Umboðsmaður snuprar Áslaugu Örnu fyrir skipun Ásdísar Höllu

Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, vís­inda-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, var ekki heim­ilt að setja Ásdísi Höllu Braga­dóttur í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í nýju ráðu­neyti. Skipunin var til þriggja mán­aða á meðan emb­ættið var aug­lýst en settur ráðu­neyt­is­stjóri, Ásdís Halla, er meðal umsækj­enda.

Umboðsmaður snuprar Áslaugu Örnu fyrir skipun Ásdísar Höllu
Nýtt ráðu­neyti Áslaug Arna fer fyrir nýju ráðu­neyti sem stofnað var form­lega 1. febr­úar. Mynd: Stundin / JIS

Umboðs­maður Alþingis hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, vís­inda-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráð­herra, hafi ekki haft laga­heim­ild til að setja Ásdísi Höllu Braga­dóttur tíma­bundið í nýtt emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Ráðu­neytið hafði vísað í lög um látna emb­ætt­is­menn máli sínu til stuðn­ings, eitt­hvað sem Skúli Magn­ús­son, umboðs­maður Alþingis, hafnar í nýbirtu áliti á vef emb­ættis síns. 

Skipunin óheimilUmboðs­maður Alþingis hefur kom­ist að því að ekki hafi verið til laga­heim­ild til að skipa Ásdísi Höllu.

Ráðu­neytið hafði borið því við að innan við sól­ar­hringur hefði liðið frá form­legri stofnun ráðu­neyt­is­ins með for­esta­úr­skurði þar til það átti að taka til starfa. Umboðs­maður bendir á í áliti sínu að ráð­herra hefði getað falið öðrum starfs­mönnum ráðu­neyt­is­ins tíma­bundin verk­efni sem nauð­syn­legt væri að sinna og kæmu ann­ars í hlut ráðu­neyt­is­stjóra á meðan skip­un­ar­ferl­inu stæði. 

„Væri það afstaða stjórn­valda að slíkar ráð­staf­anir væru ófull­nægj­andi var þeim einnig í lófa lagið að fresta stofnun hins nýja ráðu­neytis til þess tíma er við­hlít­andi und­ir­bún­ingur fyrir starf­semi þess væri lokið að gættum þeim laga­reglum sem við áttu. Ólögfest sjón­ar­mið um skyldur stjórn­valda til taf­ar­lausra við­bragða gagn­vart yfir­vof­andi utan­að­kom­andi aðstæðum geta því ekki rétt­lætt téða ákvörðun ráð­herra um tíma­bundna setn­ingu ráðu­neyt­is­stjóra án aug­lýs­ingar,“ segir svo í álit­inu. 

Ásdís Halla var upp­haf­lega ráðin til að stýra vinnu við und­ir­bún­ing þessa nýja ráðu­neytis í des­em­ber á síð­asta ári. Þegar ráðu­neytið tók svo til starfa 1. febr­úar síð­ast­lið­inn var hún settur ráðu­neyt­is­stjóri til þriggja mán­aða. Embættið var svo aug­lýst laust til umsóknar í kjöl­farið og er Ásdís Halla meðal umsækj­enda. Leiða má að því líkur að staða hennar sé nokkuð sterk þar sem hún hefur það fram yfir alla aðra umsækj­endur að hafa stýrt þessu nýja ráðu­neyti. Það er þó annar ráðu­neyt­is­stjóri á meðal umsækj­enda, Sig­ríður Auður Arn­ar­dótt­ir, ráðu­neyt­is­stjóri í umhverf­is-, orku- og loft­lags­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Mesta mildi að umboðsmaður skuli ekki hafa snurpað Áslaugu Örnu. Ekki það að Áslaug Arna hefði ekki haft gott af því að vera snurpuð, að maður tali nú ekki um þessa Ásdísi Höllu.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu