„Þetta er hið raunverulega líf“

Yulia El Choumari er sjálf­boða­liði í fata­söfnun Rauða kross­ins fyrir flótta­menn. Hún flúði til Íslands frá Sýrlandi en á yfir höfði sér brott­vísun til Venes­ú­ela. Þrátt fyrir að vera fædd þar hefur hún lítil sem engin tengsl við landið.

Hin 51 árs gamla Yulia El Choumari kom til Íslands haustið 2022. Hún er sýr­lensk en flúði þaðan ofbeldi yfir­valda og stríðs­á­tök í land­inu. Hún setti sig upp á móti stjórn­völdum í Sýrlandi og var því reglu­lega ógnað af yfir­völdum. Hún valdi að flýja til Íslands til að leita að öryggi og kven­rétt­indum sem hún fann ekki í heima­land­inu.

Flúði Venesúela en á að verða send þangað

Yulia er fædd í Venes­ú­ela en fjöl­skylda hennar flutti þaðan til heima­lands­ins, Sýrlands, eftir að hafa lent í vopn­uðu ráni þegar Yulia var tíu ára. Þar bjó Yulia alla ævi og á þar fjögur börn sem nú eru upp­komin.

Sökum þess að vera fædd í Venes­ú­ela, þrátt fyrir að hafa forð­ast landið eftir erf­iðar minn­ingar þaðan, er Yulia með venes­ú­elskt vega­bréf og gat því sótt um hæli á Íslandi. Nú stendur hins vegar til að senda hana þangað frá Íslandi …

Kjósa
65
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttafólk frá Venesúela

Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.
Hafa ekki fengið lendingarleyfi: „Bíðum enn með tilbúnar ferðatöskur”
FréttirFlóttafólk frá Venesúela

Hafa ekki fengið lend­ing­ar­leyfi: „Bíðum enn með til­búnar ferða­töskur”

Flugvél sem átti að flytja venes­ú­elska hæl­is­leit­endur úr landi í lok febr­úar er enn ekki farin af stað. Sumir hæl­is­leit­end­anna voru þegar búnir að pakka í töskur og til­búnir að yfir­gefa landið þegar í ljós kom að Útlend­inga­stofnun hefði ekki fengið lend­ing­ar­leyfi. Þeir lifa nú í bið­stöðu en í Venes­ú­ela gæti beðið þeirra sól­ar­hrings varð­hald.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár