Kjaraviðræður sigla í strand – Breiðfylkingin lýsir „djúpum vonbrigðum“ með SA

Breið­fylk­ing stétt­ar­fé­laga segir að Samtök atvinnu­lífs­ins hafi hafnað því að for­sendu­á­kvæði verði í kjara­samn­ingi, sem verji launa­fólk ef mark­mið um lægri verð­bólgu og vexti nást ekki. Í ljósi þess sé tíma­bært að lýsa við­ræður milli deilu­að­ila „árang­urs­lausar“.

Kjaraviðræður sigla í strand – Breiðfylkingin lýsir „djúpum vonbrigðum“ með SA
Fundað stíft Deilu­að­ilar hafa fundað meira og minna sleitu­laust síðan milli jóla og nýárs, án árang­urs. Mynd: Golli

Breið­fylk­ing stærstu lands­sam­banda og stétt­ar­fé­laga á almennum vinnu­mark­aði, sem fara með samn­ings­um­boð fyrir 93 pró­sent þeirra sem starfa á honum, sendi rétt í þessu frá sér til­kynn­ingu þar sem hún  lýsti við­ræður við Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) árang­urs­lausar. „Ásteyt­ing­ar­steinn­inn er for­sendu­á­kvæði um þróun verð­bólgu og vaxta. SA hafa hafnað með öllu að í fjög­urra ára samn­ingi verði for­sendu­á­kvæði til varnar launa­fólki, hafi mark­mið varð­andi verð­bólgu og vexti ekki náðst.“

Í til­kynn­ing­unni segir að allir lang­tíma kjara­samn­ingar á síð­ustu ára­tugum hafi verið und­ir­rit­aðir með for­sendu­á­kvæðum sem heim­ila upp­sögn að upp­fylltum vissum skil­yrðum. SA hafi hins vegar gert kröfu um afnám slíkra for­sendu­á­kvæða í kom­andi kjara­samn­ingi, sem Breið­fylk­ingin segir að sé fáheyrð í kjara­samn­inga­gerð á Íslandi. „Krafan myndi þýða að launa­fólk eitt ber ábyrgð­ina og áhætt­una af afleið­ingum þess ef mark­mið samn­ings nást ekki. Furðu­legt er að SA séu ekki reiðu­búin að festa í lang­tíma­samn­ing þau mark­mið sem sam­tökin sjálf hafa marg­ít­rekað lýst sem algjöru meg­in­mark­miði hans: Að ná niður verð­bólgu og vöxtum. Ef meg­in­mark­mið kjara­samn­ings nást ekki, þá þurfa varnir að vera til staðar fyrir launa­fólk.“

Breið­fylk­ingin lýsir því djúpum von­brigðum með að SA kjósi að sigla við­ræðum í strand vegna þessa atriðis. „Sér­stak­lega er það sorg­legt í ljósi þess að aðilar hafa lagt mikið á sig til að ná saman um hóf­legar launa­hækk­anir og sam­komu­lag varð­andi launa­lið er í meg­in­at­riðum í höfn. Und­ir­ritun kjara­samn­ings var í sjón­máli. Breið­fylk­ingin stendur sam­einuð í kröfum sínum og í ákvörðun sinni um að lýsa við­ræður árang­urs­lausar. Formenn þeirra sam­banda og félaga sem standa að Breið­fylk­ing­unni munu funda saman strax á mánu­dag og nýta tím­ann í milli­tíð­inni til upp­lýs­inga­gjafar og sam­ráðs við sitt bak­land.“

Undir til­kynn­ing­una rita Eiður Stef­áns­son, for­maður samn­inga­nefndar Lands­sam­bands íslenzkra verzlunarmanna, Hilmar Harð­ar­son, for­maður Samiðnar – sam­bands iðn­fé­laga, Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar stétt­ar­fé­lags og Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands Íslands.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ALLTAF ER HÚN ÓSTÖÐUGBARÁTTAN UM BRAUÐIÐ OG VERÐURALLTAF ÞANNIG OG ÞANNIG HEFUR ÞAÐ ALLTAF VERIÐ Í GEGNUM ALDIRNAR OG ÞAÐ BREYTIST LÍTIÐ
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár