Ekki viðkvæmur fyrir því að fólki sé illa við mig

Robert Michael O'Neill lærði að meta Ísland upp á nýtt eftir að hafa búið erlendis um tíma. Eftir að hafa flúið myrkrið, kuld­ann, fámennið og dýr­tíð­ina fatt­aði hann að Ísland væri ekki svo slæmt eftir allt saman.

Ekki viðkvæmur fyrir því að fólki sé illa við mig
Ég er eins og ég er Robert Michael O'Neill er með­vit­aður um bakslag í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks en hefur ekki fundið fyrir bakslag­inu per­sónu­lega. „Ég er ekki við­kvæmur fyrir því að fólki sé illa við mig af því hver ég er. Þá bara hefur þú það þannig.“ Mynd: Heimildin

„Að flytja til útlanda breytti því hvernig ég lít á lífið. Að vera mörg ár í burtu kenndi mér að meta Ísland miklu betur og allt sem við höfum: Vatnið, loftið, fólkið og nátt­úr­una. Pabbi minn er írsk-amer­ískur. Ég er fæddur á Íslandi en bjó svo í Portúgal í smá­tíma og í Danmörku í fjölda­mörg ár. Ég er smá heims­borg­ari en mér finnst rosa­lega gott að vera kom­inn heim til Íslands, ég fíla mig mjög vel hérna heima eftir að hafa verið í Evrópu. 

Að búa í Danmörku þar sem voru engin fjöll, flatur sjór, vont vatn, það breytti minni sýn á Ísland. Þegar ég flutti burt ætl­aði ég aldrei að koma heim aftur, þetta var svo ömur­legt land, myrkrið, kuld­inn, fámennið og dýr­tíðin. Svo var ég tíu ár í burtu og kom heim og fatt­aði að þetta er ekki svona slæmt.   

„Mig lang­aði að upp­lifa að vera hinsegin maður ein­hvers staðar ann­ars staðar en á Íslandi

En mig lang­aði að upp­lifa að vera hinsegin maður ein­hvers staðar ann­ars staðar en á Íslandi. Það var allt öðru­vísi, það er miklu stærri „gay kúltúr“ í evr­ópskum borgum en á Íslandi, þó það sé alltaf að skána hér. Það er bakslag í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks, ég finn alveg fyrir því, en það er eitt­hvað sem við verðum að halda áfram að vinna í og halda áfram að fræða fólk. Við erum ekki öll eins. Ég hef ekki mikið fundið fyrir bakslag­inu per­sónu­lega en ég er ekki við­kvæmur fyrir því að fólki sé illa við mig af því hver ég er. Þá bara hefur þú það þannig. 

Ég er algjör tuð­ari, en ég reyni samt að sýna betri hlið­ina þegar ég er í vinn­unni. Ég er hár­greiðslu­meist­ari, búinn að vera það í næstum þrjá­tíu ár, ég er að verða fimm­tugur. Núna er lognið á undan storm­inum, ég þarf að sofa vel og borða vel til að vera vel stemmdur fyrir mikla vinnu í des­em­ber. Jólin verða síðan eins róleg og ég mögu­lega get. Ég er ekk­ert rosa­legt jóla­barn, ég verð einn með mömmu á jóla­dag og annan í jólum, hún kemur og gistir hjá mér.“ 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár