Drápu tvíburana á meðan faðirinn fór að ná í fæðingarvottorðin

Mohammed Abu Al-Qumsan var nýbú­inn að ná í fæð­ing­ar­vott­orð fyrir nýfædda tví­bura sína þegar hann komst að því að þeir hefðu verið drepnir ásamt eig­in­konu hans og móður hennar í árás Ísra­els­hers á íbúð sem fjöl­skyldan hafði flúið í á Gazasvæðinu.

Drápu tvíburana á meðan faðirinn fór að ná í fæðingarvottorðin
Mohammed heldur hér á fæð­ing­ar­vott­orðum tví­bu­r­anna sinna. Mynd: Ashraf Amra/AFP

Mohammed Abu Al-Qumsan var nýbak­aður tví­burafaðir. Hann var nýbú­inn að ná í fæð­ing­ar­vott­orð fyrir tví­burana sína. Þetta átti að vera gleði­stund. En samt sat hann og grét í lík­húsi í byrjun viku, veif­andi fæð­ing­ar­vott­orð­unum. Annar maður sat við hlið hans og reyndi að hugga hinn nýbak­aða föður sem hafði á einu augna­bliki orðið ekk­ill. 

Reuters greinir frá.

Á meðan Mohammed var að ná í fæð­ing­ar­vott­orðin fyrir tví­burana sem voru fjög­urra daga gamlir gerði Ísra­els­her árás á hús fjöl­skyld­unnar á Gazasvæðinu. Inni í lík­hús­inu sem Mohammed grét í voru því ein­ungis kaldir lík­amar eig­in­konu hans, barn­anna hans og tengda­móður. Andar þeirra voru horfnir. 

„Ég hafði ekki einu sinni tíma til þess að fagna fæð­ingu tví­bu­r­anna okkar,“ sagði Mohammed við BBC.

Mohammed hafði þurft að bera börnin sín, dreng­inn Asser og stúlk­una Ayssel, af yfir­fullri bráða­mót­tök­unni í miðbæ Gaza og út í bíl til þess að koma þeim í lík­húsið. Slík sjón er algeng á Gaza þar sem um 15.000 börn hafa verið drepin eða týnt lífi vegna hörmu­legra aðstæðna á Gaza síðan árásir Ísra­els­hers hófust. Graf­reitur barna, hefur svæðið verið kallað, og segir heil­brigð­is­ráðu­neyti Gaza að 115 ung­börn hafi bæði fæðst og verið drepin í stríð­inu.

„Í dag var það skráð í sögu­bæk­urnar að her­námið hefur beinst að nýfæddum börnum“
Khalil al-Daqran
læknir á Gaza

Tíu mán­uðum eftir að stríðið braust út hafa árásir Ísra­els­hers og mik­ill skortur á lyfjum, mat og hreinu vatni kné­sett einn þétt­býlasta stað heims. 

Greinir á um virðingu við almenna borgara

Karl­maður baðst fyrir á meðan börnin voru borin út í bíl og mann­fjöldi safn­að­ist saman og fylgd­ist með syrgj­andi ekkl­inum af svölum bráða­mót­tök­unnar. 

„Í dag var það skráð í sögu­bæk­urnar að her­námið hefur beinst að nýfæddum börnum sem voru varla orðin fjög­urra daga gömul,“ sagði sjúkra­hús­lækn­ir­inn Khalil al-Daqran við Reuters. 

Ísraelsk stjórn­völd hafa sagst ganga langt til þess að forð­ast mann­fall óbreyttra borg­ara og saka erki­fj­endur sína í Hamas um að hafa beitt almennum borg­urum sem skjöldum. Því hafa Hamas sam­tökin neitað. 

Árásir Ísra­els­hers á Gazasvæðið hófust af miklum þunga eftir að Hamas-liðar fóru yfir landa­mærin sjö­unda októ­ber síð­ast­lið­inn, drápu um 1.200 manns og tóku yfir 250 í gísl­ingu, sam­kvæmt tölum frá ísra­elskum stjórn­völdum. 

Viðbrögð Ísra­els­hers voru árásir á Gazasvæðið sem hafa drepið næstum 40.000 manns og sært fleiri en 92.000, sam­kvæmt ísra­elskum tölum. Þá hafa þessar árásir lagt stóran hluta Gaza í rúst og sent stærstan hluta íbúa á flótta.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Ætli Ísraelsmenn hafi ekki vitað af árás Hamas áður, nóg vita þeir um hernaðarátök.
    Þeir eiga ekkert land þarna , það eiga Palestínumenn
    4
  • Eyþór Dagur skrifaði
    Hryllingur. Á meðan stjórnendur Hamas og yfirmenn lifa í vellystingum í nágrannalöndum, líður fólkið fyrir ákvarðanir þeirra og afleiðingar 7. októbers. Það að sumt fólk hér á landi sjái ekki í gegnum þessa siðblindu menn og það hvernig Hamas fer með eigin íbúa er svakalega sorglegt. Peningarnir fara ekki í heilbrigðisþjónustu, menntun eða innviði. Þeir fara í vopn, jarðgangagerð fyrir næstu innrás í ísrael og allt annað en þeir ættu að fara í. Ef einhver ætlar að halda því fram að ef Ísrael þurrkast út eða Palestína verði ríki með sömu landamæri og einhverjir barnalegir aðilar láta sig dreyma um, muni breyta lífsgæðum og hamingju palestínufólks, þá er hinn sá sami mjög naívur eða bara heimskur. Ef Ísrael væri ekki lengur til, myndu lífsgæðin þarna ekkert batna. Stjórnendur í Palestínu eru ekki að hugsa um hag fólksins síns. Þeir eru að hugsa um eigin hag og hatur á Ísrael. Stór munur þar á.
    -14
    • Guðrún Ingimundardottir skrifaði
      Hvaðan hefur þú þessar upplýsingar. Hefur þú búið þarna ? Það hef ég og hef skömm á svona skrifum.
      10
    • ÞTÞ
      Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
      Trúir þú virkilega öllum lygunum og þvæluni sem giðingar, usa og fleiri hér á vesturlöndum dæla yfir okkur. Heldu þú virkilega að usa hefði ekki haldið áfram að drepa forystumenn Hamas ef þeir væru út um alt. Þeir drápu tvo eða þrjá heldur þú að þeir hafi bara hætt þar
      af því að þeir nentu ekki meir?
      0
  • KM
    Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Það er ekki gott fyrir blessað fólkið sem býr í Austurlöndum nær að þurfa að ganga í gegnum þessar hörmungar sem eru þarna í gangi því má ég vera mikið þakklát fyrir það að búa einmit á islandi þrátt fyrir allt og allt hér ríkir þó friður og engin svæsin vopnuð átök
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvenær er komið nóg ? Er ekkert til sem heitir heilbrigð hugsun ?
    5
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    40.000 manns látin, það er svipað og ef allir íbúar Akureyrar og Garðabæjar hefðu verið drepin. Ætli Bjarni Ben myndi kalla það árás?
    8
    • ÞTÞ
      Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
      Þú meinar "40000 mans myrt." Því þetta eru fjöldamorð. Þegar sprengjur eru látnar dynja á vopnlausufólki og það drepið í tugþúsunda tali þá eru það fjöldamorð og glæpamennirnir sem að því standa morðingjar.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár