Sigmundur Davíð og Bjarni tókust í hendur

„Ég hef samið við flokka sem voru mun minni heldur en við í slíkum aðstæðum,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son áður en þeir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son tók­ust í hendur og sam­mælt­ust um að berj­ast gegn aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið.

Sigmundur Davíð og Bjarni tókust í hendur

Leið­togar stjórn­mála­flokka í fram­boði til Alþingis mætt­ust í sjón­varps­sal í nótt, þar sem Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hall­aði sér upp að Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni og tók í hönd hans í umræðum um kom­andi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður. 

„Þetta síma­ver ykkar, það virkar,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, og beindi orðum sínum að for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjarna Bene­diks­syni, í leið­togaum­ræð­unum. Sagði Sig­mundur Davíð að meg­in­tíð­indi kosn­ing­anna væri þau að ann­ars vegar væru flokkar að auka fylgi sitt tals­vert og „svo er sviðin jörð hinum megin. Þetta eru ótrú­legar breyt­ingar á íslenskri póli­tík.“

Sjálfur væri hann bjart­sýnn á að ná inn átta eða níu þing­mönnum áður en nóttin væri úti. „Það verða þing­menn sem munu hafa gríð­ar­lega áhrif á stjórn­mála­um­ræðu á næstu árum,“ sagði hann. Hann hefði auð­vitað viljað fá þrjá­tíu pró­senta fylgi, sagði hann á léttu nót­unum. „Ég væri ótrú­lega svekktur ef við næðum bara þessum sjö.“ Bætti hann því við að ef bjart­sýn­is­spá hans rætt­ist væri um að ræða fjór­földun á þing­manna­fjölda frá því sem verið hefur á kjör­tíma­bil­inu. „Miðað við það sem tveir þing­menn geta gert geta menn rétt ímyndað sér hvað átta geta gert.“ 

Aðspurður um stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður sagð­ist hann ekki hafa leyft sér að velta því fyrir sér. „Miðað við þetta hef ég samt smá áhyggjur af því að við fáum ESB-stjórn­ina. Sam­fylk­ingu, Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.“  

„Er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn Evr­ópu­flokkur?“skaut Inga Sæland þá inn í og Sig­mundur svar­aði að bragði: „Hann er til í eitt og annað. Hann hefur aðlög­un­ar­hæfni.“

Þegar Bjarni fékk næst orðið tók hann fram að framundan gæti verið nokkuð snúið verk­efni. Sjálfur hefði hann fjórum sinnum komið að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. „Ég hef samið við flokka sem voru mun minni heldur en við í slíkum aðstæðum.“

„Við munum bara eins og alltaf leggja áherslu á þau mál sem við lof­uðum okkar fólki að tala fyrir. Þar með talið að halda okkur utan ESB,“ sagði Bjarni, hall­aði hann sér upp að sessu­nauti sínum, Sigmundi Davíð, klapp­aði honum á öxl­ina og þeir hlógu saman. 

„Ertu alveg ákveð­inn?“ spurði Sig­mundur Davíð og þeir tók­ust í hendur. 

Hér má fylgj­ast með þróun atkvæða í nótt: 

https://heimildin.is/kosningar/urslit/althingiskosningar-2024/

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár