Mælt með Grænmetisætunni eftir Han Kang

Hinn nýbak­aði hand­hafi bók­mennta­verð­launa Nóbels er virki­lega lest­urs­ins verður. Að lesa Græn­metisæt­una jaðrar við að vera ein­stök upp­lifun.

Mælt með Grænmetisætunni eftir Han Kang
Suður-kóreska rit­höf­und­inn Han Kang hlaut nóbelinn í ár.

Bókin Græn­metisætan eftir suður-kóreska rit­höf­und­inn Han Kang kom fyrst út árið 2007. Þó nokkrum árum síðar kom hún út í enskri þýð­ingu og hlaut Man Booker-verð­launin árið 2016. Ég las þá um hana í The Guardian, nýbúin að fá mér Kindle-lest­ölvu, og varð svo for­vitin að þetta var fyrsta bókin sem ég keypti raf­ræna.

Bókin hafði slá­andi áhrif, á ein­hver óút­skýr­an­legan hátt. Hrá en fögur, ofbeld­is­full og hríf­andi, ljóð­ræn og beitt tendraði hún ýmsar kenndir. Verkið er sett saman á frum­legan hátt, það skipt­ist í þrjá hluta, þrjár sögur sem tengj­ast mynda skáld­sögu. Raunar hreyfði bókin svo við mér að ég hef ekki tölu á ein­tök­unum sem ég hef keypt og gefið, þó að ég hafi ekki lesið hana aftur síðan.

„Mig var að dreyma“

Fyrsti hlut­inn er út frá Yeong-hye, konu í ást­lausu hjóna­bandi með manni sem má ekki við mann­legri ólgu. Þegar hún hættir að borða kjöt …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár