„Þetta er árás á landið“

Jón Sig­ur­jóns­son, Hús­vík­ingur á níræð­is­aldri, segir jarð­vinnslu í Saltvík­ur­hlíðum vera árás á landið. Þar hefur mólendi hefur verið rist upp til að rækta kolefn­is­skóg. „Hús­vík­ingar fengu engar upp­lýs­ingar um hvað var á seyði þarna,“ segir hann.

„Þetta er árás á landið“
Jón Sig­ur­jóns­son við umrætt land­svæði. „Við erum hérna í nokkra ára­tugi. Þessi kyn­slóð sem er hérna hún hefur ekk­ert leyfi til að eyði­leggja svona vel gróið og algróið land,“ segir hann. Mynd: Áskell Jónsson

Mikil umræða hefur verið síð­ustu daga um ástand á stóru landi ætlað skóg­rækt fyrir ofan Saltvík sunnan við Húsavík. Þar stendur til að rækta þar 290 þús­und tré á 160 hekt­ara svæði. Nú þegar hefur jarð­vinnsla farið fram á 97 hektörum.

Landið var mjög gróið og rista þurfti því upp til að kom­ast í mold­ina til gróð­ur­setn­ingar. Þetta hefur sætt tals­verðri gagn­rýni.

„Þetta er árás á landið, hrein­lega. Það er ekk­ert hægt að nefna það öðru nafni,“ segir Jón Sig­ur­jóns­son sem er Hús­vík­ingur á miðjum níræð­is­aldri. Hann hefur sótt land­svæðið heim frá því hann var barn og þekkir vel til.

Jón segir að skera hafi þurft landið í sundur, í gegnum þykka gróð­ur­þekju til að koma plöntum í mold­ina. Þessu líkir Jón við rassíu.  „Þeir þurftu að gera rásir til að koma plönt­unum niður í mold. Annars hefðu þær kafnað í gróðri.“ Hann veltir því fyrir sér hvort betra hefði …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (14)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þóra Gunnarsdóttir skrifaði
    Getur þetta Yggdrasill Carbon fólk ekki lagað þetta eins og hægt er og tekið burt þetta Rússalerki?
    1
  • Valdimar Heimir Lárusson skrifaði
    Þarna virðist leyfilegt að plægja upp og eyðileggja gróðurlendi án þess að nokkur lyfti fingri. Á sama tíma verður allt vitlaust þegar einhver spólar í hringi á sprengisandi og ef í hann næst liggja við sektir. Ég er ekki að mæla utanvegaakstri bót en ég held að glæpurinn í Saltvík sé miklu verri.
    3
  • GG
    Guðmundur Guðmundsson skrifaði
    Yggdrasill er fyrirtæki í grænþvotti og ekki hægt að búast við neinu öðru frá þeim en hvað með sveitarstjórnina. Ber hún ekki ábyrgð? Þau hunsuðu álit sérfræðinga og sömdu við þvottamaskínu um nákvæmlega þessa framkvæmd. Hvað hugsa kjósendur þeirra?
    3
  • ETK
    Eysteinn T. Kristinsson skrifaði
    Hvaða væl er þetta eiginlega? Þetta hverfur allt undir skóg hvort sem er. Það er eins og enginn megi gera neitt lengur.
    Þetta er ekki nálægt sama leveli og vitleysan þegar það átti að bjarga heiminum með því að sturta trjákurli í sjóinn.
    -3
    • GG
      Guðmundur Guðmundsson skrifaði
      Er það sérstakt réttlætismál að mega sólunda fjármunum í e-ð rugl og skemma umhverfið í leiðinni? Ertu nokkuð í sveitarstjórn e-s staðar?
      4
  • Jóhanna Garðarsdóttir skrifaði
    Grein eftir Önna Guðrúnu Þórhallsdóttur, Prófessor Landbúnaðarháskóla Íslands
    Athyglinar verð lesnig þrátt fyrir að hafa verið skrifuð fyrir 6 árum.
    https://www.bbl.is/skodun/lesendaryni/skograekt-%E2%80%93-er-hun-retta-framlag-islands-til-loftslagsmala
    2
  • Jóhanna Garðarsdóttir skrifaði
    Hefur einhver reiknað hvað íslenskur heiðargróður losar mikið af koltvísýringi á hálfri öld???
    Mæli með að lesa grein um hvort það sé réttmæti að rækta skóga á norðurslóðum: https://www.bbl.is/skodun/lesendaryni/skograekt-%E2%80%93-er-hun-retta-framlag-islands-til-loftslagsmala
    3
    • GG
      Guðmundur Guðmundsson skrifaði
      Mjög athyglisverð grein.

      Í niðurlagi segir: "Vegna þess sem að ofan greinir verður að endurskoða þær hugmyndir að planta skógi á Íslandi til að vinna á móti hlýnun jarðar – hið sanna er trúlega að hún gerir þvert hið öfuga – AÐ SKÓGRÆKT Á NORÐURSLÓÐUM, ÞAR Á MEÐAL ÍSLANDI, LEIÐI TIL AUKINNAR HLÝNUNAR JARÐAR [leturbreyting GG]."

      Ég reikna ekki með að eigendur Yggdrasils hafi af þessu minnstu áhyggjur - á með þeir fá borgað og sennilega kemur ekkert af viti frá sveitarstjórninni í ljósi þess hverjir skipa meirihlutann.
      4
  • PS
    Pétur Sigurgunnarsson skrifaði
    Jón Logi, eigendur Yggdrasill carbon eru David Jakob Blumer fæddur 1968 og er skráður fyrir 28,33% hlutafjár og Hilmar Gunnlaugsson fæddur 1969 og er skráður fyrir 28,33% hlutafjár.
    Það er á huldu hver á 43,34%
    3
    • GG
      Guðmundur Guðmundsson skrifaði
      Hvernig tengist þessi mannskapur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki sem mynda meirihlutann?
      1
    • KB
      Kristinn Björnsson skrifaði
      Hver á landið þar sem þetta hervirki gegn náttúrinni var unnið á?
      1
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Mér finnst vanta í þessa frétt grunn upplýsingar. T.d. hverjir eru eigendur Yggdrasill carbon sem munu væntanlega hagnast á hervirkinu þegar þar að kemur. Hver á umrætt land , er það í eigu fyrirtækisins eða er það í eigu sveitarfélagsins, eða annarra og fengu þeir afnotarétt á landinu. Þessar upplýsingar hefðu gjarnan mátt koma fram.
    9
  • Þóra Gunnarsdóttir skrifaði
    Miklir snillingar þarna hjá Yggdrasil.
    0
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Tuddar þessi Yggdrasil drasli.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár