Hvernig sagan endar

Í stað þess að skyggn­ast aftur í tím­ann eins og vana­lega er að þessu sinni litið til fram­tíðar, heitrar og bjartrar. Fjar­lægrar fram­tíðar, vel að merkja. Við munum ekki þurfa að þola alla þá birtu.

Jörðin eftir 700 milljón ár.

Þið athugið fyrst að það er gríð­ar­lega langur tími.

Fyrir 700 millj­ónum ára var ekk­ert líf á landi á Jörðinni, bara í sjónum. Allur gróður Jarðar, öll dýr merk­ur­innar, að ekki sé minnst á okkur menn­ina, allt var þetta ekki einu sinni komið á hug­mynda­stig.

En eftir 700 milljón ár mun Jörðin í stórum dráttum þó vera býsna kunn­ug­leg að sjá og ekk­ert ósvipuð því sem nú er.

Höf og meg­in­lönd munu þá að vísu rað­ast allt öðru­vísi upp um heimskringl­una en núna. Senni­lega munu að minnsta kosti tvær risa­heims­álfur þá hafa runnið saman, síðan brotnað upp og dreifst að nýju um hnött­inn. Nýjar fram­and­legar heims­álfur hingað og þangað, jújú, lönd og eyjar.

En Jörðin er enn þá blá að stórum hluta þar sem eru höfin og víð­ast á land­inu er græn slikja gróð­urs og skýin leika um …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    NÚNA ER EG ALDELIS BÚIN AÐ GERA GRÍN AÐ DÖNSKU OG ENSKU KONUNGS FJÖĹSKYLDUNUMEN BLESSAÐ FÓLKIÐ TÓK ÞVI BARA VEL EN NUNA ER EG HÆTT ÞVIÖLLU SVO Á LIKA AÐ VIRÐA RÁÐAFÓLK HVAR SEM ER Í HEIMINUM en ekki vera að senda tóninn er bara ánægð með líf mitt og stöðu í dag og bið ekki um meira
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár