Stefndi að því í fimmtán ár að verða goði

Ása­trú­ar­fé­lagið hélt þing­blót á Þing­völlum á Þórsdegi í 10. viku sum­ars. Blótið var hátíð­ar­blót með inn­setn­ingu tveggja nýrra goða í emb­ætti, þeirra Önnu Leifar Auðar Elídóttur og Guð­laugar Elísa­betar Ólafs­dóttur. Þær tala hér um ása­trúna, sögu sína henni tengda og nátt­úr­una.

Stefndi að því í fimmtán ár að verða goði

Sólin skein þetta sum­ar­kvöld. Þing­vellir sjálfir eins og risa­stór leik­mynd, enda sumir ása­trú­ar­menn klæddir í ævin­týra­legan klæðnað sem var eins og frá fyrri öldum. Safnast var saman og síðan gekk hóp­ur­inn með fána­bera í broddi fylk­ingar. Fánarnir lit­skrúð­ugir með myndum af land­vætt­unum. Gengið var í Almanna­gjá og tendraði einn í hópnum eld við Lögberg. Síðan hófst athöfnin. Hilmar Örn Hilm­ars­son alls­herj­ar­goði tal­aði og vígði goð­ana tvo og svo flutti einn mað­ur­inn í félag­inu erindi úr Völuspá. 

Hljóðs bið eg allar 
helgar kindir, 
meiri og minni 
mögu Heimdallar. 
Viltu að eg, Valföður, 
vel fyr telja 
forn spjöll fira, 
þau er fremst um man.

Íslenski fán­inn blakti á fána­stöng­inni þar rétt hjá. Og blám­inn í fán­anum virt­ist renna saman við blá­mann á himn­inum þetta bjarta sum­ar­kvöld. 

„Mér fannst þetta vera svo hátíð­legt. Mér fannst þetta vera sér­stak­lega hátíð­leg stund,“ segir Anna Leif Auðar Elídóttir Leir­ár­goði, en hún á jörð­ina Leirá í Borg­ar­firði …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár