Ræddi fyrirtæki föður síns í ríkisstjórn

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir ráð­herra ræddi netárás á Morg­un­blaðið á rík­is­stjórn­ar­fundi og hvort net­ör­ygg­is­sveit rík­is­ins ætti að koma að örygg­is­málum fjöl­mið­ils­ins. Faðir hennar er stjórn­ar­for­maður útgáfu­fyr­ir­tækis Morg­un­blaðs­ins.

Ræddi fyrirtæki föður síns í ríkisstjórn
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Ráðherra teng­ist Morg­un­blað­inu en ræddi fyr­ir­tækið sér­stak­lega á rík­is­stjórn­ar­fundi. Mynd: Golli

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, há­skóla-, iðn­aðar- og ný­sköp­un­ar­ráð­herra, fór yfir stöðu Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, á rík­is­stjórn­ar­fundi á þriðju­dags­morgun og lagði til stuðn­ing rík­is­ins þrátt fyrir fjöl­skyldu­tengsl sín við fjöl­mið­il­inn. Morg­un­blaðið varð fyrir netárás á sunnu­dag og voru gögn fjöl­mið­ils­ins tekin í gísl­ingu.

Sagði ráð­herra að skoða þyrfti hvort CERT-IS, netör­ygg­is­sveit rík­is­ins, myndi hafa beina aðkomu að netör­ygg­is­mál­um fjöl­miðla, að því fram kemur í frétt mbl.is, og hvort skrá ætti fjöl­miðla sem mik­il­væga inn­viði. „Það er eitt­hvað sem ég tel mik­il­vægt að skoða, hvort fjöl­miðlar ættu að heyra und­ir slíka þjón­ustu,“ er haft eftir henni.

„[A]ð ráð­herra skuli [...] beita sér fyrir mál­efnum ein­stakra fyr­ir­tækja sem eru svo nátengd henni og útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins er“
Björn Valur Gíslason

Björn Valur Gíslason, fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna, sagði í færslu á Facebook að fram­ganga Áslaugar Örnu í mál­inu ork­aði tví­mælis. „Annars vegar sú hug­mynd að ríkið eigi að koma að net­ör­ygg­is­málum einka­fyr­ir­tækja sem telj­ast tæp­lega til þjóð­hags­legra mik­il­vægra inn­viða og hitt að ráð­herra skuli á rík­is­stjórn­ar­fundi ræða um og beita sér fyrir mál­efnum ein­stakra fyr­ir­tækja sem eru svo nátengd henni og útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins er,“ skrif­aði Björn Valur.

Tengsl fjölskyldu og samstarfsmanna við Morgunblaðið

Faðir Áslaugar Örnu, Sig­ur­björn Magn­ús­son, er stjórn­ar­for­maður Árvakurs og fer fyrir fyr­ir­tæk­inu Legalis sf. sem á 15 pró­senta hlut í Morg­un­blað­inu. Sjálf vann Áslaug Arna sem blaða­maður hjá Morg­un­blað­inu árin 2011 til 2013.

Þá skip­aði hún stjórn­ar­mann Árvakurs, Ásdísi Höllu Braga­dóttur, sem ráðu­neyt­is­stjóra í ráðu­neyti sínu árið 2022. Sat Ásdís Halla í stjórn Árvakurs í fjölda mán­aða eftir að hún tók við sem ráðu­neyt­is­stjóri þrátt fyrir að ráðu­neyt­is­stjórum sé óheim­ilt sam­kvæmt lögum að gegna auka­störfum sam­hliða störfum í Stjórn­ar­ráði Íslands. 

Umboðs­maður Alþingis komst í fram­hald­inu að þeirri nið­ur­stöðu að Áslaugu Örnu hefði verið óheim­ilt að setja Ásdísi Höllu sem ráðu­neyt­is­stjóra til þriggja mán­aða án aug­lýs­ingar áður en hún var skipuð í emb­ættið. Bæði Ásdís Halla og Sig­ur­björn hafa verið sam­verka­menn Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, útgerð­ar­konu og eins stærsta eig­anda Morg­un­blaðs­ins, í fyr­ir­tækjum sem starfa að heima­þjón­ustu og sjáv­ar­út­vegi.

Grafalvarleg staða

Netárásin á Morg­un­blaðið átti sér stað á sunnu­dag og lá vefur blaðs­ins, mbl.is, niðri í um þrjár klukku­stundir. Þá var ekki hægt að vinna í rit­stjórn­ar­kerfi blaðs­ins og útsend­ingar útvarps­stöðv­ar­innar K100 lágu niðri, að því mbl.is greindi frá.

Úlfar Ragn­ars­son, for­stöðu­maður upp­lýs­inga­tækni­sviðs Árvak­urs, sagði að rúss­neskur hópur sem kallar sig Akira hefði staðið að baki árásinni og að gríð­ar­legt magn gagna hefði verið tekið í gísl­ingu. „Staðan er grafal­var­leg og eig­in­lega eins slæm og hún get­ur orðið,“ sagði Úlfar.

Samstarf í netöryggismálum

„Við erum að vinna að því að koma af stað sam­starfs­vett­vangi op­in­berra aðila og at­vinnu­lífs­ins um netör­yggi nú í haust,“ sagði Áslaug Arna í við­tali við Morg­un­blaðið. „Þetta er liður af þeim aðgerðum sem við höf­um boðað til að stór­efla netör­yggi á Íslandi. Part­ur af því er að bera sam­an stjórn­skip­an netör­ygg­is­mála á Íslandi við Norður­lönd­in.“

Hún sagði mik­il­vægt að efla sam­starf og sam­hæf­ingu stofn­anna og at­vinnu­lífs í mála­flokkn­um. „Ég held að þessi sam­starfs­vett­vang­ur muni ná ut­an­um marg­ar af þeim áskor­un­um sem verið er að lýsa gagn­vart upp­lýs­inga­skipt­um, vit­und­ar­vakn­ingu og áhættu­mati.“

Kjósa
98
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Hun a að segja af ser tafarlaust og tikast til að biðja þjoðina afsökunar.
    0
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Enn einn gjörspilltur ungi peningavaldsinns á Íslandi.
    0
  • EK
    Elísabet Kjárr skrifaði
    Óheimilar aðgerðir eru bara óheppilegar og engin viðurlög. Alveg magnað.
    1
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Talað var um þessa netáras á mbl eins og að þetta væri árás á lýðræðið.
    En það er ekki talað um árás á lýðræðið þegar mbl er kostaður áróðurspési af stórútgerðinni sem vellur yfir landsmenn alla daga ársins.
    15
  • Anna Á. skrifaði
    Eins og svo mörg önnur dæmi, þá sýnir þetta enn og aftur að sjálfstæðismenn telja sig vera réttborin aðal Íslands og telja sig geta valsað hér um allt eins og þeir eigi þetta allt saman.
    21
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Í nágrannalöndunum teldist ráðherrann vanhæf til að fjalla um þetta mál vegna ættartengsla.

    Ísland er YNDISLEGT land :-) :-) :-)
    23
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár