Ekki lengur bóla á íbúðamarkaði á höfuðborgarsvæðinu

Fjór­tán vaxta­hækk­an­ir í röð og hert lán­þega­skil­yrði hafa skil­að því að íbúða­verð er far­ið að lækka að raun­virði á Ís­landi. Á einu ári, frá ág­úst 2022 til sama mán­að­ar í ár, nem­ur sú lækk­un 5,3 pró­sent.

Ekki lengur bóla á íbúðamarkaði á höfuðborgarsvæðinu
Aðgerðir bíta Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður Fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands. Mynd: Seðlabanki Íslands

Tölfræðipróf sem Seðlabanki Íslands framkvæmir til að bera kennsl á bólumyndun á eignamörkuðum sýnir að ekki er lengur merki um að bóla sé á íbúðamarkaði á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýbirtu fjármálastöðugleikariti bankans. 

Raunar er staðan þannig, eftir tugprósenta hækkanir á íbúðaverði frá byrjun árs 2021 og fram á mitt ár í fyrra, að íbúðaverð hefur lækkað nokkuð skarpt undanfarið ár, eða um 5,3 prósent að raunvirði. Veltan á íbúðamarkaði hefur dregist mikið saman og kaupsamningar á fyrstu sjö mánuðum ársins 2023 voru 22 prósent færri en á sama tímabili í fyrra. Samhliða hefur íbúðum sem eru til sölu fjölgað mikið, en alls voru rúmlega 4.200 íbúðir á öllu landinu auglýstar til sölu um miðjan septembermánuð. Meðalsölutími íbúða nú er um sex mánuðir en var rúmlega þrír mánuðir í lok árs 2022. 

Þessi þróun hefur verið á meðal leiðandi markmiða Seðlabanka Íslands með þeim aðgerðum sem hann hefur gripið til í baráttu sinni við verðbólguna. Þær aðgerðir hafa meðal annars falið í sér verulega hert lánþegaskilyrði með hámarki á veðsetningar- og greiðslubyrðarhlutfall þeirra íbúðalána sem veitt eru. Sýnilegasta aðgerðin, og sú sem bitið hefur fastast, eru þó þær fjórtán stýrivaxtahækkanir í röð sem bankinn hefur framkvæmt, og hafa skilað stýrivöxtum í 9,25 prósent. Afleiðing þeirra er meðal annars sú að óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir viðskiptabankanna eru nú í kringum ellefu prósent. Þeir voru 3,3 til 3,4 prósent snemma árs 2021.

Verðið lækkað víða annars staðar

Ísland er ekki eyland í þessum efnum, þótt stýrivextir hafi hækkað meira hérlendis en víða annars staðar og verðbólgan ætli að verða þrálátari hér. Stýrivextir Englandsbanka hafa til að mynda verið hækkaðir jafn oft í yfirstandandi hækkunarferli og vextir á Íslandi, en samt sem áður brot af íslensku vöxtunum, eða 5,25 prósent. Vextir Seðlabanka Evrópu eru fjögur prósent og í Bandaríkjunum eru þeir 5,5 prósent. 

Í fjármálastöðugleikaritinu segir að hvað íbúðaverð í öðrum löndum varði þá hafi verð íbúða lækkað töluvert að raunvirði í Bandaríkjunum og Kanada á síðasta ári en hefur tekið að hækka aftur á síðustu mánuðum. „Í Svíþjóð hefur íbúðaverð lækkað nokkuð stöðugt að raunvirði frá febrúar í fyrra eftir miklar hækkanir þar á undan. Nýleg spá Seðlabankans í Svíþjóð gerir ráð fyrir áframhaldandi lækkun íbúðaverðs inn í haustið. Í Bretlandi og Noregi hefur dregið úr raunverðslækkun íbúðarhúsnæðis á síðustu mánuðum.“

Laun kunna að hækka umfram íbúðaverð

Íbúðaverð á Íslandi hefur líka haldið áfram að lækka í samanburði við ákvarðandi þætti sem alla jafna ráða þróun þess til lengri tíma litið. Seðlabankinn bendir á að launavísitala hafi hækkað umfram íbúðaverð að undanförnu enda hafi verið töluverðar nafnlaunahækkanir í síðustu kjarasamningum. „Árshækkun launavísitölunnar mældist nærri 11 prósent í lok júlí og hafði á sama tíma hækkað um 10 prósent umfram vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu. Töluverð spenna hefur einkennt vinnumarkaðinn undanfarið og því kunna laun að hækka umfram íbúðaverð á komandi vetri.“

Talsvert misvægi myndaðist milli íbúða- og leiguverðs á tímum kórónuveirufaraldursins, bæði vegna lækkunar leiguverðs og vegna hratt hækkandi íbúðaverðs. Nokkuð hefur dregið úr misvæginu og hafði hlutfall íbúðaverðs og leiguverðs lækkað um rúmlega átta prósent í júlí frá sama tíma í fyrra. Leiguverð hækkaði um nærri tíu prósent að nafnvirði milli ára í júlí, eða tæplega tvö prósent að raunvirði. Seðlabankinn segir að leiguverð hafi því haldist nokkuð vel í hendur við almennt verðlag undanfarið ár.

Eins hefur áfram dregið úr fráviki íbúðaverðs frá langtímaleitni sem mældist 6,8 prósent í júlí 2023, en var 17,4 prósent ári fyrr. Þá lækkaði hlutfall vísitölu íbúðaverðs og byggingakostnaðar um 5,2 prósent á sama tímabili.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JÞM
    Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Er þetta ekki algjör smjörklípa? Aðalatriðið hlýtur að vera að aldrei hefur verið byggt minna af íbúðum, byggingariðnaður íbúða nánast botnfrosinn, á sama tíma og fólksfjölgun er sú mesta hlutfallslega síðan sautján hundruð og súrkál. Er Seðlabankinn ekki að slá ryki í augu ungs fólks sem aldrei mun geta keypt íbúð meðan stýrivextir eru þetta háir? Vekja óljósar væntingar um að nú sé allt orðið betra, þó byggingamarkaðurinn sé í raun lamaður frá sjónarhóli ungs fólks?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
4
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
1
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
3
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Halldór Jörgen Olesen
5
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár