Fleiri stjórnendur á móti krónunni en með henni

Hærra hlut­fall íslenskra stjórn­enda eru vera and­vígir því að ganga í Evr­ópu­sam­bandið en hlynntir. Fleiri úr þeirra hópi vilja samt taka upp evru en að halda íslensku krón­unni.

Fleiri stjórnendur á móti krónunni en með henni

Alls eru 45 pró­sent þeirra stjórn­enda sem svör­uðu nýlegri stjórn­enda­könnun Prósents and­vígir því að íslenska krónan verði fram­tíð­ar­gjald­mið­ill íslensku þjóð­ar­innar. Um 39 pró­sent sögð­ust hlynnt því en 16 pró­sent að þeir væru ekki með mót­aða skoðun á mál­inu. 

Þegar svörin eru brotin niður eftir atvinnu­greinum kemur í ljós að það voru ein­ungis stjórn­endur í heild- og smá­sölu­verslun og við­gerðum á vél­knúnum öku­tækjum sem voru í meiri­hluta hlynntir íslensku krón­unni sem gjald­miðli, þótt þar skeiki ekki miklu. Hjá rekstr­ar­að­ilum veit­inga- og gisti­staða sögð­ust 52 pró­sent vera and­vígir því að halda krón­unni en 26 pró­sent voru hlynntir því. 

Þegar sami hópur var spurður hversu lík­legt hann teldi að íslenska krónan yrði fram­tíð­ar­gjald­mið­ill þjóð­ar­innar kom hins vegar í ljós að 55 pró­sent töldu það lík­legt, og ein­ungis 32 pró­sent að það væri ólík­legt. 

Þrátt fyrir að vilja nýjan gjald­miðil þá treystir stór hluti þeirra stjórn­enda sem svar­aði könn­un­inni Seðla­banka Íslands …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Henda helvítis krónunni sem allra fyrst þó fyrr hefði verið
    0
  • Freyr Barkarson skrifaði
    Þeir sem munu tapa mest á aukinni samkeppni við að ganga i Evrópusambandið eru augljosleg á moti aðild, þ.e. heildsalar, smásalar, fjarmala- og tryggingarfélög.
    5
  • TT
    Týr Thorarinsson skrifaði
    ESB í þjóðaratkvæði strax!
    5
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Vilja evru en ekki ESB. Vilja bara tína nammikúlurnar af kökunni. Var ekki verið að spyrja fullorðið fólk sem rekur fyrirtæki?
    8
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Evra án ESB-aðildar er ekki raunhæfur kostur.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár