„Af mínum fyrri samskiptum við Egypta kemur þetta mér ekkert á óvart“

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, starf­aði um tíma fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Hann segir Egypta standa í vegi fyrir því að dval­ar­leyf­is­hafar kom­ist frá Gaza með því að heimta greiðslur. „Því miður hafa Egyptar verið þekktir fyrir svona,“ segir hann.

„Af mínum fyrri samskiptum við Egypta kemur þetta mér ekkert á óvart“
Birgir Þór­ar­ins­son segir íslensk stjórn­völd ekki bera ábyrgð á ástand­inu fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Mynd: Bára Huld Beck

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur heyrt það að Egyptar krefj­ist greiðslna upp á 750 þús­und krónur fyrir full­orðna og 350 þús­und fyrir börn gegn því að hleypa fólki yfir landa­mærin frá Gaza. „Ég fékk þessar upp­lýs­ingar frá fólki sem starfar þarna niður frá. Ég get ekki gefið upp hverjir það eru. Ég hef heyrt hærri tölur líka,“ segir hann í sam­tali við Heim­ild­ina.

Birgir segir Egypta vera þekkta fyrir slíkt verk­lag. „Ég vann á þessu svæði á sínum tíma. Svona eru sam­skipti við Egypta. Það er alveg ljóst að þetta er í gangi núna. Ég hef fengið upp­lýs­ingar um það,“ segir hann. Svipaðar aðstæður hafi verið uppi áður en stríðið braust úr í októ­ber.

„Þegar ég starf­aði þarna voru mörg dæmi um það að þeir vildu fá greiðslur fyrir …

Kjósa
-16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    "Birgir segir Egypta vera þekkta fyrir slíkt verklag."
    Og Birgir er auðvitað þekktur fyrir að sannreyna allar upplýsingar áður en hann deilir þeim ...
    3
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Er hægt að búast við því að eittvað gerist fyrir samfélag manna er erindrekar Íslands sóla sig í Dauðahafinu?
    0
  • GG
    Guðmundur Guðmundsson skrifaði
    Ég trúi því að egypsk stjórnvöld hagi sér með þessum hætti og ég þykist vita að það sé það sem Birgir eigi við. Spilling meðal embættismanna er sjálfsagt landlæg. Egyptar aftur á móti eru auðvitað nákvæmlega eins og annað fólk.
    0
  • SJ
    Sveinbjörg Jónsdóttir skrifaði
    Mér finnst greinin vönduð og upplýsandi og set glöð “ like “ við hana
    Hins vegar finnst mér orð þess manns sem greinin fjallar um umhugsunarefni og myndi ekki setja “ like “ við þau
    Við lesturcá greinum Heimildarinnar horfi ég til spurningarinnar srm spurt er; hvernig finnst þér þessi grein
    5
  • HÞÞ
    Hjalti Þór Þórsson skrifaði
    Úr æviágripi á vef Alþingis:
    "Starfaði hjá Sameinuðu þjóðunum við yfirstjórn UNRWA, Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna, í Miðausturlöndum 2014–2016."
    Kom hvergi fram í fréttinni.
    2
  • Páll Guðfinur Gústafsson skrifaði
    Birgir er sá þingmaðurinn sem sveik kjósendur sína strax eftir kosningar og gekk til liðs við annan stjórnmálaflokk.Mjög svo kristilegt hugarfar. Hann er og verður alltaf ómarktækur í öllu því sem lætur frá sér fara. Eina sem er á hreinu er að Birgir er ílllkvittinn hálfviti og hefur alltaf verið. Viðbjóðslegur einstaklingur, þingsætisþjófur og engu hans orði trúandi.
    9
  • Það er spurningin - að mála sjálfan sig á helgimynd með Kristi - hvað segir það?
    6
  • Guðjon Eiríksson skrifaði
    Frásagnir Birgis af video upptökum vegna árásar Hamas 7. Okt hafa verið hraktar t.d. að fóstur hafi verið skorin úr móðurkviði draga stórlega úr trúverðugleika hans.
    Íslenskir blaðamenn ættu að kynna sér málið og fjalla meira um það.
    Tilvalið fyrir Heimildina.
    9
  • BK
    Breki Karlsson skrifaði
    Afhverju er yfirleitt verið að tala við þennan mann. Hann er haldinn ranghugmyndum á mörgum sviðum.
    19
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Föst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mannorð sjálfboðaliða
FréttirFöst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mann­orð sjálf­boða­liða

Stofn­andi og for­seti Solaris, sem hefur unnið að því að koma dval­ar­leyf­is­höfum frá Gaza til Íslands, segir það „gjör­sam­lega sturlað“ að fylgj­ast með ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands, stofn­unum og þing­fólki sem ýji ítrekað að því að hún og aðrir sjálf­boða­liðar séu að brjóta af sér „og jafn­vel fremja lög­brot í við­leitni okkar til að koma fólki undan þjóð­ern­is­hreins­unum.“
Dvalarleyfishafar senda kvörtun til umboðsmanns Alþingis
FréttirFöst á Gaza

Dval­ar­leyf­is­hafar senda kvörtun til umboðs­manns Alþingis

Móðir og þrjú börn hafa fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu á Íslandi en sitja enn föst á Gaza. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn er dval­ar­leyf­is­hafi á Íslandi. Lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar hefur sent inn kvörtun til umboðs­manns Alþingis. Er þar haldið fram að íslenska ríkið fari á mis við laga­á­kvæði og alþjóð­legar skuld­bind­ingar með aðgerða­leysi sínu við að forða fólki frá stríðs­hrjáðum svæðum á Gaza.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár