Svikahrappar lokka Íslendinga með merkjavöru í farangri annars fólks

Frum­legar en grun­sam­legar aug­lýs­ingar á Facebook undir merkjum Kefla­vík­ur­flug­vallar bjóða Íslend­ingum að kaupa ósóttar ferða­töskur úr óskila­munum í Leifs­stöð sem inni­fela meðal ann­ars Prada-töskur og mynda­vélar.

Svikahrappar lokka Íslendinga með merkjavöru í farangri annars fólks
Farangur til sölu - kostar eina evru Útsmogin svikaflétta dreif­ist með aug­lýs­ingum á Facebook með þeim til­gangi að lokka merkja­vöru­þyrsta Íslend­inga í netið. Mynd: Facebook

„Ég pant­aði tvær ferða­töskur, í annarri fann ég far­tölvu, þó án hleðslu­tækis og með lyk­il­orði, en samt sem áður frá­bært! Ég er ánægður, góður díll að mínu mati,“ skrifar fals­menni á Facebook-síð­una Kefla­vík­ur­flug­völlur. Facebook hefur und­an­farið dreift aug­lýs­ingum undir merkjum alþjóða­flug­vallar Íslend­inga með kosta­boði fyrir lands­menn um að eign­ast far­angur ann­ars fólks.

Á síð­unni eru boðnar til sölu ferða­töskur sem flug­far­þegar eru sagðir hafa skilið eftir á flug­vell­inum og ekki sótt innan sex mán­aða. Gefið er út að verðið á hverri tösku sé aðeins ein evra og sam­kvæmt frá­sögnum fals­menna undir færslu Kefla­vík­ur­flug­vallar eru þar að finna mynda­vélar, far­tölvur og merkja­vörur sem flug­far­þegar hafa ekki sótt. Kosta­boðið er þó sýnd veiði en ekki gefin.

Facebook-síðan var stofnuð árið 2014 og gefur út að tæp­lega fjögur þús­und not­endur hafi gefið henni að með­al­tali 4,97 stjörnur. Jafn­framt eru um 2.800 falskir fylgj­endur að síð­unni, sem eykur trú­verð­ug­leika hennar.

„Tilboðið er frá­bært, þetta er nú þegar þriðja ferða­taskan sem ég panta. Í fyrstu tveimur voru margir hlutir, en verð­mæt­asti hlut­ur­inn var Prada taska. Það verður spenn­andi að sjá hvort ég verði heppin(n) í þetta skipti,“ skrifar annað fals­menni. Þriðja fals­mennið höfðar til góð­mennsku. „Við pönt­uðum nokkra ferða­töskur með eig­in­manni mínum til að gefa til góð­gerð­ar­sam­taka. Fyrir okkur eru þetta ekki miklir pen­ingar, en það mun gera ein­hvern annan ham­ingju­saman! Fólk, gerið góð­verk!“

Þau fals­menni sem veita umsagnir undir færslum flug­vall­ar­ins bera portú­gölsk nöfn. Facebook-síðan Kefla­vík­ur­flug­völlur er með tengsl við aðila í Afr­íku­rík­inu Mósambík, sem áður var portú­gölsk nýlenda. Þegar haft er sam­band við síð­una er reynt að fá not­endur til að skrá sig á vafa­samri vef­síðu. Þar eru upp­diktaðar umsagnir Íslend­inga um það mikla lán sem þeir hefðu orðið fyrir við að kaupa ferða­töskur ann­arra á aðeins eina evru stykkið. Enn sem komið er heldur Facebook áfram dreif­ingu aug­lýs­inga frá fals­síð­unni. Ekki er þó vitað hvort ein­hverjir Íslend­ingar hafi gleypt beitu ódýrrar merkja­vöru úr far­angri ann­arra. Þegar rætt er við stjórn­anda síð­unnar hafnar hann því að um fals sé að ræða. „Nei, þetta er ekki svik. Við seljum á þessu verði vegna þess að vöru­húsin okkar eru yfir­full,“ full­yrðir hann.

Hjá Isavia fékk Heim­ildin þær upp­lýs­ingar að þetta sé í annað skiptið sem umrædd svika­síða fari í loftið, en fyrst gerð­ist að í nóv­em­ber síð­ast­liðnum.

Isavia geti lítið gert í mál­inu þar sem fjölda til­kynn­inga þurfi til Facebook til þess að svika­síðan sé tekin niður.

Farangur sem skil­inn er eftir á Kefla­vík­ur­flug­velli er ekki seldur. Guðjón Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Isavia, lýsir því í sam­tali við Heim­ild­ina hversu erf­ið­lega gengur að fá Facbook til þess að bregð­ast við svika­síðum. Hann segir fólk hafa verið í sam­bandi við Kefla­vík­ur­flug­völl um tösku­söl­una.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Textinn á þessari falstilkynningu er svo arfalélegur, að hver a.m.k. Íslendingur hlýtur að sjá í gegn um prettinn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár