Eldgos hafið á Reykjanesskaga

Sjötta eld­gosið á þremur árum hófst á Reykja­nesskaga upp úr klukkan sex í morgun. „Ég sá allt í einu birta yfir,” segir veg­far­andi. Innan við mán­uður er frá síð­asta gosi.

Eldgos hafið á Reykjanesskaga
Eldgos Eldgosið sem nú er hafið er það sjötta í röð­inni á aðeins þremur árum. Myndin er tekin úr þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar í morgun. Mynd: Almannavarnir

Laust eftir kl. 6 í morgun hófst enn eitt eld­gosið á á Reykja­nesskaga, það sjötta í röð­inni á þremur árum. Vel hafði bætt í skjálfta­virkni á svæð­inu um hálf­tíma áður og sendi Veð­ur­stofan þá við­vörun um auknar líkur á eld­gosi. Ekki leið á löngu þar til kvika fór að sjást á yfir­borði. 

Kristín Jóns­dóttir, jarð­eðl­is­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands, segir við RÚV að gosið sé á svip­uðum slóðum og gosið sem varð 18. des­em­ber. Þá gaus í um 60 klukku­tíma. Það sé heppi­leg stað­setn­ing og að innviðum standi ekki ógn af gos­inu. „Þetta er norð­ar­lega og sprungan er að teygja úr sér, bæði til norð­urs og suð­urs. Stað­setn­ingin er við Sundhnúk og austan við Sýl­ing­ar­fell en fjær Grinda­vík,“ segir Kristín.

Þor­valdur Þor­valds­son segir á sama stað að miðað við að það gjósi á þessum slóðum geti stað­setn­ingin vart verið heppi­legri. „Hraunið heldur sér uppi á heið­inni og getur kannski sett smá þrýst­ing á varn­ar­garð­ana í Svarts­engi.“

Eldgosið sést víða á Reykja­nes­inu, til að mynda frá Kefla­vík­ur­flug­velli. Frá flug­vell­inum sést rauður bjarmi hrauns­ins sem flæðir upp úr gossprung­unni. Strókar úr gos­inu ná 50 til 80 metra upp í loftið, sam­kvæmt Veð­ur­stof­unni. 

Sést víðaGosið sést vel frá Kefla­vík­ur­flug­velli, þaðan sem Björn Thor­steins­son tók þessa mynd.
Séð undan landiÁhöfnin á Vésteini GK sá eld­gosið blasa svona við sér í morg­unsárið.Aðsent
Vinnu­að­staðanÞað er heldur sér­stakt útsýnið sem Thorberg Ein­ars­son hefur um borð í Vésteini GK, sem fiskar nú úti fyrir Reykja­nesi.
StrókurStrók­ur­inn úr eld­gos­inu sést vel úr Hafn­ar­firði.

„Ég sá allt í einu birta yfir er ég var á leið í gegnum Hafn­ar­fjörð áleiðis til Kefla­vík­ur­flug­vallar,” segir veg­far­andi sem hafði sam­band við Heim­ild­ina. „Það er logn og því sést strók­ur­inn vel. Lýsir upp skýin.”

EldarTil eld­goss­ins sést vel frá Kefla­vík­ur­flug­velli líkt og sjá má á þess­ari mynd sem veg­far­andi sendi Heim­ild­inni.

 Í örstuttri til­kynn­ingu frá Veð­ur­stof­unni segir að gosið sé líkt og þau tvö síð­ustu í Sund­hnjúka­gíga­röð­inni og í þetta sinn norðan Sýl­ing­ar­fells. Vart hafi orðið við aukna skjálfta­virkni sem merkti að kviku­hlaup var hafið kl. 5.40 í morgun. Það er því ljóst að aðeins um hálf­tími leið frá því að þeirrar virkni var vart og þar til eld­gos á yfir­borði hófst.

EldgosVeð­ur­skil­yrði gera það að verkum að eld­gosið sést vel víða og er mikið sjón­ar­spil.

Sprungan sem gýs úr er um þriggja kíló­metra löng. Hún liggur frá Sundhnúk í suðri til aust­ur­enda Stóra-Skóg­fells. Samkvæmt fyrstu upp­lýs­ingum rennur hraun að mestu til vest­urs sem stendur.

Innan við mán­uður er frá síð­asta gosi. Það hófst þann 14. jan­úar og náði hraun þá að renna inn í byggð­ina í Grinda­vík. 

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar fór fljót­lega í loftið eftir að byjaði að gjósa með vís­inda­menn sem munu þá geta varpað ljósi á umfang goss­ins.

Aukin skjálfta­virkniVeð­ur­stofan sá vel á jarð­skjálftamlum hvað var í vændum á sjötta tím­anum í morgun. Fyr­ir­var­inn var þó mjög skammur, aðeins hálf­tími.

Þau tvö gos sem orðið hafa á Sund­hnjúka­sprung­unni norðan Grinda­víkur stóðu ekki lengi, aðeins í örfáa daga. Benedikt Ófeigs­son jarð­eðl­is­fræð­ingur hjá Veð­ur­stof­unni sagði við RÚV í morgun að aðdrag­and­inn að þessu nýjasta gosi hafi verið svip­aður svo gera megi ráð fyrir að það hegði sér svipað og þau sem á undan komu.

Um það sé hins vegar aldrei hægt að full­yrða. „Það er alltaf þessi mögu­leiki, að það sé bara opin leið að neðan og það haldi bara áfram án þess að það dragi úr því [fljótt].”

Við­vör­un­arflautur voru þandar við Bláa lónið í morgun en þar voru að því er fram kom í Morg­un­út­varp­inu staddir ein­hverjir ferða­menn.

Rétt yfir klukkan sjö í morgun birtu Almanna­varnir nýjar myndir af gos­inu. 

Fréttin verður upp­færð.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    I was listening to RÚV Radio’s evening programme a short while ago. One of the guest interviewees was a man from Grindavík who had served on the town council from 2018 to 2022. He said the risk of damage from eruptions, and what could happen in a worst-case scenario, was known at that time. Now it has happened. No reserve pipeline exists and no thought has been given to such an idea. He expressed himself clearly. The root of the problem lies in privatization. Dividend has been paid out to shareholders in HS Orka and Veitur again and again; no thought has been given to the security of energy consumers or to precautionary measures. Privatisation is DESTRUCTIVE. The local authorities that sold their shares got a quick short-term benefit. The state should have stepped in and prevented privatisation and maintained its majority share. Now the worst has happened and the people of Suðurnes sit out in the cold. The interview with this clear-sighted former councillor in Grindavík can be heard on the RUV Player. What he says shows clearly that PRIVATIZATION of ESSENTIAL STRUCTURES of national importance is a CRIME. The same applies to the BANKS.
    0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    There are now about 30,000 of us who live on the Suðurnes Peninsula. The country’s No. 1 international airport is located at Keflavík. We think with horror of the consequences if an eruption were to disrupt or destroy the Svartsengi Power Plant or the pipeline carrying hot water to the storage tanks at Njarðvíkurfitjar. In the worst case, Keflavík Airport could be closed and 30,000 people could be without hot water in sub-zero temperatures. All of this could happen in the next eruption. The root of the problem is that there needs to be a reserve pipeline from Reykjavík crossing Reykjanesbraut at the Njarðvíkurfitjar shoulder.

    Suðurnes Regional Heating (Hitaveita Suðurnesja) was founded in Þórshamar, the Althingi’s building on Austurvellir in Reykjavík, after 1970. The Treasury owned just over 40% and the local authorities on Suðurnes owned the remainder. Negotiations with landowners in Grindavík did not go smoothly and in the end it was agreed that Reykjavík District Heating (Hitaveita Reykjavíkur) would supply hot water via a pipe reaching Fitjar via the shoulder on Reykjanesbraut. Then the landowners gave in. Agreement was reached with the US Navy on the purchase of hot water for the naval base; Þóroddur Th. Sigurðsson, director of Reykjavík District Heating, played the main role in this. Half of the hot water was sold to the US Navy. (Those who are interested in more detail about this can read it in the history of Suðurnes District Heating). At the present moment, the Icelandic government is concentrating on the plight of Grindavík, which is understandable, but in addition it is vital to lay a 20-inch pipe from Hafnarfjörður to the shoulder of Reyjanesbraut at Njarðvíkurfitjar. This would be about 35 km long.

    Of course Orkuveitan will have to increase its hot-water resources by drilling more wells. With heavy-duty machinery the laying of a pipe to Fitjar would take several months, and involve a lot of transport of materials. The drilling would be a larger challenge. A RESERVE HOT-WATER PIPELINE TO FITJAR IS A MATTER OF LIFE AND DEATH for Suðurnes.

    The level of insecurity that we have today is COMPLETELY UNACCEPTABLE. The government must start work immediately and draw up a plan for a reserve pipeline to Suðurnes. Until this pipeline is in place we live on the edge of an abyss. Reykjavík Airport could only replace a tiny part of the functions of Keflavík Airport.
    0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Eg var að hlusta a siðdegis Utvarp Ruv rett aðan, þar kom i heimsokn maður ur Grindavik hann sat i Bæjarstjorn Grindavikur fra 2018 til 2022, Hann sagði að þetta hefði legið fyrir þa og menn vissu að það Versta gat gertst. Nu hefur það gerst. Engin Varalögn hefur verið Plönuð og ekki neitt spað i slikt. Þessi maður talaði Skyrt og let sina meiningu i ljos. Einkavæðingin er Skaðvaldurinn Hluthöfum HS Orku og Veitum hefur verið Greiddur ut Arður trekk i trekk, Ekki pælt i Neytendum eða Forvörnum
    Einkavæðingin er MEINSEMDIN, Bæjarfelög sem seldu sinn hlut Pissuðu i Skoinn sinn
    Rikið atti að koma inn og stoppa Einkavæðingu og Halda meirihluta RIKISINS.
    Nu hefur það versta skeð. Suðurnesja Buar sitja með kaldan Rass. Hlusta ma a Viðtal við þennan Skyra fyrrum Bæjarstjornarmann i Grindavik 2018 til 2022. ÞAÐ Ma heyra a Spilara RUV. Þar kom skyrt fram að EINKAVÆÐING a INNVIÐUM Þjoðarinar er GLAPRÆPUR sama er með BANKA.
    0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Við sem erum busettir Suður með Sjo a Suðurnesjum erum rum 30.000 ibuar og okkar 1 Alþjoðaflugvöllur er Keflavikurflugvöllur ja við hugsum með hrillingi til þess ef Gos lamaði starfsemi Virkjuninar við Svarseingi eða lögn sem flytur heitt vatn i Miðlunar Tanka a Njarðvikurfitjum rofnar. Svartasta mindin i Brunagaddi um havetur er Flugvöllurinn lokaður og 30.000 mans i kulda með engan Hita. Þetta gæti gerst i næsta Gosi. Malið er að það vantar vara Lögn ur Reykjavik lagða i Öxl Reykjanesbrautar a Njarðvikur fitjar.
    Hitaveita Suðurnesja var stofnuð i Þorshamri Husi Alþingis við Austurvöll eftir 1970
    Rikisjoður atti rum 40% og Sveitarfelög a Suður nesjum attu hinn partin. Illa gekk þa að semja við Landeigengur i Grindavik svo for að Hafið var samningaferli við Hitaveytu Reykjavikur um utvegun a heitu vatni og Lögn kæmi suður a Fitjar i öxl Reykjanesbrautar. þa Gafu landeigendur sig. Samið var við Bandariska Flotan i USA um kaup a Heitu vatni fyrir Herstöðina þar spilaði Þóroddur Th. Sigurðsson. vatnsveitustjori i Reykjavik stærsta Hlutverkið. 50% af heitu vatni voru seld USN. þeir sem vilja fræðast um þetta geta Lesið Bok um sögu Hitaveitu Suðurnesja. I Dag leggur Rikistjornin Alla sina Aheirslu a Grindavik það er gott mal. En samhliða þvi þarf að koma fyrir 20 tommu Lögn i Öxl Reykjanesbrautar a Njarðvikur Fitjar ur hafnafirði er su vegaleingd 35 kilometrar
    Að sjalfsögðu þarf Orkuveitan að auka sina Heitavatns byrgðir með Borun. Lögn a Heitavats Lögn a Fitjar er nokkura manuða vinna með Storvirkum Vinnuvelum og Efnisflutningur. Borun er meira mal. VARA LÖGN A HEITU VATNI A FITJAR ER LIFSNAUÐSIN Fyrir Suðurnes. Það Oöryggi sem i dag er Buið við er OÞOLANDI MEÐ ÖLLU. Rikistjornin þarf strax að hefjast handa með Aform um Varalögn a Suðurnes
    Teflt er a tæpasta Vað meðan hun er ekki til staðar. Reykjavikurflugvöllur getur ekki leyst Keflavikurflugvöll af nema með miklum TAKMÖRKUNUM
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár