Yazan mjög verkjaður eftir örfáar vikur án heilbrigðisþjónustu

Lík­am­lega van­líð­anin sem Yazan Tamimi, 12 ára gam­all drengur með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn duchenne, sem senda á úr landi, upp­lifði eftir örfárra vikna rof á heil­brigð­is­þjón­ustu í sumar sýnir hve lítið þarf til svo að drengnum hraki, segir for­maður Duchenne á Íslandi: „Þetta er mjög krítískur tími.“

Yazan mjög verkjaður eftir örfáar vikur án heilbrigðisþjónustu
Mótmæli Stór hópur hefur risið upp gegn brott­flutn­ingi Yazans og ein­hver hund­ruð komu saman fyrir framan Alþingi á þriðju­dag og sýndu honum sam­stöðu. Mynd: Golli

Það hefur orðið brota­löm í þjón­ustu við hann í sumar, ég veit ekki af hverju en hann er mjög verkj­aður. Honum líður ekki vel,“ segir Stefán Már Gunn­laugs­son, for­maður Duchenne á Íslandi, um Yazan Tamimi, 12 ára palest­ínskan dreng með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn duchenne. 

Yazan og for­eldrar hans hafa fengið end­an­lega neitun um hæli hér á landi. Þrátt fyrir að hafa ein­ungis stoppað á Spáni á leið sinni hingað, ekki sótt þar um hæli, á að senda fjöl­skyld­una aftur þangað. Vinir og vanda­menn Yazans hér á landi ótt­ast að við brott­flutn­ing­inn geti hann orðið fyrir hnjaski og hafa miklar áhyggjur af rofi í heil­brigð­is­þjón­ustu sem gæti orðið við kom­una til Spánar enda hefur honum ekki verið tryggð heil­brigð­is­þjón­usta þar. Rof á heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir börn með duchenne getur haft nei­kvæðar afleið­ingar á heilsu þeirra, eins og Stefán segir að þegar hafi gerst hjá Yazan. 

„Það sýnir bara að þessi tími á milli þess sem hann fær heil­brigð­is­þjón­ustu má ekki vera langur.“

Krítískur tími

Stefán á sjálfur tví­tugan son með duchenne og þekkir það því af eigin raun að sjá barnið sitt veikj­ast af sjúk­dómnum. Hann bendir á að á Yazans aldri, 12 ára, raun­ger­ist sjúk­dóm­ur­inn hratt. 

„Þetta er mjög krítískur tími þegar þeir eru á þessum aldri, þessir strákar, það er svo mikið að ger­ast í þessum sjúk­dómi. Þeir eru að fara í hjóla­stól, lapp­irnar krepp­ast og það er að mörgu að huga,“ segir Stefán. „Venju­legt fólk á alveg nóg með þetta, að horfa á barnið sitt fara í hjóla­stól.“

„Finnst okkur bara í lagi að senda barn með fötlun út á guð og gadd­inn? Hvað er þá næst í lagi?“

Duchenne á Íslandi eru á meðal fjöl­margra sam­taka fatl­aðs fólks sem hafa lýst yfir and­stöðu við brott­flutn­ing Yazans. Stefán segir að stuðn­ings­fólk Yazans hafi reynt að fá svör um það hvenær og hvort Yazan fái þjón­ustu á Spáni og hvernig brott­flutn­ingi hans verði háttað án árang­urs. 

„Samkvæmt okkar heim­ildum þá geta þeir bara flutt hann út, tekið af honum hjóla­stól­inn og skilið hann eftir á flug­vell­inum. Þau hafa engar skyldur gagn­vart honum þegar hann er kom­inn til Spánar. Hann er algjör­lega á ábyrgð yfir­valda á Spáni,“ segir Stefán. „Þetta er það sem við hjá duchenne-sam­tök­unum höfum áhyggjur af, erum við að senda barn með fötlun til Spánar sem fer á göt­una?“

Hvað er þá í lagi?

Stuðn­ings­fólk Yazans kallar sig Vini Yazans og hefur hóp­ur­inn ítrekað komið saman og mót­mælt fyr­ir­hug­uðum brott­flutn­ingi, yfir 600 manns síð­degis á þriðju­dag. Það virð­ist þó ekki hafa haft áhrif á stjórn­völd og afstöðu þeirra til hæl­is­um­sóknar Yazans enn sem komið er.

Finnst þér stjórn­völd vera að hlusta? 

„Ég held að þegar fólk segir að það geti ekki gert neitt þá er það ærandi þögn. Þetta er full­komið aðgerða­leysi stjórn­mála­manna, eng­inn getur gert neitt eða gerir neitt,“ segir Stefán. „Maður verður svo­lítið hugsi yfir þessu, finnst okkur bara í lagi að senda barn með fötlun út á guð og gadd­inn? Hvað er þá næst í lagi?“

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Nú finnst örugglega einhverjum að ég taki stórt upp í mig og sé kannski ósmekklegur en ég læt spurninguna vaða. Hvenær tókum við aftur upp dauðarefsingu? Því það er það sem við erum að gera þessu barni.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Aðgerðarleysi stjórnmálamanna lýsir sér á flestum sviðum.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár