Valdís Ósk Sigríðardóttir bíður eftir eiginmanni sínum, með fullhlaðinn bíl og kerru. Með í för eru þrjú börn í aftursætinu, amma í framsætinu, sex hundar og fjórar hænur. Maðurinn er slökkviliðsmaður og er sem stendur að rýma bæinn. „Þeir eru niðri á elliheimili,“ útskýrir Valdís. Hann má ekki yfirgefa svæðið fyrr en rýming er afstaðin. Þá fara þau saman.

Ógnvekjandi aðstæður
Valdís Ósk er Grindvíkingur í húð og hár. Amma hennar, Þórunn Sigurðardóttir, fædd 1947, flutti hins vegar átján ára til Grindavíkur. Hún á tvær dætur, önnur er í Noregi og hin er búsett í Grindavík, rétt ókomin til hennar.
„Ég hef verið hræddari í dag en áður“
Dagurinn hefur tekið á. Skjálftarnir hafa verið margir og þeir hafa verið svo öflugir að hrunið hefur …

























































Athugasemdir