Ráðuneytið telur sig ekki getað athugað ráðningu Lúðvíks Arnar í Garðabæ

Þrír bæjar­fulltrúar minni­hlutans í Garðabær leituðu til innviða­ráðuneytisins vegna ráðningar Lúðvíks Arnar Steinars­sonar í starf svið­stjóra hjá sveitar­félaginu. Lúðvík Örn er með fjölþætt tengsl við Sjálfstæðis­flokkinn í Garðabæ og var ráðningin gagnrýnd harkalega af bæjar­fulltrúum minni­hlutans.

Telur sig ekki getað skoðað málið
Telur sig ekki getað skoðað málið Inn­við­a­ráðu­neytið telur sig ekki ekki getað tekið ráðn­ingu Lúðvíks Arnar Stein­ars­sonar í starf sviðs­stjóra fjár­mála- og stjórn­sýslu­sviðs hjá Garðabæ til skoð­unar. Hann var ráð­inn fram yfir Þóru Hjalte­sted, bæj­ar­rit­ara í Mos­fellsbæ, fyrr á árinu og leit­uðu bæj­ar­full­trúr Við­reisnar til ráðu­neyt­is­ins út af mál­inu.

Innviða­ráðuneytið telur sig ekki geta tekið tekið til athugunar ráðningar­ferli Lúðvíks Arnar Steinars­sonar í starf sviðs­stjóra fjármála- og stjórnsýslu­sviðs hjá sveitar­félaginu. Bæjar­fulltrúar úr minni­hlutanum í Garðabæ, Sara Sögg Svan­hildar­dóttir, Þorbjörg Þorvalds­dóttir og Brynja Dan óskuðu eftir þessu við ráðuneytið í bréfi í byrjun febrúar.

Innviða­ráðuneytið hefur eftirlits­hlutverki að gegna gagnvart sveitar­félögum. Ráðuneytið telur hins vegar að málið falli utan við þetta eftirlits­hlutverks þess þar sem um sé að ræða starfs­mannamál. „Telst málinu því lokið af hálfu ráðuneytisins,“ segir í bréfi um málið sem dagsett er þann 8. apríl. 

„Telst mál­inu því lokið af hálfu ráðu­neyt­is­ins“
Úr svari inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins

Fjölþætt tengsl við Sjálfstæðisflokkinn

Heimildin fjallaði um ráðningu Lúðvíks Arnar í starfið í byrjun febrúar síðastliðinn en nokkur umræða var um málið í fjöl­miðlum vegna þess að hann hefur starfað á vettvangi Sjálfstæðis­flokksins um margra ára …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Auðvitað segist starfsmaður í ráðuneytinu ekki geta gert neitt, því hann sjálfur er ráðinn nákvæmlega eins ? Spillingin er svo mikil í íslenskri stjórnsýslu að hvergi er til annað eins ?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ráðning Lúðvíks

FréttirRáðning Lúðvíks

Fyrr­verandi bæjar­stjóri Sjálfstæðis­flokksins í Garðabæ var meðmælandi Lúðvíks

Gunnar Einarsson, fyrr­verandi bæjar­stjóri Sjálfstæðis­flokksins í Garðabæ, var meðmælandi Lúðvíks Arnar Steinars­sonar í starf sviðs­stjóra hjá bænum. Lúðvík Örn hefur um árabil gegnt trúnaðar­störfum fyrir Sjálfstæðis­flokkinn í Garðabæ. Meirihlutinn í Garðabæ ákvað að ráða Lúðvík Örn fram yfir konu sem er bæjar­ritari í Mosfellsbæ.
SkýringRáðning Lúðvíks

Rökstuðn­ingur Garða­bæjar fyrir að ráða Lúðvík Örn: „Þetta er bara stór­furðulegt mál“

Ráðning Garða­bæjar á Lúðvík Erni Steinars­syni, sem gegnt hefur mörgum trúnaðar­störfum fyrir Sjálfstæðis­flokkinn, í starf sviðs­stjóra fjármála- og stjórnsýslu­sviðs Garða­bæjar hefur vakið hörð viðbrögð hjá minni­hlutanum í bænum. Rökstuðn­ingur Bjargar Fenger, formanns bæjarráðs, fyrir ráðningunni bendir til að Lúðvík Örn hafi ekki uppfyllt öll hæfni­viðmiðin en vísað er til „heild­stæðs mats“ á honum.
FréttirRáðning Lúðvíks

Vinur bæjar­stjórans í Garðabæ ráðinn fram yfir konu sem metin var jafn hæf

Gengið var framhjá bæjar­lögmanni Mosfells­bæjar, Þóru Hjaltested í ráðningar­ferlinu þrátt fyrir að hún hafi gegnt sambærilegu starfi. Lúðvík Örn Steinarsson er starfandi innan Sjálfstæðis­flokksins í Garðabæ og situr í nefndum á vegum flokksins. Bæjar­stjórinn í Garðabæ, Almar Guðmundsson, sagði sig frá ráðningar­ferlinu en ekki liggur fyrir af hverju.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár