Fjöldi ríkja í Vestur-Evrópu sem viðurkenna Palestínu tvöfaldast

Noregur, Spánn og Írland til­kynntu í dag að þau ætl­uðu að við­ur­kenna sjálf­stæði Palest­ínu. Með því verða þau ríki í Vestur-Evrópu sem við­ur­kenna Palest­ínu orðin fimm. Ísland var fyrst þeirra til að gera það árið 2011.

Fjöldi ríkja í Vestur-Evrópu sem viðurkenna Palestínu tvöfaldast
Mótmæli Mikið hefur verið mót­mælt til stuðn­ings Palest­ínu í mið­borg­inni. Mynd: Golli

Írland, Noregur og Spánn við­ur­kenndu í dag sjálf­stæði Palest­ínu. Mun ákvörðun ríkj­anna þriggja taka gildi þann 28. maí næst­kom­andi. 

Nú hafa fimm ríki Vestur-Evrópu við­ur­kennt sjálf­stæði. En áður höfðu Svíþjóð og Ísland verið þau einu. Alls 143 aðild­ar­ríki að Sam­ein­uðu þjóð­unum hafa við­ur­kennt sjálf­stæði Palest­ínu, þar af níu ríki Evr­ópu­sam­bands­ins.  Norræn ríki utan Íslands og Sví­þjóðar hafa þó átt í stjórn­mála­sam­bandi við stjórn­völd í Palest­ínu þrátt fyrir að við­ur­kenna ekki sjálf­stæði lands­ins. 

Israel Katz, utan­rík­is­ráð­herra Ísraels, hefur gagn­rýnt þró­un­ina harð­lega. Hann hefur lýst því yfir að ákvörðun ríkj­anna að við­ur­kenna sjálf­stæði Palstínu sendi þau skila­boð að hryðju­verk borgi sig. 

Bæði Slóvenía og Malta hafa til­kynnt að löndin íhugi að við­ur­kenna Palest­ínu form­lega að því er segir í umfjöllun BBC um málið.

Alþingi viðurkenndi sjálfstæði Palestínu mótatkvæðalaust

Árið 1988 lýsti Palest­ína yfir sjálf­stæði sínu. Í kjöl­farið við­ur­kenndu 82 ríki stjálf­stæð­is­yf­ir­lýs­ing­una, flest múslima­ríki. Árið 1998 voru þau orðin 102. 

Ísland við­ur­kenndi …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Það merkilega er að ummæli utanríkisráðherra Ísrael eru algjör öfugmæli. Viðurkenning á sjálfstæði Palestínu eru einmitt skilaboð til Ísrael um að hryðjuverk þeirra borgi sig ekki. Gott dæmi er loftárás Ísrael á sendiráð Íran í Damaskus. Það var hrein hryðjuverkaaðgerð, hugsuð til að koma á stríði milli Írans og USA (sem hvorugt ríkið hafði nokkurn áhuga á að láta eftir). Það hefur svo ekki liðið dagur síðan 7. október sem Ísrael hefur ekki framið hryðjuverk gegn íbúum Gaza en einnig gegn palestínumönnum á vesturbakkanum. Hryðjuverkaaðgerðir Ísrael gegn palestínumönnum hafa reyndar verið stöðugt prógram í yfir 75 ár. Vonandi eru vesturlönd að vakna til vitundar um að grenjuskjóðan þarf aðhald í stað meðvirkni og að hún lýgur 99% tímans.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár