Deilan um ráðningu Lúðvíks Arnar: „Á þetta hlusta bara ekki bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins“

Sara Dögg Svan­hild­ar­dóttir, bæj­ar­full­trúi Við­reisnar í Garðabæ, segir að minni­hlut­inn í sveit­ar­fé­lag­inu sé ekki hættur að gagn­rýna ráðn­ingu Lúðvíks Arnar Stein­ars­sonar til bæj­ar­ins. Þóra Hjalte­sted, sem Lúðvík var ráð­inn fram yfir, seg­ist ekki ætla að tjá sig um málið.

Deilan um ráðningu Lúðvíks Arnar: „Á þetta hlusta bara ekki bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins“
Ekki lokið Sara Dögg Svan­hild­ar­dóttir segir að mál­inu um ráðn­ingu Lúðvíks Arnar Stein­ars­sonar til Garða­bæjar sé ekki lokið.

Sara Dögg Svan­hild­ar­dóttir, bæj­ar­full­trúi Við­reisnar í Garðabæ, segir að minni­hlut­inn í bæj­ar­stjórn sveit­ar­fé­lags­ins sé ekki hættur að gagn­rýna ráðn­ingu Lúðvíks Arnar Stein­ars­sonar í starf svið­stjóra fjár­mála- og stjórn­sýslu­sviðs. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með meiri­hluta í bænum og hefur lengi Lúðvík Arnar lengi verið starf­andi innan flokks­ins. Hann var val­inn fram yfir Þóru Hjalte­sted, bæj­ar­rit­ara í Mos­fellsbæ, en í ráðn­ing­ar­ferl­inu stóð valið á milli þeirra. Bæj­ar­stjór­inn, Almar Guð­munds­son, vék sæti í ráðn­ing­ar­ferl­inu en þeir Lúðvík Örn eru vinir. 

Sara Dögg segir við Heim­ild­ina að bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins virð­ist ekki skilja gagn­rýni minni­hlut­ans á ráðn­ing­una.„Við eigum við póli­tískan ágrein­ing um mik­il­vægi gagn­sæis í ráðn­ingum sem þessu. Ég batt vonir við að full­trúar meiri­hlut­ans myndu vilja draga ein­hvern lær­dóm af þessu ferli og rýna þær reglur sem sveit­ar­fé­lagið vinnur eftir. Þær eru ekki galla­lausar og eru ekki til þess fallnar að tryggja gagn­sæi og traust því miður. En það var ekki hægt að skynja að það væri nokkur áhugi á því.“ 

„Það er líkt og gagn­sæi og traust skipti þau engu máli þegar kemur að veiga­mik­ill ákvörðum sem þess­ari.“
Sra Dögg Svan­hild­ar­dóttir,
bæj­ar­full­trúi Við­reisnar í Garðabæ

Segir gagnsæi ekki skipta Sjálfstæðisflokkinn máli

Í svörum sínum til Heim­ild­ar­innar vísar Sara Dögg til álits emb­ættis umboðs­manns Alþingis um ráðn­ingar í emb­ætti þegar hún er innt eftir stöðu máls­ins hjá minni­hlut­anum í Garðabæ. „Við höfum álit umboðs­manns Alþingis sem beinir því til sveit­ar­stjórna að skýra ráðn­inga­ferli í æðstu emb­ætt­is­stöður vel. Það var ekki hægt að merkja nokkurn vilja til þess að líta í eigin barm og a.m.k. gang­ast við því að afhend­ing gagna til bæj­ar­full­trúa hefði mátt vera með öðrum hætti fyrir bæj­ar­stjórn­ar­fund. Að þar hefði mátt gera betur til þess að mæta þeirri skyldu ber að virða þegar kemur að upp­lýs­inga­gjöf vegna mála sem eru til afgreiðslu. Að ákvörðun sé byggð á gögnum. Á þetta hlusta bara ekki bæj­ar­full­trúar sjálf­stæð­is­flokks­ins. Það er líkt og gagn­sæi og traust skipti þau engu máli þegar kemur að veiga­mik­ill ákvörðum sem þess­ari.“

Heim­ildin hefur sent beiðni til Garða­bæjar um að fá aðgang að gögn­unum um ráðn­ing­ar­ferlið og rök­stuðn­ing fyrir því af af hverju Lúðvík Örn var ráð­inn fram yfir Þóru Hjalte­sted. Beiðni mið­ils­ins er í vinnslu hjá Garðabæ. 

Eitt af því sem Almar Guð­munds­son bæj­ar­stjóri hefur ekki gert í mál­inu, þrátt fyrir að Sara Dögg hafi beðið hann um það á bæj­ar­stjórn­ar­fundi, að gera grein fyrir því af hverju hann vék sæti í mál­inu. Þetta hefur Almar enn ekki gert með beinum hætti. Í svari frá Garðabæ um þetta segir hins vegar; „Þegar starfið hafði verið aug­lýst upp­lýsti bæj­ar­stjóri bæj­ar­ráð um það að vegna tengsla við umsækj­endur um starf sviðs­stjóra fjár­mála- og stjórn­sýslu­sviðs hafi hann ákveðið að víkja við und­ir­bún­ing og með­ferð máls­ins.“

Björg Fenger, for­maður bæj­ar­ráðs, kom að ráðn­ing­unni í stað Almars. 

Hefur ekki útskýrtAlmar Guð­munds­son bæj­ar­stjóri hefur ekki útskýrt af hverju hann vék sæti í mál­inu.

Þóra ætlar ekki að tjá sig

Heim­ildin hefur haft sam­band við Þór Hjalte­sted til að fá sýn hennar á ráðn­ingu Lúðvíks Arnar og eins til að svara því hvort hún hygg­ist leita réttar síns í mál­inu. Þór vill hins vegar ekki tjá sig um málið: „Ég er ekki á land­inu en ég hyggst ekki tjá mig um þetta mál.“

Þóra vill þrá­spurð ekki svara því hvort hún ætli að leita réttar síns í mál­inu gagn­vart Garðabæ eða ekki. 

Í svari frá Garðbæ kemur fram að sam­staða hafi verið um ráðn­ing­ar­ferlið hjá meiri­hlut­anum og minni­hlut­anum. „Í fund­ar­gerðum bæj­ar­stjórnar og bæj­ar­ráðs kemur fram að sam­staða var hjá meiri­hluta og minni­hluta bæj­ar­stjórnar um ráðn­ing­ar­ferlið á öllum stigum. Þar á meðal að for­maður bæj­ar­ráðs tæki stöðu bæj­ar­stjóra.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ráðning Lúðvíks Arnar Steinarssonar til Garðabæjar

Ráðuneytið telur sig ekki getað athugað ráðningu Lúðvíks Arnar í Garðabæ
FréttirRáðning Lúðvíks Arnar Steinarssonar til Garðabæjar

Ráðu­neytið telur sig ekki getað athugað ráðn­ingu Lúðvíks Arnar í Garðabæ

Þrír bæj­ar­full­trúar minni­hlut­ans í Garðabær leit­uðu til inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins vegna ráðn­ingar Lúðvíks Arnar Stein­ars­sonar í starf svið­stjóra hjá sveit­ar­fé­lag­inu. Lúðvík Örn er með fjöl­þætt tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Garðabæ og var ráðn­ingin gagn­rýnd harka­lega af bæj­ar­full­trúum minni­hlut­ans.
Fyrrverandi bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ var meðmælandi Lúðvíks
FréttirRáðning Lúðvíks Arnar Steinarssonar til Garðabæjar

Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ var með­mæl­andi Lúðvíks

Gunnar Ein­ars­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ, var með­mæl­andi Lúðvíks Arnar Stein­ars­sonar í starf sviðs­stjóra hjá bænum. Lúðvík Örn hefur um ára­bil gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Garðabæ. Meiri­hlut­inn í Garðabæ ákvað að ráða Lúðvík Örn fram yfir konu sem er bæj­ar­rit­ari í Mos­fellsbæ.
Rökstuðningur Garðabæjar fyrir að ráða Lúðvík Örn: „Þetta er bara stórfurðulegt mál“
SkýringRáðning Lúðvíks Arnar Steinarssonar til Garðabæjar

Rök­stuðn­ingur Garða­bæjar fyrir að ráða Lúðvík Örn: „Þetta er bara stórfurðu­legt mál“

Ráðning Garða­bæjar á Lúðvík Erni Stein­ars­syni, sem gegnt hefur mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, í starf sviðs­stjóra fjár­mála- og stjórn­sýslu­sviðs Garða­bæjar hefur vakið hörð við­brögð hjá minni­hlut­anum í bænum. Rök­stuðn­ingur Bjargar Fenger, for­manns bæj­ar­ráðs, fyrir ráðn­ing­unni bendir til að Lúðvík Örn hafi ekki upp­fyllt öll hæfni­við­miðin en vísað er til „heild­stæðs mats“ á honum.
Vinur bæjarstjórans í Garðabæ ráðinn fram yfir konu sem metin var jafn hæf
FréttirRáðning Lúðvíks Arnar Steinarssonar til Garðabæjar

Vinur bæj­ar­stjór­ans í Garðabæ ráð­inn fram yfir konu sem metin var jafn hæf

Gengið var fram­hjá bæj­ar­lög­manni Mos­fells­bæjar, Þóru Hjalte­sted í ráðn­ing­ar­ferl­inu þrátt fyrir að hún hafi gegnt sam­bæri­legu starfi. Lúðvík Örn Stein­ars­son er starf­andi innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ og situr í nefndum á vegum flokks­ins. Bæj­ar­stjór­inn í Garðabæ, Almar Guð­munds­son, sagði sig frá ráðn­ing­ar­ferl­inu en ekki liggur fyrir af hverju.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár