði utan­rík­is­ráðu­neytið og fjár­mála­ráðu­neytið en Flokkur fólks­ins félags­mála­ráðu­neytið.

Gangi þetta eftir mun Kristrún Frosta­dóttir verða yngsti for­sæt­is­ráð­herr­ann í sögu lýð­veld­is­ins. Hún er fædd 12. maí 1988 og er því 36 ára og sjö mán­aða gömul. 

Katrín yngst í afleysingum

En hver var yngsti for­sæt­is­ráð­herr­ann hingað til? Þeirri spurn­ingu er ekki auðsvarað, en það veltur á því við hvaða skil­grein­ingu fólk velur að tak­marka sig.

Að því er Heim­ildin kemst næst er yngsta mann­eskjan sem hefur sinnt starfi for­sæt­is­ráð­herra, í afleys­ingum þó, er Katrín Júl­í­us­dóttir. Hún var 36 ára og 11 mán­aða þegar hún gegndi emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í fjar­veru Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur haustið 2011. Katrín var þá iðn­að­ar­ráð­herra og gegndi stöð­unni á meðan Jóhanna var í Kaup­manna­höfn á fundum í tengslum við þing Norð­ur­landa­ráðs. 

Yngsti eig­in­legi for­sæt­is­ráð­herr­ann frá því að Ísland fékk full­veldi var hins vegar Hermann Jónasson. Hann var ráð­herra fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn árin 1934 til 1942 og var 37 ára þegar hann tók við emb­ætti. Þá var fyr­ir­renn­ari Hermanns, fram­sókn­ar­mað­ur­inn og síðar for­set­inn Ásgeir Ásgeirs­son, nýorð­inn 38 ára þegar hann varð for­sætis- og fjár­mála­ráð­herra sum­arið 1932.

Þó er vert að taka fram að fyrir full­veld­is­tím­ann, þegar Ísland var með heima­stjórn, var einn maður yngri en bæði Kristrún og Katrín þegar hann tók við emb­ætti. Einar Arn­órs­son var aðeins 35 ára og tveggja mán­aða árið 1915 þegar hann varð ráð­herra Íslands – en hann gegndi emb­ætt­inu til árs­ins 1917.

Aðrir ungir for­sæt­is­ráð­herrar:

  • Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son (38 ára og 2 mán­aða, gegndi 2013-2016)
  • Tryggvi Þór­halls­son (38 ára og 6 mán­aða, gengdi 1927-1932)
  • Sigurður Eggerz (39 ára og 3 mán­aða, ráð­herra Íslands 1914-1915)
  • Þor­steinn Pálsson (39 ára og 7 mán­aða, gegndi 1987-1988)

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár