Kalla eftir því að Samherji felli niður málið gegn íslenska listamanninum

Á þriðja tug alþjóð­legra sam­taka sem berj­ast fyrir því að upp­ljóstr­arar séu vernd­aðir kalla eftir því að Samherji felli niður málið gegn lista­mann­inum Odee vegna lista­verks­ins We're Sorry. Samtökin leggja áherslu á sam­eig­in­legan grund­völl lista­manna og upp­ljóstr­ara hvað varðar mik­il­vægi þess að lýsa upp sann­leik­ann. Þá hefur Lista­há­skóli Íslands ákveðið að taka ekki opin­ber­lega afstöðu í máli Odee en verkið var útskrift­ar­verk­efni hans frá skól­anum.

Kalla eftir því að Samherji felli niður málið gegn íslenska listamanninum

Mál lista­manns­ins var tekið fyrir á stjórn­ar­fundi Lista­há­skóla Íslands á dög­unum. Skólans sem nú þegar hefur útskrifað lista­mann­inn á for­sendum þessa verks. Nið­ur­staða stjórn­ar­innar var að taka ekki opin­ber­lega afstöðu til máls­ins.

Oddur Eysteinn eða Odee segir í sam­tali við Heim­ild­ina að það komi sér á óvart að Lista­há­skól­inn standi ekki með sér.

„Sér­stak­lega í ljósi þess að þetta er útskrift­ar­verk­efni sem búið er að útskrifa mig fyrir. Og farið yfir af próf­dóm­ara.“

Ertu til í að útskýra lista­stefn­una sem þú vannst verkið út frá?

„Þetta er list­stefna sem heitir menn­ing­ar­brengl eða culture jamm­ing. Heims­þekktir lista­menn hafa unnið eftir þess­ari list­rænu stefnu, eins og Banksy, The Yes Men og Nadia Plesner. Hún gengur út á að taka yfir eða breyta sam­skiptum fyr­ir­tækja eða stofn­anna. Til þess að skapa nýja tján­ingu sem lista­mað­ur­inn stýrir.“

Hvað seg­irðu við fólk sem segir að þetta sé ekki list?

„We're Sorry hlýtur að vera eitt þekktasta mynd­lista­verk Íslands þessa dag­ana. Þetta er alþjóð­lega við­ur­kennt list­form,“ segir Odee.

Vilja að Samherji felli málið niður 

Skömmu eftir sam­talið við Odee og á meðan á vinnslu frétt­ar­innar stendur ber­ast ný tíð­indi. Að 27 alþjóð­leg og leið­andi sam­tök fyrir vernd fyrir upp­ljóstr­ara kalli nú eftir því að Samherji, sem sam­tökin kalla eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Evrópu, felli niður málið gegn lista­mann­inum. Samtökin linka á bréf á vef sínum sem má vitna í og birta snemma á morgun og styðja þar Odee og list­rænt frelsi hans til tján­ingar – sem geri okkur kleift að íhuga og kanna sið­ferð­is­legt val okkar en um leið skilja hvernig vald virkar og hefur áhrif á okkur, hvort sem það er póli­tískt, félags­legt eða efna­hags­legt.

Lögð er áhersla á sam­eig­in­legan grund­völl upp­ljóstr­ara og lista­manna hvað varðar mik­il­vægi þess að lýsa upp sann­leik­ann og afhjúpa í þágu almanna­heilla.

Skólinn styður tjáningarfrelsi 

En aftur að Lista­há­skól­anum og ákvörðun stjórnar hans um að taka ekki afstöðu í máli lista­manns­ins. Heim­ildin náði tali af Kristínu Eysteins­dóttur, rektor Lista­há­skóla Íslands þar sem hún var stödd í Brussel og spurði hvers vegna stjórn skól­ans hefði ákveðið að taka ekki afstöðu með útskrift­ar­verk­efni lista­manns­ins. „Ég er einmitt hérna á nor­rænum háskóla­dögum í Brussel þar sem eru sex­tíu rekt­orar eru sam­an­komnir og eitt af því sem við erum að ræða mjög mikið er akademískt frelsi og sjálf­ræði og sjálf­stæði háskól­anna.“

Hún segir það vera mjög skýrt að skól­inn styðji tján­inga­frelsi.

 „Siða­reglur skól­ans eru mjög skýrar hvað það varðar. Það er ekki stunduð rit­skoðun af neinu tagi af hálfu skól­ans varð­andi list­sköpun. Hins vegar er það líka hlut­verk háskóla í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi að taka ekki afstöðu með eða á móti lista­verkum. Við erum lista­há­skóli og þar á að vera rými fyrir fjöl­breyti­leika og ólíkar raddir. “

„Lista­verkin tala fyrir sig sjálf“
Kristín Eysteins­dóttir

Háskól­inn sjálfur geti þó ekki tekið afstöðu með eða á móti þeirri list­sköpun sem sé ræktuð innan skól­ans. „Við gefum algjört frelsi í list­sköp­un­inni en skól­inn getur ekki talað með þeim hætti að hann taki afstöðu í þeim málum. Lista­verkin tala fyrir sig sjálf,“ segir Kristín og bætir við að lista­menn­irnir beri ábyrgð á sínum verkum.

„Við erum ekki rit­stjórar. Skólinn stígur ekki fram með afstöðu gagn­vart ein­staka lista­verki.“ 

Akademíska frelsið felist í því að nem­endur og starfs­fólk skól­ans hafi rými til að vera með ólíkar skoð­anir og ólíkar nið­ur­stöður verka sinna. 

„Að því sögðu þá styðjum við tján­ing­ar­frelsi lista­manna og list­ar­innar hund­rað pró­sent.“

Bráðabirgðalögbann

Í dóms­salnum mun lista­mað­ur­inn Odee mæta lög­mönnum Samherja en hann ætlar að flytja mál sitt sjálfur. Þá verður skorið úr um hvort málið fari áfram.  

Fyr­ir­tækið fékk lagt bráða­birgða­lög­bann í Bret­landi á vef­síð­una sam­herji.co.uk. þar sem Odee hafði birt afsök­un­ar­beiðni Samherja til handa Namibíu. Lista­mað­ur­inn tók niður vef­síð­una en taldi það vera alvar­lega aðför að tján­ing­ar­frels­inu

Vefsíða þessi til­heyrir áður­nefndu lista­verki sem jafn­framt er vegg­lista­verk í Lista­safni Reykja­víkur, ásamt frétta­til­kynn­ingu með afsök­un­ar­beiðn­inni. Í fréttum hér­lendis í maí var talað um að fölsuð afsök­un­ar­beiðni hefði verið send út í nafni Samherja og vef­síða verið látin líta út eins og hún væri tengd fyr­ir­tæk­inu. Í til­kynn­ingu á dög­unum sagði Þor­steinn Már Bald­vins­son þetta vera mis­notkun á vöru­merki Samherja sem næði til þriggja heims­álfa.

Þekktar aðferðir innan listanna

Það að Lista­há­skóli Íslands taki ekki afstöðu virð­ist ekki ríma við yfir­lýs­ingu frá Sambandi íslenskra lista­manna til stuðn­ings lista­mann­inum. Né heldur við yfir­lýs­ingu Banda­lags íslenskra lista­manna, honum ein­dregið til handa.

Aðspurð um þetta segir Kristín: „Varðandi BÍL og SÍM þá fögnum við þeirra yfir­lýs­ingum enda sam­ræm­ast þær hlut­verki fag­fé­laga en hlut­verk háskóla er annað. Það getur líka verið hættu­legt í lýð­ræðis sam­fé­lagi ef háskóli stígur fram með ein­harða afstöðu. Háskól­inn þarf að vera sam­fé­lag með ólíka tján­ingu og raddir og rými fyrir til­raunir jafnt sem rann­sóknir. Það er okkar hlut­verk,“ segir hún og bætir við að þær aðferðir sem hann beiti séu mjög þekktar innan list­anna. Þá vísar hún í lista­stefn­una culture jamm­ing sem aðferð til að varpa ljósi á eitt­hvað í sam­fé­lag­inu.

Fiskerforum fjallar um listamanninn

Nýlega fjall­aði norska rík­is­út­varpið, NRK um mál hans, en lista­mað­ur­inn stundar nú fram­hald­nám við lista­há­skól­ann í Bergen.

Greinin hefst á orð­unum: „Íslenski lista­mað­ur­inn Oddur Eysteinn Frið­riks­son – fremur þekktur sem Odee – er nú sóttur til saka af hinu gígantíska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Samherja.“

Þar segir jafn­framt að það sé vegna útskrift­ar­verk­efnis hans frá  Lista­há­skóla Íslands. Í grein­inni kemur fram að Samherji hafi verið sak­aður um að hafa reynt að tryggja sér fiskikvóta fyrir utan strönd Namibíu. Það hafi gerst í kjöl­far upp­ljóstr­anna á sam­skiptum starfs­manna Samherja og ráð­herra í Namibíu.

Oddur hefur sagt að hann hafi viljað biðja Namib­íu­menn afsök­unar fyrir hönd íslensku þjóð­ar­innar.

„Þeir sem bera ábyrgð og hafa hagn­ast á þessu arðráni, ættu að missa allan auð sinn, bæði hér­lendis og erlendis,“ sagði hann á dög­unum í við­tali við RÚV.

Þess má geta að umræða um lista­verk hans hefur nú ratað í mið­il­inn Fis­kerForum þar sem haft er eftir lista­mann­inum að sá ofboðs­lega mikli stuðn­ingur sem hann hafi fundið fyrir vitni um trú fólks á tján­ing­ar­frelsið og mik­il­vægi þess að halda ábyrgð fyr­ir­tækja að þeim.

Þá skrif­aði lista­mað­ur­inn Oddur Eysteinn loka­rit­gerð um útskrift­ar­verk­efni sitt þar sem hann kannar meðal ann­ars tengsl og áhrif menn­ing­ar­brengls á sig og sína list­sköpun. 

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Neibb. Að villa a sér heimildir er ekki heimilt. Að tjjona þá um milljarða með gögnum er aftur a moti leyfilegt. Maðurinn fór yfir strikið. Hneykslist frekar a gormunum sem nu krefjast milljóna af fjölmiðla manninum með ókurteisu orðin.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár