Ekki full sátt um „forvarnagjaldið“ á Alþingi

Nokkrir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn segj­ast mót­fallnir því að nýju „for­varna­gjaldi“ verði bætt við skatt­lagn­ingu af hús­eignum til að fjár­magna varn­ar­mann­virki vegna hraun­vár. Slíkt gjald yrði 8.000 krónur á ári af fast­eign sem er með bruna­bóta­mat upp á 100 millj­ónir króna. Búist er við því að frum­varp for­sæt­is­ráð­herra um vernd mik­il­vægra inn­viða á Reykja­nesskaga verði að lögum í kvöld.

Ekki full sátt um „forvarnagjaldið“ á Alþingi
Svarts­engi Til stendur að ljúka við laga­setn­ingu um vernd mik­il­vægra inn­viða á Reykja­nesskaga í dag. Í frum­varpi for­sæt­is­ráð­herra er lagt til að „for­varna­gjald“ verði lagt á allar fast­eignir. Mynd: Golli

Fyrsta umræða um laga­frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, um vernd mik­il­vægra inn­viða á Reykja­nesskaga, fór fram í dag. Frum­varpið er nú komið í hendur alls­herjar- og mennta­mála­nefndar þings­ins og í umræðum þing­manna í dag kom fram að stefnan væri að því að frum­varpið yrði að lögum í lok dags. 

Í umræðum í þing­sal töl­uðu ýmsir þing­menn stjórnar- og stjórn­ar­and­stöðu­flokka beint til Grind­vík­inga, sem neyðst hafa til að yfir­gefa heim­ili sín og horfa nú upp á bæinn sinn stór­skemmdan og lifa í óvissu um eigur sínar.

Hvað efn­is­at­riði frum­varps­ins varðar voru þó ekki allir stjórn­ar­and­stæð­ingar par­sáttir. Þau Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins, Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata lýstu þannig öll þeirri skoðun að þau teldu nýja skatt­lagn­ingu á fast­eigna­eig­endur lands­ins ekki réttu leið­ina til að fjár­magna nauð­syn­legar varnir gegn nátt­úruvá á Reykja­nesi.

Sækja einn milljarð með auknum álögum á fasteignir

Frumvarp for­sæt­is­ráð­herra …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Það er verulegt skattamisrétti á Íslandi því er eina leiðin til að allir skattgreiðendur taki þátt í að bera þann gríðarlega kostnað sem mun falla á þjóðina er að láta slíka skatta fylgja fasteignagjöldum.

    Ef ekki og að sækja einvörðungu fé í öryggissjóði lendir það fyrst og fremst á launafólki að greiða slíkan kostnað með hækkuðum tekjuskatti og hækkuðu útsvarsgreiðslum. Fjármagnseigendur og fyrirtækin greiða sáralitla skatta miðað við tekjur. Þá eru eigendur fyrirtækjanna snillingar að komast hjá því að greiða eðlilega skatta.

    Þetta eru aðilar sem eiga gjarnan stórar fasteignir þrátt fyrir að litlar skattskyldar tekjur. Ef þessir aðilar verði ekki látnir taka eðlilegan þátt í þessum aukakostnaði þá munu skattar á launafólki hækka verulega. Það er sannleikur málsins.

    Síðan má auðvitað velta því fyrir sér hvort ekki sé eðlilegt að fyrirtækin þarna í hrauninu eigi ekki að taka raunverulegan þátt í þeim kostnaði að verja sig. Það var auðvitað vitað áður en þessi virkjun var byggð að svæðið sunnan við Þorbjörninn var mjög varasamt hættusvæði sem vart væri eðlilegt að byggja mikil mannvirki á..

    Þá getur varla talist eðlilegt samfélagsverkefni að verja sullum-bullum fyrirtækið umfram að starfsemi einkafyrirtækja. Þeir sem eiga það fyrirtæki vissu einnig um þá miklu áhættu er fólst í uppbyggingu á þessu svæði.

    Ég gef ekki mikið fyrir bulli' í Guðmundi Sælan. Hann ætti bara að koma sér vestur aftur
    1
  • GEJ
    Gudmundur Eyjólfur Jóelsson skrifaði
    Ég segi þessi aðgerð er til vansa fyrir alþingismenn, að láta húseigendur borga er ekki gott, Bláalónið er ekki innviðir eins og hægt að réttlæta með orkuverið. Hvað eruð þið að hugsa ráðamenn?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár