Pólskir foreldrar eignast íslensk börn

Samfélag Pólverja á Íslandi er marg­brotið og algengt er að börn aðfluttra Pólverja upp­lifi sig sem Íslend­inga. „For­eldrar sonar okkar eru frá Póllandi en hann er frá Íslandi,“ segir Piotr Pawel Jakubek, eig­andi Mini Market. Lyk­ill­inn að íslensku sam­fé­lagi er í gegnum tungu­málið og segja skóla­stjórn­endur Pólska skól­ans nem­endum sínum ganga betur í íslensku en ella.

Pólskir foreldrar eignast íslensk börn
Við­mæl­endur Menning, siðir og venjur Pólverja hafa frjóvgað íslenskt sam­fé­lag síð­ustu ára­tugi og nú búa tæp­lega 25 þús­und þeirra hér­lendis.

„Ég er í raun­inni blanda af Íslend­ingi og Pólverja. Fyrst ég hef búið hér á Íslandi, að þá finnst mér ég vera Íslend­ingur,“ segir hinn 16 ára gamli Adam Bern­ards­son, nemi við raf­iðn­að­ar­braut í Tækni­skól­anum. „En for­eldrar mínir eru pólskir og þá finnst mér ég líka vera pólskur.“  

Alls eru 24.745 pólskir inn­flytj­endur á Íslandi, eða um 6,3% þjóð­ar­innar. Samfélag Pólverja er því nokkuð stórt og hafa margir hverjir skotið föstum rótum hér á landi. Menning, siðir og jafn­vel matur sem koma frá Póllandi hafa frjóvgað íslenskt sam­fé­lag síð­ustu ára­tugi. 

Nú geta lands­menn til að mynda verslað í búðum sem selja ein­göngu pólskar vörur, sótt nám í Háskóla Íslands um tungu­málið og tekið þátt í menn­ing­ar­há­tíðum og við­burðum til heið­urs Póllandi. 

Treysta á hvert annað

Móðir Adams, Marianna K. Kristofers­dóttir, flutti til Íslands fyrir 17 árum. Hún ákvað snemma að senda börn sín í Pólska skól­ann í Reykja­vík. Þar …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár