Keppst um byggingarlóðir í Mosfellsbæ

Alls 29 til­boð bár­ust í fjórar rað­húsa­lóðir í miðbæ Mos­fells­bæjar.

Keppst um byggingarlóðir í Mosfellsbæ
Á besta stað Rað­hús að Langa­tanga eru á þétt­ing­ar­reit við mið­bæ Mos­fells­bæj­ar í Bjark­ar­holti. Hönn­un hverf­is sem sæk­ir ein­kenni sín í aðliggj­andi gróna byggð, að sögn bæj­ar­ins. Mynd: mos.is

Eign­ar­halds­fé­lagið Luxor ehf. átti hæsta boð í fjórar af sex bygg­ing­ar­lóðum sem Mos­fells­bær bauð nýverið út. Um er að ræða fjórar rað­húsa­lóðir í Langa­tanga á þétt­ing­ar­svæði við miðbæ Mos­fells­bæjar. Lág­marks­verð í hverja og eina þeirra var 28 millj­ónir.

Alls bár­ust 29 til­boð í lóð­irnar fjórar. Luxor bauð hæst í þær allar, eða á bil­inu 35 til 45 millj­ónir, sem er 7 til 17 millj­ónum yfir lág­marks­verði því sem bær­inn aug­lýsti.

Jens Sandholt er eig­andi Luxor sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá Skatts­ins. Hann hefur víð­tæka og  ára­tuga langa reynslu af bygg­inga­fram­kvæmdum og stýrði meðal ann­ars fram­kvæmdum við bygg­ingu Árbæj­ar­laugar og Höfða­bakka­brúar.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár