Lögmaður konunnar segir lögregluna fara með ósannindi

Lög­mað­ur konu sem var til rann­sókn­ar vegna meintr­ar byrlun­ar, af­rit­un­ar á upp­lýs­ing­um af síma og dreif­ingu á kyn­ferð­is­legu mynd­efni seg­ir ým­is­legt hrein­lega ósatt í yf­ir­lýs­ingu sem lög­regl­an birti á Face­book­síðu sinni í til­efni af nið­ur­fell­ingu máls­ins. „Lög­reglan er þarna að breiða yfir eigin klúður, eigin mis­tök,“ segir hann og kallar eftir opin­berri rann­sókn á vinnu­brögðum lög­regl­unnar.

Lögmaður konunnar segir lögregluna fara með ósannindi
Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra birti yfir­lýs­ing­una á Facebook en Páley Borg­þórs­dóttir er þar lög­reglu­stjóri. Lögmaður kon­unnar og for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands lýsa yfir undrun sinni á yfir­lýs­ing­unni. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

„Það eina rétta er að kalla eftir opin­berri rann­sókn á þessum vinnu­brögðum lög­regl­unnar,“ segir Hólmgeir Elías Flosason, lög­maður fyrr­ver­andi eig­in­konu Páls Stein­gríms­sonar en hún var sak­born­ingur í máli sem lög­reglan á Norð­ur­landi eystra felldi niður í lið­inni viku. 

Þrjú og hálft ár eru síð­an Páll til­kynnti meint brot til lög­reglu, eða í maí­mán­uði 2021. Auk kon­unnar höfðu sex blaða­menn rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu. Lög­reglan til­kynnti í Facebookfærslu að ákvörðun hefði verið tekin um að hætta rann­sókn­inni. Þá hafði rann­sóknin staðið yfir í þrjú og hálft ár. 

Í þessum sama mán­uði, maí 2021, birtu Kjarninn og Stundin, for­verar Heim­ild­ar­innar, fjölda frétta og frétta­skýr­inga sem byggð voru á gögnum sem sýndu hvernig stjórn­­­end­­­ur, starfs­­­fólk og ráð­gjafar Sam­herja höfðu lagt á ráðin um að ráð­­­ast gegn nafn­­­greindum blaða­­­mönn­um, lista­­­mönn­um, stjórn­­­­­mála­­­mönn­um, félaga­­­sam­­­tökum og ýmsum öðrum til að hafa af þeim æruna, trú­verð­ug­­­leik­ann eða lífs­við­­­ur­vær­ið. Gögnin áttu upp­runa sinn í sam­skiptum hóps fólks sem kall­aði sig „Skæru­liða­deild Samherja“; Þorbjörn Þórð­ar­son, Arna Bryndís Baldvins McClure og Páll Stein­gríms­son.

Lög­reglu­rann­sóknin sneri að meintri byrlun, afritun á upp­lýs­ingum af síma og dreif­ingu á kyn­ferð­is­legu efni. Konan var til rann­sókna vegna allra þess­ara þriggja þátta. 

Yfir­lýs­ing sem lög­reglan á Norð­ur­landi eystra birti á Facebook var bæði löng og ítar­leg, þar sem lög­reglan sagð­ist meðal ann­ars vera að birta nið­ur­stöður rann­sóknar sinnar. 

Rangt á rangt ofan

Þar sagði meðal ann­ars: „Fram­burður sak­born­ings sem afhenti fjöl­miðlum sím­ann hefur verið stöð­ugur allan tím­ann sem rann­sóknin hefur staðið um að hann hafi afhent fjöl­miðlum sím­ann.“. Þetta segir Hólmgeir vera rangt. 

„Ég hef upp­lýs­ingar undir höndum sem draga fram að það sem þau eru að segja er hrein­lega ósatt“
Hólmgeir Elías Flosason

„Sak­born­ing­ur­inn hefur einnig verið stöð­ugur í fram­burði um að hafa upp­lýst þá sem tóku við sím­anum hvernig sím­inn væri til kom­inn og hver ætti sím­ann.“ Þetta segir Hólmgeir einnig vera rang­færslu hjá lög­regl­unni.

Í Facebookfærslunni segir lög­reglan einnig að það liggi fyrir að einn sak­born­inga, umrædd kona, hafi játað að hafa sett lyf út í áfengi sem hún færði Páli og hann drakk. Þá er full­yrt að lög­reglu­stjóra­emb­ættið á Norð­ur­landi eystra telji þessa hátt­semi varða við hegn­ing­ar­lög. Síðan er settur við þetta sá fyr­ir­vari að ekki hafi verið sönnuð „orsaka­tengsl á milli byrl­unar og veik­inda brota­þola“ en „ef“ hægt væri að sanna þau þá væri þó „ekki lík­legt að ákæru­vald­inu tæk­ist að sanna ásetn­ing sak­born­ings til að valda brota­þola þeim skaða sem hann varð fyrir. Þá er vísað til and­legs ástands sak­born­ings á verkn­að­ar­stundu og eft­ir­far­andi veik­indi hans.  Af fram­an­greindum ástæðum hefur verið ákveðið að hætta rann­sókn á þessu sak­ar­efni í mál­inu.“ Þrátt fyrir þetta stað­hæfir lög­reglan í sömu efn­is­grein að hún telji kon­una hafa gerst brot­lega við lands­lög. 

Gagnrýnir tvískinnung  lögreglunnar

Þá full­yrðir lög­reglan einnig í færsl­unni að hún telji sak­ar­efni um að dreifa kyn­ferð­is­legu myndefni af brota­þola „sé lík­legt til sak­fellis á hendur einum ein­stak­lingi“. Þarna er átt við umrædda konu, enda segir í næstu setn­ingu: „Brotið felst í því að sak­born­ingur sendi sjálfum sér kyn­ferð­is­legt myndefni af eig­in­manni sínum úr síma hans.“ Því næst kemur hins vegar fram: „Vegna veik­inda sak­born­ings leikur vafi á um hvort hann hafi verið sak­hæfur á verkn­að­ar­stundu. Sak­born­ingur hefur hafnað beiðni um að und­ir­gang­ast sak­hæf­is­mat og því hefur verið ákveðið að hætta rann­sókn á þessum þætti máls­ins.“.

Hólmgeir segir það tví­skinn­ung að lög­regla vísi á þennan hátt til veik­inda kon­unnar „þegar á sama tíma fannst þeim algjör­lega til­hlýð­legt að draga hana í tvígang fyrir dóm í aðal­með­ferð. Þeir mátu það þannig að hún væri til þess bær að koma fyrir dóm. Þá var bæði hún og blaða­menn­irnir með rétt­ar­stöðu sak­born­inga miss­erum og árum saman án þess að lög­reglan gerði hand­tak í rann­sókn­inni,“ segir hann. 

„Þetta eru eft­irá­skýr­ingar. Lög­reglan er þarna að breiða yfir eigin klúður, eigin mis­tök“
Hólmgeir Elías Flosason

Þá seg­ist Hólmgeir bæði hafa fengið gögn og upp­lýs­ingar sem dragi sann­leiks­gildi ýmissa atriða yfir­lýs­ingu lög­regl­unnar í efa: „Þetta eru eft­irá­skýr­ingar. Lög­reglan er þarna að breiða yfir eigin klúður, eigin mis­tök,“ segir hann. 

Lög­reglan segir til að mynda í Facebookfærslunni að henni þyki miður hve langan tíma rann­sóknin tók „ en gildar skýr­ingar eru á því. Rann­sóknin var engu að síður sam­felld. Veikindi eins sak­born­ings höfðu mikil áhrif á gang rann­sókn­ar­innar…“. Hólmgeir setur sömu­leiðis spurn­inga­merki við að lög­reglan beri fyrir sig veik­indi kon­unnar með þessum hætti. „Ég hef upp­lýs­ingar undir höndum sem draga fram að það sem þau eru að segja er hrein­lega ósatt. Lög­reglan er að reyna að fegra sinn hlut og reyna að skýra þennan drátt með vísan til hennar veik­inda,“ segir hann. 

„Lög­reglan er að reyna að fegra sinn hlut og reyna að skýra þennan drátt með vísan til hennar veik­inda“
Hólmgeir Elías Flosason

Hólmgeir telur alvar­legt að lög­regla gangi fram gegn borg­urum með þeim hætti sem hún geri í yfir­lýs­ing­unni en hann kallar sömu­leiðis eftir að opin­ber rann­sókn fari fram á vinnu­brögðum lög­regl­unnar í mál­inu öllu: „Það er ekki hægt að láta þetta bara kyrrt liggja. Ég get ekki séð að þessu máli sé lokið,“ segir hann. 

Yfirlýsing lögreglu einsdæmi

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, fagn­aði á dög­unum þeirri nið­ur­stöðu lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra að hætta rann­sókn­inni, en sex blaða­menn höfðu þar rétt­ar­stöðu sak­born­ings. Hún gagn­rýndi hins vegar yfir­lýs­ing­una sem lög­reglan birti á Facebook. 

 

„Við erum búin að láta lög­mann okkar skoða þetta og hann bara stað­festir það sem við álitum og teljum af okkar reynslu að þetta sé í raun­inni bara eins­dæmi. Að lög­reglan með þessum hætti sé að lýsa afstöðu sinni í mál­inu. Þar segja þeir að sak­born­ingar gætu hafa sýnt af sér atferli sem flokk­ast getur undir brot á fram­an­greindum ákvæðum,“ sagði hún í sam­tali við Heim­ild­ina sama dag og yfir­lýs­ingin var birt.

Þá velti Sigríður fyrir sér hvað lög­reglu gangi til með að birt­ing­unni og hún kann­ist ekki við að lög­regla hafi tjáð sig með við­líka hætti um afstöðu sína til fyrr­ver­andi sak­born­inga eftir að málið hefur verið fellt niður.

„Það er bara stórfurðu­legt að lög­reglan fari fram með þessum hætti.  En mér finnst þetta bara í takt við vinnu­brögð lög­reglu í þessu öllu og alls ekki til þess að auka traust almenn­ings á lög­reglu og rann­sókn hennar á þessu máli,“ sagði hún.


Fyr­ir­vari: Í grein­inni er fjallað um hags­muni blaða­manna sem starfa eða störf­uðu á Heim­ild­inni.

 

Kjósa
83
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingunn Björnsdóttir skrifaði
    Lögmaður konunnar virðist svo bara eftir alltsaman ekki vera lögmaður konunnar. Þurfið þið ekki að uppfæra "fréttina"?

    https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/10/04/kallar_eftir_rannsokn_en_talar_ekki_i_umbodi_konunn/
    0
  • Vilhjálmur Þorsteinsson skrifaði
    Fúskið í þessari rannsókn allri var þvílíkt að manni fallast hendur og missir trú á réttarríkið hérlendis. Málið dansar raunar allt á egg rakhnífs Hanlons, sem sagði á frummálinu "Never attribute to malice that which is adequately explained by stupidity", eða "Ekki rekja það til ills ásetnings sem unnt er að útskýra nægilega með heimsku". Var þetta hversdagsleg nautheimska hjá lögregluembættinu á Norðurlandi eystra, eða lá að baki ásetningur um að þóknast einu ríkasta og valdamesta fyrirtæki landsins sem þar er með höfuðstöðvar, þ.e. Samherja? Það að svarið við þeirri spurningu liggi engan veginn í augum uppi er verulega alvarlegt mál.
    23
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Auðvitað þarf að rannsaka þetta mál hjá lögreglunni. Þetta er spillt lögga.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár