Halla Hrund og Katrín hnífjafnar en með undir fjórðungs fylgi hvor

Halla Tóm­as­dóttir er sá fram­bjóð­andi sem er að bæta hrað­ast við sig fylgi. Nú, 15 dögum fyrir kosn­ingar, er hún komin á sama stað og hún var níu dögum fyrir kosn­ingar 2016. Þá end­aði hún með 27,9 pró­sent atkvæða sem myndi duga til sig­urs eins og sakir standa.

Halla Hrund og Katrín hnífjafnar en með undir fjórðungs fylgi hvor
Bæta við sig Á meðal þeirra fram­bjóð­enda sem mæl­ast nú með tveggja stafa fylgi hafa tveir verið að bæta við sig síð­ustu tæpu tvær vik­urnar. Halla Tóm­as­dóttir er á mik­illi sigl­ingu en Jón Gnarr hefur risið lít­il­lega. Mynd: Golli

Halla Tóm­as­dóttir, for­stjóri B Team, er kom­inn með 11,9 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar. Hún hefur næstum þre­faldað fylgi sitt á tíu dögum og er eini fram­bjóð­and­inn með umtals­vert fylgi sem er að bæta vel við sig síð­ustu daga. Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri er enn sá fram­bjóð­andi sem mælist með mest fylgi en það er nú komið niður í 24,7 pró­sent og hefur ekki mælst minna síðan 26. apríl. Fylgi hennar hefur dalað um rúm­lega sex pró­sentu­stig frá því í byrjun mán­aðar og lækkað milli kosn­inga­spáa í fimm skipti í röð. 

Nær eng­inn munur er nú á Höllu Hrund og Katrínu Jak­obs­dóttur, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sem mælist með 23,6 pró­sent fylgi. Katrínu hefur þó tek­ist að halda sínu fylgi mun stöðugra síð­ustu daga og vikur en Höllu Hrund. Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, er enn í þriðja sæti með 17,8 pró­sent fylgi en stuðn­ingur við hann hefur dalað í tíu af síð­ustu ell­efu kosn­inga­spám og hefur aldrei mælst minni en nú. Jón Gnarr, leik­ari og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, er að mæl­ast á mjög svip­uðum slóðum og Halla Tóm­as­dóttir með 12,3 pró­sent fylgi en það örlar þó á upp­takti í fylg­is­þróun hans. 

Arnar Þór Jónsson, vara­þing­maður og fyrr­ver­andi dóm­ari, er sjötti með 5,3 pró­sent fylgi og Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona mælist með 1,5 pró­sent stuðn­ing. Hinir fimm fram­bjóð­end­urnir mæl­ast sam­an­lagt með 2,8 pró­sent fylgi. 

Meiri fylgisaukning en 2016

Sá for­seti Íslands­sög­unnar sem kos­inn hefur verið með minnstu hlut­falli atkvæða er Vigdís Finn­boga­dóttir þegar hún sigr­aði for­seta­kosn­ing­arnar 1980. Þá fékk hún 33,8 pró­sent atkvæða. Miðað við stöðu mála í kosn­inga­spánni nú mun næsti for­seti að óbreyttu verða kos­inn með mun lægra hlut­falli atkvæða, og jafn­vel með stuðn­ingi minna en fjórð­ungs þjóð­ar­innar. 

Þó verður að taka til­lit til þess að fylgið er enn á tölu­verðri hreyf­ingu og skoð­ana­kann­anir sýna að fjöl­margir kjós­endur eru enn óákveðnir um hvern þeir ætli að kjósa. Miðað við þá þróun sem varð í kosn­ing­unum 2016, þeim síð­ustu sem haldnar hafa verið þar sem nýr for­seti var kos­inn, þá er ekki ósenni­legt að drjúgur hluti kjós­enda sem sér ekki leið fyrir sinn fram­bjóð­anda þegar að kosn­ing­unum kemur ákveði að færa atkvæðið á annan fram­bjóð­anda sem á mögu­leika á sigri og þeim líst betur á en aðra sig­ur­strang­lega. 

Sá fram­bjóð­andi sem naut þeirrar sveiflu hvað mest árið 2016 var einmitt Halla Tóm­as­dóttir, sem er eini fram­bjóð­and­inn nú sem var líka í fram­boði þá. Fylg­is­þróun hennar í ár og fyrir átta árum er raunar með ólík­indum svipuð.

Hún byrj­aði bæði skiptin mjög hægt og með ákaf­lega lítið fylgi. Tæpum þremur vikum fyrir kosn­ingar var hún þá sem nú komin upp í um átta pró­sent fylgi. Nú, þegar fimmtán dagar eru til stefnu, er fylgið komið upp í tólf pró­sent en hún náði ekki þeim áfanga fyrr en níu dögum fyrir kosn­ingar árið 2016. Halla er því að bæta hraðar við sig fylgi nú en þá en hún end­aði með því að fá 27,9 pró­sent atkvæða fyrir átta árum og lenda í öðru sæti á eftir Guðna Th. Jóhann­essyni.

Hvað er kosningaspáin?

Kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar er unnin í sam­starfi við dr. Baldur Héð­ins­son. Hann hefur keyrt kosn­inga­spálíkan sem hann smíð­aði fyrir fyr­ir­renn­ara Heim­ild­ar­innar í öllum kosn­ingum sem fram hafa farið á Íslandi síð­ast­lið­inn ára­tug, og mun gera það í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna einnig.

Líkanið miðar að því að setja upp­lýs­ingar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar reglu­lega í Heim­ild­inni, jafnt á prenti og vef, í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Nokkuð að marka þessar skoðanakannanir er ekki verið að reyna að hafa áhrif með þessu. Svo er það annað er rétt talið upp úr kössum í kosningum á Íslandi spillingin er slík eins og allir vita að það er örugglega "ekkert mál" að kaupa kosningar á Íslandi. T.t. dæmis dreimdi mig þegar Ólafur Ragnar var síðast í framboði að þá væri Jón Ásgeir að telja upp úr kössunum(heilagur andi lýgur ekki) = þýfi úr hruninu notað til að fá niðurstöðu. Miðað við allt hitt sem hægt er að fá keipt ólöglega hjá ríkinu þá er það bara hreinlega alls ekki fjarlægur möguleiki enda landið eitt það spilltasta í heimi þetta voru jú mörg mörg hundruð milljarðar sem þetta lið stal í hruninu og er m.a. búið að kaupa nokkur sakamál eftir hrun með þýfinu einhver hluti af þessum vitleisingum. Við þurfum forseta sem er á móti spillingu stjórnmálastéttarinnar stjórnmálin eru í rusli á Íslandi sérhagsmunagæsla og klíkuskapur og engin virðing borin fyrir hvorki lögum né kjósendum þegar upp er staðið og ekki borin virðing fyrir lífi almennra borgara heldur. Elítan á Íslandi hefur ekki efni á að hneykslast á aftökum almennra borgar í öðrum ríkjum rannsaka þarf líka samspil elítu og fjölmiðla á íslandi frá Geirfinnsmáli til dagsins í dag áberandi þöggun er í gangi og hefur líklega verið í áratugi bara minnst á sum spiillingarmál en ekki önnur
    -2
  • Hef fylgst með Heimildinni að vanda og finnst eins og aðeins sé einn frambjóðandi, en kannski eiga fleiri eftir að fá athygli.
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hef áhuga á að Halla Tómasdóttir svari spurningu um afrakstur Þjóðfundurins í Laugardalhöll, því hún notar orð frá þeim fundi sem sín núna í kosningabaráttu til forseta Íslands? Þjóðfundurinn samþykkti skipan stjórnlagaráðs, sem skildi eftir sig drög að stjórnarskrá ? Hvers vegna hefur Halla Tómasdóttir ekki gert neitt í því máli ?
    1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Samkvæmt spám er útlit fyrir að rúm 30% atkvæða falli dauð. Hver vill greiða dautt atkvæði?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár