Mikill fengur að Tove

Á aðeins hund­rað síðum teiknar Tove Dit­lev­sen upp stærri heim en flestir gera á mörg hund­ruð síðum. Bernska er blæ­brigða­ríkt og gef­andi verk þrátt fyrir að umfjöll­un­ar­efnið sé oft og tíðum sárt.

Mikill fengur að Tove
Tove Dit­lev­sen Höfundur bók­ar­innar Bernska hleypir litlu við­kvæmu dýri úr kjall­arnum í end­ur­minn­ingum sínum.
Bók

Bernska

Höfundur Tove Ditlevsen í þýðingu Þórdísar Gísladóttur
Benedikt bókaútgáfa
112 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Barn­æskan er myrk og henni fylgir þján­ing, líkt og hún sé lítið dýr sem hefur verið lokað inni í kjall­ara og gleymst. Hún gýs upp úr háls­inum eins og and­ar­dráttur í frosti og stundum er hún of lítil en stundum of stór.“ (bls. 33)

Tove Dit­lev­sen hleypir þessu litla og við­kvæma dýri út úr kjall­ar­anum í end­ur­minn­inga­bók sinni, Bernsku, sem nú er komin út í íslenskri þýð­ingu Þórdísar Gísla­dóttur. Fyrir ári kom út bókin Gift en ásamt Ungdom mynda þessi verk þrí­leik end­ur­minn­inga sem höf­und­ur­inn sendi frá sér á árunum 1967–71. Það ber að þakka Benedikt bóka­út­gáfu fyrir að standa að útgáfu þess­ara merk­is­verka úr dönskum 20. aldar bók­menntum en bækur Tove Dit­lev­sen hafa hlotið tals­verða athygli á alþjóð­legum vett­vangi síð­ustu ár, tæpri hálfri öld eftir and­lát höf­undar.

Í Bernsku dregur skáldið upp áhrifa­ríka mynd af heldur nöt­ur­legu heim­il­is­lífi á Vest­ur­brú í Kaup­manna­höfn á þriðja og fjórða ára­tug síð­ustu aldar. Fjöl­skylda Tove litlu á sér ótrygga til­veru innan um aðrar fjöl­skyldur úr verka­manna­stétt á tímum styrj­aldar og síðar heimskreppu. Fátækt og atvinnu­leysi fylgir skömm þótt flestir séu að basla við það sama. Auk for­eldra og bróður Tove kynn­umst við meðal ann­ars ógæfu­sömu fólki úr hverf­inu, ósvíf­inni vin­konu, hryss­ings­legu skóla­fólki og ófrískum ung­lings­stúlkum.

Hver ein­asta per­sóna setur mark sitt á sög­una þótt sumar þeirra birt­ist varla nema í örfáum setn­ingum, en sér­stak­lega situr þó eftir sam­bandið við móð­ur­ina sem litla telpan ber afar mót­sagna­kenndar til­finn­ingar til. Telpan þráir ást móð­ur­innar en fjar­lægðin á milli þeirra er áþreif­an­leg og harkan í garð barns­ins óbæri­leg. Heimur bernsk­unnar er heimur sem hin full­orðnu hafa skapað og Tove lýsir því á slá­andi hátt hve börn eru und­ir­orpin öðrum í valda­leysi sínu. Litla telpan er „und­ar­leg“, sækir í bækur eins og faðir hennar og kann ekki að leika sér. Hún felur sig á bak við upp­gerð­ar­heimsku, treður frum­sömdum ljóðum ofan í buxna­streng­inn svo að eng­inn sjái þau og undr­ast sífellt hversu aftengd hún er raun­veru­leik­anum. Þegar veru­leik­inn er með þessum hætti er afteng­ing auð­vitað örugg­asta varn­ar­við­bragð hins ber­skjald­aða barns.

Á aðeins hund­rað síðum teiknar Tove Dit­lev­sen upp stærri heim en flestir gera á mörg hund­ruð síðum. Hvort tveggja innri heimur stúlkunnar og ver­öldin sem hún hrær­ist óviljug í verða ljós­lif­andi. Þýðing Þórdísar er afar vel heppnuð og nær til­gerð­ar­litlum en afdrátt­ar­lausum stílnum. Í stað þess að reyna að troða þýð­ing­unni inn í tíma­vél leyfir hún henni að flæða og kall­ast eðli­lega á við frum­text­ann. „Stofan flýtur í tíma og rúmi“ skrifar skáldið um bernsku­heim­ilið (bls. 11) og þessi orð eiga nokkuð vel við um þýð­ing­una sem er hvorki óþægi­lega nútíma­leg né þrungin fölskum „gam­al­dags“ tóni. Ein­faldar myndir fá að halda tær­leika sínum og per­són­urnar tala til okkar sönnum rómi.

Það er mik­ill fengur að þess­ari barn­dóms­bók Tove Dit­lev­sen. Þrátt fyrir að umfjöll­un­ar­efnið sé oft og tíðum sárt – og les­andi sem til þekkir freist­ist jafn­vel til að lesa bók­ina með hlið­sjón af þungum róðri full­orð­ins­ár­anna og nap­ur­legum örlögum skálds­ins – þá er Bernska langt í frá nið­ur­drep­andi lesn­ing heldur blæ­brigða­ríkt og gef­andi verk. „Einn dag­inn mun ég skrifa niður öll orðin sem streyma í gegnum mig,“ segir litla telpan (bls. 25), svo fór auð­vitað og fyrir það geta les­endur þá og nú verið þakk­látir. Vonandi fylgja þýð­and­inn Þórdís og Benedikt bóka­út­gáfa Gift og Bernsku eftir með íslenskri þýð­ingu á Ungdom strax á næsta ári – bækur Tove Dit­lev­sen eiga ekki síður brýnt erindi við les­endur dags­ins í dag en fyrri kyn­slóðir.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár