Þekkir það að mæta hindrunum og fordómum

Fram­færsla, lífs­kjör og rétt­indi fatl­aðra barna eru helstu bar­áttu­mál nýs for­manns Öryrkja­banda­lags Íslands. „Ég veit hvernig það er að mæta hindr­unum og for­dómum í kerf­inu.“

Þekkir það að mæta hindrunum og fordómum
Nýr for­maður Alma Ýr Ing­ólfs­dóttir ætlar að halda áfram á þeirri veg­ferð sem ÖBÍ var undir stjórn Þuríðar Hörpu Sig­urð­ar­dóttur. „Það er engin hall­ar­bylt­ing í gangi.“ Mynd: Silja Rut Thorlacius

„Þeir hafa verið ótrú­lega skemmti­legir, krefj­andi og langir. Ég er spennt fyrir því sem mín bíður,“ segir Alma Ýr Ing­ólfs­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, um fyrstu dag­ana á stóli for­manns.

Alma Ýr var kjörin for­maður Öryrkja­banda­lags­ins á aðal­fundi rétt­inda­sam­tak­anna í byrjun mán­að­ar­ins. Hún hefur starfað á skrif­stofu ÖBÍ í sjö ár sem lög­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í mál­efnum og rétt­indum fatl­aðs fólks og fannst for­mennskan rök­rétt næsta skref. „Við erum að berj­ast með aðild­ar­fé­lög­unum okkar og svo erum við að veita ráð­gjöf og þá fékk maður þetta beint í æð hvað það er sem er raun­veru­lega að ger­ast. Það end­ur­spegl­ast af göt­unni inn á borð til okkar. Það er það sem fékk mig til að hugsa að kannski maður ætti að láta reyna á þetta, vit­andi og haf­andi og búandi að þess­ari reynslu og þekk­ingu.“

Alma Ýr var 17 ára gömul þegar hún fékk blóð­sýk­ingu í kjöl­far heila­himnu­bólgu sem olli því að hún missti báða fót­leggi og framan af fingrum. Tólf árum eftir veik­indin fékk hún hlaupa­fætur frá Össuri sem breyttu lífi hennar. Hún segir reynsl­una skipta máli í starfi hennar sem for­maður ÖBÍ. „Ég hef ákveðna sýn inn í þennan raun­veru­leika. Ég veit hvernig það er að mæta hindr­unum og for­dómum og kerf­inu, þó svo að ég geti talað um mig sem algjöra for­rétt­inda­konu í þeim efnum, þá veit ég alveg hvað felst í þessu. Þú gætir aldrei verið í þessu ef þú ættir ekki þá reynslu að baki.“

For­manns­kjörið var æsispenn­andi, Alma Ýr hlaut 57 atkvæði en Rósa María Hjörvar, dokt­or­snemi í bók­mennta­fræði og stjórn­ar­kona í stjórn Blindra­fé­lags­ins, 56. Það kom Ölmu Ýri ekki á óvart hversu jöfn bar­áttan var. „Það er pínu lúx­us­vanda­mál hjá ÖBÍ að hafa tvo fram­bæri­lega fram­bjóð­endur sem gerði þetta enn þá meira spenn­andi og gaf meiri vigt inn í aðild­ar­fé­lögin og bar­átt­una að þetta sé staða sem fólk sæk­ist eftir. Maður fer ekk­ert í svona nema að hafa brenn­andi áhuga og gera þetta af hug­sjón og virð­ingu við mála­flokk­inn. Það er mik­il­vægt að bera virð­ingu fyrir ótrú­lega fjöl­breyttum og stórum hópi sem í raun telur 15 pró­sent af þjóð­inni.“  

„Það er engin hall­ar­bylt­ing í gangi“

Alma Ýr ætlar að halda áfram á þeirri veg­ferð sem ÖBÍ var undir stjórn Þuríðar Hörpu Sig­urð­ar­dóttur. „Það er engin hall­ar­bylt­ing í gangi. Þetta eru alltaf ákveðnar stoðir sem þarf að fylgja fast áfram. Stærsta stoðin er alltaf fram­færsla og lífs­kjör, almanna­trygg­inga­kerfið. Það er ákveðin vinna í gangi og við munum halda áfram í henni og gefa ekk­ert eftir í þeim efnum.“

Eitt af helstu bar­áttu­málum Ölmu Ýrar í kosn­inga­bar­átt­unni voru mál­efni barna en hún hefur miklar áhyggjur af fötl­uðum börnum. „Gíf­ur­legar áhyggjur. Og það end­ur­spegl­ast kannski mest í því að það er ekki fyrir hendi við­eig­andi stuðn­ingur og þjón­usta sem þyrfti að vera. Hvernig stendur á því að það eru svona margir biðlistar og það eru svona mörg börn á biðlistum? Hvað veldur þessum biðlistum? Hvað þýðir það að vera á biðlista? Þetta er ótrú­leg flækja sem þarf að greiða úr. Ég trúi því ekki að þetta þurfi að vera svona.“ Alma Ýr segir far­sæld­ar­lög­gjöf­ina ekki ná að greiða úr þess­ari flækju. „Þetta er kyn­slóðin sem kemur til með að taka við af okkur og ég vil ekki sjá þetta svona. Ég mun beita mér mjög mikið fyrir þessu.“

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár