Þórdís Kolbrún segist tilbúin að verða formaður Sjálfstæðisflokksins

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir seg­ist til­búin að taka við for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Nú fer fram síð­asti fundur rík­is­stjórn­ar­innar í núver­andi mynd. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son var harð­orður í garð Vinstri grænna á leið inn á fund­inn.

Þórdís Kolbrún segist tilbúin að verða formaður Sjálfstæðisflokksins

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að hún sé til­búin í það verk­efni að verða næsti for­maður flokks­ins. „Ég er til­búin í það verk­efni,“ sagði hún á leið sinni inn á rík­is­stjórn­ar­fund fyrir stundu. Það sé í höndum sjálf­stæð­is­manna að velja sér for­ystu. Taka þurfi þó eitt skref í einu. 

„Við erum á þessum fundi að afgreiða forms­at­riði sem skipta máli. Förum í gegnum það og svo höldum við áfram,“ sagði hún um fund­inn. Hún hefur ekki áhyggjur af brott­hvarfi eins sam­starfs­flokks­ins. Starfs­stjórnin sé full­færa um að halda utan um verk­efnin fram að kosn­ingum án aðildar ráð­herra Vinstri grænna. 

Fyrr í dag var til­kynnt að Þórdís Kolbrún sækt­ist eftir öðru sæti í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, í stað þess að bjóða sig fram í Norð­vest­ur­kjör­dæmi – líkt og hún hefur gert frá árinu 2007. Þar segir Þórdís Kolbrún að hún sé til­búin að leiða þegar Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins og odd­viti kjör­dæm­is­ins, hættir.

„Ég trúi því að í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sem er lang­fjöl­menn­asta kjör­dæmið, að þar geti ég gert gagn. Þetta eru sann­ar­lega skila­boð um það líka. Nú erum við á þessum stað að afgreiða forms­at­riði og ein­henda okkur svo í kosn­inga­bar­áttu.“

Segir hegðun ráðherra VG ábyrgðarlausa

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku-, og lofts­lags­ráð­herra, sagði á leið sinni inn á fund­inn að nú væri uppi skrítin staða. Það væri með ólík­indum að flokkur skyldi hlaupa frá borði, og átti þar við ráð­herra Vinstri grænna, sem hafa sagst ekki ætla að taka þátt í starfs­stjórn undir for­ystu Bjarna Bene­dikts­sonar fram að kosn­ingum. 

„Þetta er nú ekki þannig að ráð­herra­emb­ætti séu þannig að þegar ein­hverjum dettur í hug að hann vilji ekki vera á vett­vangi af ein­hverjum ástæðum að hann geti bara yfir­gefið rík­is­stjórn­ina. Ef allir myndu gera þetta þá væri landið stjórn­laust. Þetta er með ólík­indum ábyrgð­ar­laust það sem við höfum séð og við þurfum auð­vitað að taka á því,“ sagði Guð­laugur Þór.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Ég hef fulla trú á því að þessi tiltekni Guðlaugur hafi verið allsgáður þegar hann lét hafa eftir sér það sem hér að ofan er ritað.
    Hann má svo hverfa úr ráðherraembætti núna ef hans aðstæður eða sannfæring krefst þess. Þrælahald er bannað á Íslandi með lögum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár