„Við vissum að kallið væri að koma“

Marteinn og Petra standa vakt­ina vegna nátt­úru­ham­fara Grinda­vík. Þau voru vakin þegar skjálft­inn mæld­ist 3,4 að stærð og ákveðið var að rýma bæinn.

„Við vissum að kallið væri að koma“
Marteinn og Petra Hafa staðið vakt­ina síðan í nótt. Mynd: Helgi Seljan

Björg­un­ar­sveit­ar­fólkið Marteinn Þór­dís­ar­son úr Björg­un­ar­sveit Suð­ur­nesja og Petra Wium úr björg­un­ar­sveit­inni í Sand­gerði voru ræst klukkan að verða fjögur í morgun, við að rým­ing væri framundan í Grinda­vík. Þau stukku af stað og hafa staðið vakt­ina síðan. 

Ræst við skjálftann  

Mikil skjálfta­hrina var í Grinda­vík í nótt, en klukkan sjö mín­útur yfir fjögur mæld­ist skjálfti 3,4 að stærð. Um leið voru þau ræst út. „Þá átti að fara í rým­ingu á Grinda­vík eftir að upp­lýs­ingar bár­ust frá Veð­ur­stofu,“ segir Marteinn. „Það gekk vonum framar,“ segir Petra.

Lögregla og slökkvi­lið keyrðu um bæinn með blikk­andi ljósum og þeyttu sírenur. Til­tölu­lega fáir voru í bænum, talið var að gist væri í 90 húsum. Petra lýsir aðstæðum í bænum. „Göturnar eru mjög holóttar, það er sig og upp­hækk­anir á bökkum.“

Um klukkan fimm var­aði Veð­ur­stofa Íslands síðan við því að eld­gos væri yfir­vof­andi. Alls hefðu 220 smá­skjálftar mælst við …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Talandi um gjörsamlega VANHÆFA ríkisÓSTJÓRN!
    Milljörðum spreðað í að verja einkafyrirtæki.
    En EKKERT gert til að verja eigur einstaklingana!
    Því var ekki búið að staðsetja öflugar dælur við jaðar Grindavíkur ?
    Stutt í ískaldann sjóinn og reyna að stýra hraunfæðinu frá bænum, eins og gert var í Vestmannaeyjum á sínum tíma.
    Svo maður tali nú ekki um að rusla upp varnargörðum, eins og gert var fyrir einka fyrirtækin þeim að kostnaðarlausu.
    Og þjóðin látin borga brúsann fyrir auðrónana!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár