Hjálmari sagt upp störfum: „Tekur lengri tíma en klukkustund að ganga frá eftir 30 ár“

Fram­kvæmd­ar­stjóra Blaða­manna­fé­lags Íslands, Hjálmari Jónssyni, var sagt upp störfum í dag. Hann segir upp­sögn­ina hafa verið fyr­ir­vara­lausa og að honum hafi verið gert að yfir­gefa svæðið. Upp­sögnin varð að hans sögn í kjöl­far ágrein­ings á milli sín og for­manns BÍ, Sigríðar Daggar Auð­uns­dóttur. BÍ segir að upp­sögn­ina megi rekja til trún­að­ar­brests á milli Hjálmars og stjórnar félags­ins.

Hjálmari sagt upp störfum: „Tekur lengri tíma en klukkustund að ganga frá eftir 30 ár“
Hjálmar Jónsson Hefur verið fram­kvæmda­stjóri BÍ frá árinu 2003. Hann hefur starfað fyrir félagið frá 1989. Var hann for­maður þangað til 2021. Mynd: BÍ

„Ég er að ganga frá því sem ég get gengið frá. Það tekur lengri tíma en klukku­stund að ganga frá eftir 30 ár. Þau standa bara hérna fyrir utan,“ segir Hjálmar Jónsson, sem lét af störfum sem fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Íslands (BÍ) í dag.

Hjálmari var sagt upp fyr­ir­vara­laust, segir hann, en hann hefur starfað með einum eða öðrum hætti fyrir félagið síðan 1989. Hann hefur verið fram­kvæmda­stjóri þess síðan árið 2003.

Þegar Hjálmar tók sím­ann frá Heim­ild­inni var hann að ganga frá. Fyrir utan skrif­stof­una hans stóðu for­maður, vara­for­maður og lög­fræð­ingur BÍ, að sögn Hjálmars.

„Ég er bara að reyna að drífa mig,“ sagði Hjálmar.

Í til­kynn­ingu frá Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur, for­manns BÍ, segir að stjórn félags­ins teldi að ekki hefði verið hægt að vinna áfram verk­efni í starfs­á­ætlun héldi Hjálmar áfram störfum. Þegar Heim­ildin leit­aði frek­ari skýr­inga hjá Sigríði Dögg vís­aði hún ein­fald­lega í til­kynn­ing­una og vildi ekki tjá sig frekar um málið.

Hjálmar seg­ist sjálfur ekki hafa fengið skýr­ingu á upp­sögn­inni en að ágrein­ingur hafi verið uppi á milli hans og Sigríðar „um það hvaða kröfur ber að gera til for­svars­manns Blaða­manna­fé­lags Íslands varð­andi það að vera fyr­ir­mynd ann­arra í sam­fé­lag­inu um opin og sann­gjörn og lýð­ræð­is­leg sam­skipti.“

Sigríður DöggEr for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Trúnaðarbrestur milli stjórnar og Hjálmars

Í til­kynn­ingu BÍ segir að áherslur í starf­semi félags­ins hafi breyst á und­an­förnum miss­erum. Þetta hafi í för með sér breyt­ingar, þ.á.m. ráðn­ingu nýs fram­kvæmda­stjóra.

Þar segir að upp­haf­lega hafi staðið til að bjóða Hjálmari nýtt starf innan BÍ. Þannig hefði verið hægt að tryggja að þekk­ing og reynsla frá­far­andi fram­kvæmda­stjóra nýtt­ist félags­mönnum, stjórn og nýjum fram­kvæmda­stjóra. 

Í því ferli segir þó að trún­að­ar­brestur hafi orðið á milli stjórnar og Hjálmars sem stjórnin telur að ekki verði leyst úr. Nið­ur­staðan varð því að Hjálmar hætti störfum til að „tryggja mætti við­un­andi starfs­skil­yrði á skrif­stofu félags­ins.“ Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur að stjórn hafi ekki talið sig getað unnið áfram þau verk­efni sem fyrir lágu við óbreyttar aðstæður.

Langþráð sex mánaða frí framundan

Auglýst verður eftir nýjum fram­kvæmda­stjóra á næstu dögum. Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir mun gegna starf­inu þangað til að ráðið verður í stöð­una.

Hjálmar er ekki sáttur með það hvernig staðið var að upp­sögn­inni.

„Ég hef komið að ýmsum upp­sögnum í gegnum tíð­ina og aðstoðað fólk eftir að því er sagt upp störfum og þetta fólk skorar alveg hátt á þann kvarða að koma ekki vel fram svo ég segi ekki meira.“

Hjálmar fékk sex mán­aða upp­sagn­ar­frest frá 1. febr­úar næst­kom­andi. 

„Mér sýn­ist ég vera að fara í lang­þráð sex mán­aða frí á kostnað blaða­manna í land­inu,“ segir Hjálmar.

Blaða­menn­irnir sem þessa frétt rita eru félags­konur í Blaða­manna­fé­lagi Íslands

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Getur verið að svona gjörræðisleg aðgerð stjórnarformanns um að segja upp framkvæmdarstjóra sé birting innri afla samfélagsins á stjórnun frétta?
    Er RUV virkilega birtingamynd þess? Virðist allavega stutt af þeim.
    Verður enn varhugaverðara að treysta fréttum?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár