Moskítóflugan fær byr undir báða vængi í Evrópu

Lengri sumur, hærra hita­stig og meiri úrkoma eru afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga sem þegar eru farnar að gera vart við sig í Evrópu. Þetta hefur skapað kjörað­stæður fyrir aukna útbreiðslu moskítóflugna og þá sam­tímis veira sem hún ber.

Moskítóflugan fær byr undir báða vængi í Evrópu
Kjörað­stæður Í bæði Banda­ríkj­unum og mörgum ríkjum Evrópu hefur til­fellum vest­ur­níl­ar­veiki, sem sam­nefnd veira veldur, fjölgað mikið. Mynd: AFP

Lofts­lags­breyt­ingar eru að breyta Evrópu í „útung­un­ar­stöð“ fyrir sjúk­dóma sem moskítófl­ugur bera með sér, að sögn vís­inda­manna. Lengri sumur, hærra hita­stig og meiri úrkoma en áður hafa skapað kjörað­stæður fyrir moskítófl­ugur á svæðum sem þær áður þrifust ekki á.

Í sam­an­tekt sem Evrópska smit­sjúk­dóma­stofn­unin (ECDC) hefur gefið út kemur fram að það sem af sé ári hafi 715 til­felli vest­ur­níl­ar­veiru greinst í fimmtán Evr­ópu­löndum sem er meira en allt árið í fyrra og yfir tíu ára með­al­tali. Í byrjun sept­em­ber hafði 51 sjúk­lingur lát­ist vegna þess­arar skæðu veiru­sýk­ingar. Flestir voru þeir aldr­aðir. 

„Þetta er nýr veru­leiki,“ hefur vís­inda­tíma­ritið Nature eftir sér­fræð­ingi í smit­sjúk­dómum sem starfar hjá ECDC. Moskítóflugan sem ber veiruna hefur verið þekkt á vissum svæðum í Evrópu frá því um miðja síð­ustu öld. Á þeim slóðum hefur fólk, kyn­slóð fram af kyn­slóð, orðið ónæmt fyrir verstu ein­kennum smits. Nú þegar flugan finnst víðar vegna hag­felldra veð­ur­að­stæðna, er fólk sem fyrir stungu verður og fær veiruna í sig næmara fyrir smiti og í meiri hættu á að fá alvar­leg ein­kenni.

Í nýrri rann­sókn, sem birt var fyrr á þessu ári, er nið­ur­staðan sú að lofts­lags­breyt­ingar eigi þátt í auk­inni tíðni smita af vest­ur­níl­ar­veiru í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsvá

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár