Tilkynntu um brotthvarf Ásdísar Höllu úr stjórn Árvakurs í gær

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá fyr­ir­tækja­skrá Skatts­ins var ný stjórn Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, skipuð án Ásdísar Höllu Braga­dóttur ráðu­neyt­is­stjóra 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Það er mun síðar en sagði í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar til ráð­herra. Til­kynn­ingin um breytta stjórn var ekki skráð fyrr en í gær.

Tilkynntu um brotthvarf Ásdísar Höllu úr stjórn Árvakurs í gær
Ráðu­neyt­is­stjóri til 10 mán­aða Ásdís Halla var settur ráðu­neyt­is­stjóri 1. des­em­ber á síð­asta ári og síðan skipuð eftir aug­lýs­ingu og umsókn­ar­ferli í apríl síð­ast­liðnum. Allan þann tíma var hún skráð í stjórn Árvakurs, sem er þvert á lög um auka­störf æðstu emb­ætt­is­manna og ráð­herra.

Ásdís Halla Braga­dóttir, ráðu­neyt­is­stjóri í háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti, er hætt í stjórn Árvakurs. Til­kynn­ing þess efnis barst fyr­ir­tækja­skrá Skatts­ins í dag, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Creditinfo. Samkvæmt þeim var ný stjórn Árvakurs, sem gefur út Morg­un­blaðið, skipuð 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þetta stang­ast á við svar aðstoð­ar­konu Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur ráð­herra um auka­störf ráðu­neyt­is­stjór­ans. 

Stundin sendi ráð­herra fyr­ir­spurn 28. sept­em­ber síð­ast­lið­inn um auka­störf Ásdísar Höllu, en lög banna auka­störf æðstu emb­ætt­is­manna og ráð­herra. Svarið barst degi síðar og þar sagði: „Aðal­fundur Árvakurs kaus nýja stjórn sl. vor og Ásdís Halla Braga­dóttir er ekki í stjórn­inni.“ Fjallað var svo um stjórn­ar­setu Ásdísar Höllu í Árvakri og fleiri fyr­ir­tækjum í tölu­blaði Stund­ar­innar sem kom út 14. októ­ber og í vef­út­gáfu tveimur dögum síðar. 

Ekkert hafði verið tilkynnt

Á þeim tíma­punkti hafði engin til­kynn­ing …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár