Fjöldi presta „óskar nafnleyndar“ vegna umsókna

Tuttugu og tvær umsóknir hafa borist þjóð­kirkj­unni vegna fjög­urra presta­kalla þar sem aug­lýst er eftir prestum til þjón­ustu. Á vef kirkj­unnar eru hins vegar aðeins birt nöfn átta umsækj­enda þar sem hinir óska nafn­leyndar. Heimild til þessa má rekja til breyt­inga á lögum um þjóð­kirkj­una en sam­kvæmt þeim eru prestar ekki lengur opin­berir starfs­menn.

Fjöldi presta „óskar nafnleyndar“ vegna umsókna
Starfs­reglum þjóð­kirkj­unnar var breytt í kjöl­far laga­legs aðskiln­aðs ríkis og kirkju þannig að nú geta prestar óskað nafn­leyndar þegar þeir sækja um störf innan kirkj­unnar. Mynd: Shutterstock

Biskup Íslands óskaði nýlega eftir presti til þjón­ustu við Hafn­ar­fjarð­ar­presta­kall í Kjal­ar­ness­pró­fasts­dæmi. Miðað er við að við­kom­andi geti hafið störf 1. októ­ber n.k.
Tíu umsóknir bár­ust:
Sr. Dagur Fannar Magn­ús­son
Bjarki Geirdal Guð­finns­son, mag. Theol.
Átta umsækj­endur óska nafn­leyndar.“

Þetta kemur fram í frétt á vef þjóð­kirkj­unnar. Þar eru þrjár aðrar fréttir þar sem óskað eftir prestum til þjón­ustu.

Fram kemur að fimm umsóknir hafi borist vegna þjón­ustu við Skál­holts­presta­kall. Séra Arnaldur Máni Finnsson er einn umsækj­enda en hinir fjórir óska nafn­leyndar.

Fimm umsóknir bár­ust einnig vegna Breiða­bóls­stað­ar­presta­kalls. Séra Jóhanna Magn­ús­dóttir og séra Kristján Arason sækja um stöð­una en þrír umsækj­endur óska nafn­leyndar.

Þá bár­ust tvær umsóknir vegna þjón­ustu við Vík­ur­presta­kall. Séra Jóhanna Magn­ús­dóttir sækir um stöð­una og einn óskar nafn­leyndar.

Ekki lengur starfsfólk ríkisins

Veiga­mikil breyt­ing varð á þjóð­kirkj­unni þegar ný heild­ar­lög um hana voru sam­þykkt á Alþingi fyrir þremur árum, breyt­ing­arnar sem urðu með gild­is­töku þeirra miða …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Átta umsækjendur óska nafnleyndar."
    Það getur ekki verið skemmtilegt að snúa tilbaka í gamla brauðið eftir að hafa verið niðurlægður í prestskosningum.
    0
  • KM
    Kristjana Magnusdottir skrifaði
    AF HVERJU FÆ EG ÞÁ EKKI ALLT EFNI SEM ER Í BLAÐINU SEM ÞIÐ BJÓÐIÐ UPP Á FYRST EG ER I FULLRI ÁSKRIFT OG LIKA Á VEFNUM??ER FÆDD 31 ÁGÚST 1943 SVO EG ER EKKI SMÁBARN LENGUR OG EF EG VÆRI VIÐKVÆM SÁL ÞÁ VÆRI EG FYRIR LÖNGU ORÐIN VITSKERT MEÐ ÖLLU EN ER ÞÓ MEÐ FULLU VITI ÞÓTT EG SE KOMIN VEL A ALDUR OG MER ER ALVEG SAMA HVAÐ AÐRIR SEGJA UM ÞAÐ
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár