Greinilegt að almenningi ofbýður

Reiði almenn­ings gagn­vart átök­unum á Gaza og við­brögðum íslenskra stjórn­valda fer vax­andi að mati for­manns Íslands-Palest­ínu.

Greinilegt að almenningi ofbýður
Ísland-Palest­ína Hjálmtýr Heiðdal, for­maður Íslands-Palest­ínu, á mót­mælum fyrir utan ráð­herra­bú­stað­inn ásamt Sveini Rúnari Hauks­syni, fyrr­ver­andi for­manni félags­ins. Mynd: Alma Mjöll Ólafsdóttir

„Marga hryllir svo við þessu og fólk sem hefur kannski ekki tekið mikla afstöðu til þess áður tjáir sig við okkur. Það er greini­legt að almenn­ingi ofbýður, sér­stak­lega eftir að Ísland sat hjá í þess­ari atkvæða­greiðslu og þær skýr­ingar sem fólk gefur ekki mikið fyrir,“ segir Hjálmtýr Heiðdal, for­maður félags­ins Íslands-Palest­ínu.  

Vika er síðan fasta­nefnd Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum sat hjá við afgreiðslu alls­herj­ar­þings­ins á ályktun þess efnis að koma á mann­úð­ar­vopna­hléi á Gaza taf­ar­laust. Tillagan var lögð fram af Jórdönum. Kanada lagði fram breyt­ing­ar­til­lögu um að árás Hamas-sam­tak­anna á ísra­elska borg­ara yrði for­dæmd sam­tímis. Á hana féllst meiri­hluti aðild­ar­ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna ekki. Utan­rík­is­ráðu­neytið seg­ist hafa stutt til­lögu Kanada og þar sem ekki hafi náðst sam­staða um hana hafi Ísland setið hjá.

Loft­árásir Ísra­els­hers halda áfram og í vik­unni voru gerðar tvær loft­árásir á flótta­manna­búðir á Gaza. Börn eru stór hluti þeirra sem hafa látið lífið í átök­unum. „Fórn­ar­kostn­aður stig­mögn­unar átaka á Gaza er mældur í lífum barna,“ sagði Catherine Russel, fram­kvæmda­stjóri Unicef, á fundi örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna á þriðju­dag. Nefnd um rétt­indi barna á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna tekur í sama streng. „Það er eng­inn sig­ur­veg­ari í stríði þar sem þús­undir barna eru drepin,“ segir í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar. 

„Þetta er stórt neyð­ar­á­stand“

Ísland-Palest­ína hefur staðið fyrir þremur úti­fundum og tveimur mót­mæla­stöðum við ráð­herra­bú­stað­inn til að krefj­ast við­bragða frá stjórn­völdum. Hjálmtýr segir kröf­una skýra: „Stuðn­ingur við taf­ar­laust vopna­hlé af mann­úð­ar­á­stæðum. Þetta er stórt neyð­ar­á­stand. Það deyr barn á tíu mín­útna fresti. Mörg eru grafin undir rúst­unum og það er eng­inn bún­aður, það er engin alþjóð­leg hjálp­ar­sveit komin á stað­inn, Ísraelar hindra það. Fólkið er með berum höndum og ein­hverjum skóflum að reyna að róta í rúst­unum og leita að ætt­ingjum. Þetta er hroða­legt ástand. Stríðs­glæpir í beinni útsend­ingu á hverri ein­ustu mín­útu. Og þetta versnar.“    

Kyrrð­ar­stundHátt í 2.000 manns tóku þátt í kertafleyt­ingu til minn­ingar um börn sem hafa lát­ist í átök­unum á Gaza.

Félagið stóð einnig fyrir kertafleyt­ingu við Tjörnina á sunnu­dag þar sem hátt í 2.000 manns fleyttu kertum til minn­ingar um börn sem hafa lát­ist í átök­unum. Nöfn barn­anna, yfir 3.000 tals­ins, voru lesin upp. „Þetta var kyrrð­ar­stund. Maður er búinn að sjá svo mikið af hrika­legum myndum af látnum börnum og særðum börnum sem er verið að hlaupa með inn í spít­ala sem eru undir hálfum afköstum. Það var mjög margt fólk þarna sem lýsti því hrein­lega að það klökkn­aði við þessa til­hugsun,“ segir Hjálmtýr. 

Á sunnu­dag klukkan 14 mun Ísland-Palest­ína halda stór­fund fyrir Palest­ínu í Háskóla­bíói undir yfir­skrift­inni: Vopnahlé strax! Auk Hjálmtýs munu Anna Lúð­víks­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Amnesty á Íslandi, Kolbrún Birna Bachmann, lög­fræð­ingur og bar­áttu­kona, Viðar Þor­steins­son heim­spek­ingur og Yousef Ingi Tamimi hjúkr­un­ar­fræð­ingur flytja ávörp. Ljóða­lestur og tón­list­ar­at­riði munu einnig setja svip sinn á fund­inn. „Við væntum þess að fylla bíóið. Reiði almenn­ings er vax­andi,“ segir Hjálmtýr.

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár