Rekstri fjarvarmaveitna „sjálfhætt“ ef kaupa þarf forgangsorku

Á síð­asta ári var orku­skortur „far­inn að bíta svo hressi­lega“ að Lands­virkjun gat ekki selt meiri for­gangsorku. „Sú staða er óbreytt,“ segir upp­lýs­inga­full­trúi fyr­ir­tæk­is­ins. Í sumar var samið við gagna­ver um 5 MW af for­gangsorku.

Rekstri fjarvarmaveitna „sjálfhætt“ ef kaupa þarf forgangsorku
Heitt vatn Víða á Vest­fjörðum er að finna heitt vatn sem í ára­tugi hefur verið notað svæð­is­bundið, til dæmis í sund­laugum og nátt­úru­legum laugum. Mynd: Markaðsstofa Vestfjarða

Ástæðan fyrir því að tvær millj­ónir lítra af olíu voru brenndar í vara­afls­stöðvum á Vest­fjörðum í fyrra, tíu sinnum meira en árið áður, er sú að Orkubú Vest­fjarða er með raf­orku­samn­inga við Lands­virkjun um það sem kall­ast skerð­an­leg orka. Ef illa árar í vatns­bú­skapnum, og ekki er næg orka í kerf­inu, hefur Lands­virkjun heim­ild til að skerða afhend­ingu til kaup­enda skerð­an­legrar orku. Það varð og raunin í fyrra með fyrr­greindum afleið­ingum. Þessi mikla olíu­notkun var því að lang­mestu leyti ekki vegna bil­ana eða við­halds í raf­orku­kerf­inu og var hún nýtt til kynd­ingar á hita­veitum.

En hvers vegna hefur Orkubúið ekki samið við Lands­virkjun um kaup á for­gangsorku?

„Af því að það er mun dýr­ara,“ svarar Elías Jón­atans­son Orku­bús­stjóri. Grund­völlur fyrir rekstri raf­kyntra fjar­varma­veitna sé lágt raf­orku­verð. Hækki raf­orku­kostn­aður veit­unnar, til dæmis ef keypt er for­gangsorka, hækki kyndi­kostn­aður heim­il­anna. „Ef Orkubúið þyrfti að greiða for­gangsorku­verð fyrir ork­una á fjar­varma­veit­urnar yrði rekstr­inum sjálf­hætt,“ full­yrðir hann.

Orku­bús­stjóriElías Jón­atans­son.

Hversu mikið dýr­ara vill Lands­virkjun, sem Heim­ildin leit­aði svara hjá, ekki upp­lýsa, að öðru leyti en því að skerð­an­lega orkan sé „mun ódýr­ari“ en for­gangsorkan. Lengi vel hafi sárasjaldan þurft að grípa til skerð­inga á afhend­ingu. Því hafi slíkir samn­ingar verið hag­stæðir. „Sjálf­sagt hefði Orkubú Vest­fjarða getað samið um for­gangsorku áður fyrr,“ segir Ragn­hildur Sverr­is­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­virkj­unar. „Á síð­asta ári var orku­skortur far­inn að bíta svo hressi­lega að við gátum ekki selt meiri for­gangsorku. Sú staða er óbreytt. Eins og margoft hefur komið fram er mikil eft­ir­spurn eftir raf­orku og svig­rúm til sölu á skerð­an­legri raf­orku enn tak­mark­aðra en áður.“

Fjar­varma­veitur virka á nokkuð svip­aðan hátt og tvinn­bíll, þær geta bæði nýtt raf­orku og elds­neyti. „Með raf­væð­ing­unni var tekið stórt skref í átt að umhverf­is­vænni hús­hitun,“ rifjar Ragn­hildur upp. Allar veitur vinni nú af krafti að því að stíga skrefið til fulls og nýta ein­ungis end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa. „Við erum von­góð að með þeirri miklu þekk­ingu sem veit­urnar búa yfir og fram­þróun í bor­tækni og varma­dælum muni mik­ill árangur nást á næstu árum.“

UpphafiðBygging fjar­varma­veitna á Vest­fjörðum stór­bættu kjör og öryggi fólks á svæð­inu. Um þetta átak var fjallað í Morg­un­blað­inu árið 1979.

Ein þeirra leiða sem þegar er unnið að til að draga úr hætt­unni á því að grípa þurfi til olíu­brennslu til hús­hit­unar á Vest­fjörðum er að bora eftir heitu vatni. Sem dæmi standa vonir til að íbúar bæði Pat­reks­fjarðar og Ísa­fjarðar muni senn njóta góðs af. Með þessum aðgerðum, sem áætlað er að taki 2 til 4 ár, yrði dregið úr raf­kynd­ingu hita­veitna á Vest­fjörðum um ¾. Samtímis yrðu spöruð um 10 MW af orku. 

Ekki næg orka til „allra góðra verkefna“

Lands­virkjun hefur ítrekað bent á að mikil eft­ir­spurn sé eftir raf­orku hjá fyr­ir­tæk­inu og að ekki sé næg orka til „allra góðra verk­efna“. Að eft­ir­spurnin geti farið yfir afl­getu kerf­is­ins og að grípa þurfi til skerð­inga á sveigj­an­legum raf­orku­samn­ingum. „Það er ekki ólík­legt að það ger­ist einnig á kom­andi vetri,“ stóð í til­kynn­ingu á vef fyr­ir­tæk­is­ins í byrjun júlí þar sem góð staða í uppi­stöðu­lónum virkj­ana var tíunduð.

Samn­ingarLands­virkjun og atNorth gerðu með sér raf­orku­samn­ing í sumar vegna nýs gagna­vers á Akureyri. Samið var um 15 MW af orku, þar af 5 MW af for­gangsorku. Á mynd­inni eru, frá vinstri: Geir Arnar Mar­els­son, Tinna Trausta­dóttir, Valur Ægisson, Benedikt Gröndal og Sig­ur­björg Ýr Guð­munds­dóttir. Fremstir á mynd­inni eru Hörður Arnarson og Eyjólfur Magnús Krist­ins­son.

Nokkrum dögum fyrr hafði Lands­virkjun birt á vef sínum til­kynn­ingu um gerð raf­orku­samn­ings við gagna­verið atNorth á Akureyri. Með honum er gagna­ver­inu tryggð 5 MW af raf­orku auk 10 MW af skerð­an­legri orku. Lands­virkjun hafði áður samið við fyr­ir­tækið um raf­orku til tveggja ann­arra gagna­vera þess. Á Linkedin síðu atNorth segir að fyr­ir­tækið sér­hæfi sig í gagna­þjón­ustu og ráð­gjöf á ýmsum sviðum, meðal ann­ars í raf­mynt. For­stjóri Lands­virkj­unar stað­festi í sum­ar­byrjun að gagna­ver á Íslandi nýti í kringum 120 MW til þess eins að grafa eftir raf­mynt. Það jafn­ast á við upp­sett afl Sult­ar­tanga­virkj­unar og er tölu­vert meira en afl áform­aðrar Hvamms­virkj­unar (95 MW).

Uppsett afl raf­kyntra hita­veitna Orkubús Vest­fjarða er 21 MW en hæsti afltoppur er um 16 MW.

Segir gagnaver atNorth bæta nýtingu

Ragn­hildur segir að miðl­un­ar­lónum Lands­virkj­unar sé stýrt með þeim hætti að ekki þurfi að skerða for­gangsorku þrátt fyrir að vatnafar sé með versta móti. Aldrei hafi þurft að skerða for­gangsorku vegna vatns­stöðu. 

Upp­lýs­inga­full­trúiRagn­hildur Sverr­is­dóttir.

„Þeir not­endur sem kaupa for­gangsorku fá hana afhenta,“ segir hún. Hins vegar kveði orku­samn­ingar við stórnot­endur og aðra á um að hluti þeirrar orku sem keypt er sé skerð­an­legur. „Í skerð­ingum síð­ustu ára hafa stórnot­endur þurft að sæta því að afhend­ing orku til þeirra sé skert, í sam­ræmi við þau samn­ings­á­kvæði, þótt ávallt hafi tek­ist að afhenda umsamda for­gangsorku.“

Um samn­ing Land­virkj­unar við atNorth á Akureyri segir Ragn­hildur að gagna­verið sé mjög vel stað­sett með til­liti til afhend­ingar á raf­orku. Um nokk­urra ára skeið hafi sú staða verið uppi í flutn­ings­kerf­inu að ekki hafi tek­ist að flytja alla þá orku sem þörf er á frá Norður- og Aust­ur­landi til Suður- og Vest­ur­lands. „Með samn­ingum eykst álag á Norð­ur­landi sem dregur úr þörf fyrir orku­flutn­inga suður sem stuðlar svo aftur að betri nýt­ingu Þeista­reykja, Kröflu og Fljóts­dals­stöðvar.“

Lónin að fyllast en samt hætta á aflskerðingu

Tíðarfar í vor og fyrri hluta sum­ars hefur verið mjög hag­fellt á vatna­sviðum Lands­virkj­unar. Leys­ingar hófust snemma, strax í byrjun apríl, og inn­rennsli í miðl­un­ar­lón hefur verið vel yfir með­al­lagi. „Ef öll lón fyll­ast í haust þá er ólík­legt að grípa þurfi til orku­skerð­inga næsta vetur vegna slæmrar stöðu miðl­un­ar­lóna.“

Hins vegar, bendir Ragn­hildur á, sé mikil eft­ir­spurn eftir raf­orku frá Lands­virkjun og reynslan frá síð­asta vetri sýni að suma daga geti eft­ir­spurn farið yfir afl­getu kerf­is­ins. „Við slíkar aðstæður þarf að grípa til aflskerð­inga á sveigj­an­legum raf­orku­samn­ingum til að vernda afhend­ingu á raf­orku til almenn­ings. Það er ekki ólík­legt að það ger­ist einnig á kom­andi vetri.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Virkjanir

Bjarni gerði ekki „nokkra tilraun“ til sátta
GreiningVirkjanir

Bjarni gerði ekki „nokkra til­raun“ til sátta

Ráðherra orku- og umhverf­is­mála ætl­aði ekki að ganga gegn til­lögum verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sinni að flokkun átta virkj­un­ar­kosta. Tillagan var ekki afgreidd úr rík­is­stjórn þar sem ráð­herrar Vinstri grænna töldu að afmarka þyrfti virkj­ana­kosti sem lagt var til að vernda. Í stað þess að leiða ráð­herra flokk­anna til sam­ráðs um málið sleit for­sæt­is­ráð­herra rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.
Leggja Zephyr skýrar línur varðandi áform um risavaxið vindorkuver
FréttirVirkjanir

Leggja Zephyr skýrar línur varð­andi áform um risa­vaxið vind­orku­ver

Vind­orku­ver sem áformað er á Fljóts­dals­heiði yrði líkt og aðrar slíkar virkj­anir án for­dæma á Íslandi en sker sig að auki úr að því leyti að upp­sett afl þess yrði tvö­falt meira en í öðrum fyr­ir­hug­uðum vind­orku­verum. „Hér er því um að ræða mjög umfangs­mikla fram­kvæmd sem krefst mik­ils fjölda vind­mylla og getur haft mikil umhverf­is­á­hrif í för með sér,“ segir í áliti Skipu­lags­stofn­unar á verk­efn­inu.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár