Niðurskurðarstefnan komi aga á verkafólk en styrki hina ríku

Ítalski hag­fræði­pró­fess­or­inn Clara E. Mattei hefur rann­sakað sögu kap­ít­al­ism­ans og hvernig helstu kenn­inga­smiðir hag­fræð­innar hafa um langt skeið staðið vörð um kap­ít­al­ismann á kostnað verka­fólks. Í bók sem Clara gaf út fyrir tveimur árum rann­sakar hún upp­runa eins áhrifa­mesta hag­stjórn­ar­tækis kap­ít­al­ism­ans, nið­ur­skurð­ar­stefn­una. Clara sett­ist niður með blaða­manni Heim­ild­ar­innar og ræddi kenn­ingar sínar um nið­ur­skurð­ar­stefn­una og hlut­verk hag­fræð­innar í heimi sem breyt­ist hratt.

Niðurskurðarstefnan komi aga á verkafólk en styrki hina ríku
Öflugt stjórn­ar­tæki Clara Mattei telur á að sú aldagamla hefð að skera niður útgjöld í kjöl­far efna­hags­á­falla sé í raun gerð til þess að bæla niður verka­fólk og skýla fjár­magns­eig­endum. Úrræðið sé fyrst og fremst hannað til þess að varð­veita kap­ít­al­ismann. Mynd: Anton Brink

Í núver­andi efna­hags­um­hverfi heyr­ast ósjaldan raddir sem segja að nú sé brýn nauð­syn fyrir því að stjórn­völd dragi úr útgjöldum sínum til að koma rík­is­fjár­mál­unum aftur í jafn­vægi og stuðla að efna­hags­legum stöð­ug­leika. Þetta er kunn­ug­legt stef sem stjórn­mála­menn, sér­fræð­ingar og hags­muna­sam­tök hafa end­ur­tekið um langt skeið.

En hvað er nið­ur­skurð­ar­stefna nákvæm­lega? Er nið­ur­skurður við­eig­andi meðal gegn efna­hags­legum óstöð­ug­leika? Hverjir hagn­ast á því að slíkum úrræðum sé beitt og hverjir tapa?

Þetta eru spurn­ingar sem ítalski hag­fræð­ing­ur­inn Clara Mattei hefur rann­sakað og skrifað ítar­lega um á und­an­förnum árum.  

Árið 2022 gaf Clara út sína fyrstu bók, The Capital Order: How Economists Invented Austerity and Paved the Way to Fascism. Þar fjallar hún um upp­runa og þróun nið­ur­skurð­ar­stefnu í Bret­landi og Ítalíu. Hún telur að stefnan hafi fyrst skotið upp koll­inum á árunum eftir fyrri heims­styrj­öld.

Rann­sóknin byggir á opin­berum gögnum sem Clara við­aði að sér úr skjala­söfnum …

Kjósa
65
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Orđatiltæki eins og ađ deila ekki viđ dómarann eru í eđli sínu fasísk eđa vinsælir textar eins og Tóta llitla tindilfætt tók þann arf úr föđurætt ađ vilja lìfasins njóta, verslings litla Tóta, fólk átti ekki ađ njóta, þađ átti ađ puđa, huggulegheitin komu eftir dauđan. Trúarbrögđin og auđvaldiđ deildu međ sér arđi puđsins og gera enn, ađ vísu eru trúarbrögđin mikiđ til ríkisrekin í dag en bođskpurinn er sá sami ađ hafa hemil á stéttinni sem hefur alltaf skapađ veđmætin.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár