„Liðið hefur alla burði“

Guð­mundur Þ. Guð­munds­son, fyrr­ver­andi lands­liðs­þjálf­ari í hand­bolta, vill ekki tjá sig sér­stak­lega um gengi lands­liðs­ins á EM hingað til, nóg sé af sér­fræð­ingum til að gera það. Hann segir liðið þó eiga að hafa alla burði, bæði breidd og getu.

Handbolti
Hand­bolti Guð­mundur Þ. Guð­munds­son stjórn­aði íslenska lands­lið­inu í hand­bolta árin 2001-04, 2008-12 og frá 2018-23. Mynd: Sven Mendel/Wikipedia

Spila­mennska íslenska lands­liðs­ins á EM í hand­bolta karla hefur valdið nokkrum von­brigðum, jafn­vel sest ögn á þjóð­arsál­ina, auk þeirra ham­fara sem hafa átt sér stað við Grinda­vík. Síðasti lands­liðs­þjálf­ari, Guð­mundur Þórður Guð­munds­son, seg­ist í sam­tali við Heim­ild­ina ekki vilja tjá sig um gengi liðs­ins á mót­inu til þessa. Það geri hann á síð­ari stigum, ekki núna.

Um lands­liðið sagði hann þó, áður en leik­ur­inn gegn Þýska­landi á fimmtu­dag fór fram: „Liðið hefur alla burði, þeir eru með breidd og þeir eru með get­una. Ég óska þeim alls hins besta.“ 

Hann segir sér­stakt að fylgj­ast með mót­inu utan frá. „Ég skal játa það,“ segir Guð­mundur en hann hefur tekið þátt í 26 stór­keppnum, EM og HM í hand­bolta og Ólymp­íu­leikum, á sínum ferli. Þar af hefur hann tekið þátt í nítján mótum sem þjálf­ari þriggja lands­liða, Íslands, Dan­merkur og Barein.

„Frá 2010 hef ég tekið þátt í fjórtán stór­keppnum. Það er sér­stakt að upp­lifa það að vera í fyrsta skipti í langan tíma ekki í stór­keppni,“ segir Guð­mundur. „Ég er að horfa á eins marga leiki og ég get og njóta keppn­innar. Ásamt því er ég svo að þjálfa mitt félags­lið hér á sama tíma, sem ég hef ekki getað gert á meðan ég þjálf­aði bæði félags­lið og lands­lið. Það er það sem er öðru­vísi og það má segja að það sé ný til­finn­ing fyrir mig og ný upp­lifun að geta fylgst með þessu og horft á mikið af leikjum.“

Farinn út að horfa á Dani

Guð­mundur er á leið til Þýska­lands í dag, föstu­dag, að horfa á Dani spila við Svía, sem áhorf­andi á stór­móti í hand­bolta. „Ég hef aldrei gert það áður,“ segir hann og kemur einnig inn á það í sam­tali við blaða­mann að Danirnir séu að hans mati í sér­flokki.

„Þeir eru ansi margir og hafa sterkar og margar skoð­anir“
Guð­mundur Guð­munds­son
um hand­bolta­sér­fræð­inga

„Það er aug­sýni­legt að þeir eru með stór­kost­legt lið,“ segir Guð­mundur um liðið sem hann þjálf­aði frá 2014–2017 og gerði að Ólymp­íu­meist­urum 2016.

Hann ætlar ekki að tjá sig um íslenska lands­liðið, sem áður segir. „Ég tjái mig ein­hvern tím­ann seinna en ekki núna, ég hef ákveðin prinsipp hvað það snertir. Það er nóg til af sér­fræð­ing­unum til þess að tjá sig um þetta.“

Eru þeir of margir, kannski?

„Þeir eru ansi margir og hafa sterkar og margar skoð­anir,“ segir Guð­mundur Þórður um hand­boltaum­ræð­una.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár