„Við erum hættuleg sjálfum okkur og öðrum“

Þegar kemur að ástæðum Úkra­ínu­stríðs­ins hafa Rússar sjálfir, ólíkt ýmsum á Vest­ur­löndum, lít­inn áhuga á skýr­ingum eins og útþenslu NATO. And­ófs­menn og hugs­uðir beina athygl­inni að menn­ingu og hug­ar­fari þjóð­ar­innar sem hafi um aldir verið nærð á heims­veld­isórum. Í nýrri bók blaða­manns­ins Mikhails Zygars ávarpar hann landa sína.

„Við erum hættuleg sjálfum okkur og öðrum“
Stríð Þetta er túlkun rúss­neska mál­ar­ans Vasily Vereshchagins á ástand­inu í Mið-Asíu um 1870 eftir að rúss­neski nýlendu­her­inn hafði farið þar um. Myndin heitir Upp­hafn­ing stríðs og það er einmitt það sem Lebedev og Zygar ótt­ast að ein­kenni rússn­eskt sam­fé­lag í sorg­lega ríkum mæli. Mynd: Vasily Vereshchagins / Wikipedia

Eitt er merki­legt í sam­bandi við árás Rússa á Úkraínu, eða öllu heldur við­brögðin við árásinni. Þau sem bera blak af inn­rásinni á Vest­ur­löndum og/eða telja að hún hafi ekki verið með öllu órétt­mæt eða að minnsta kosti skilj­an­leg, þau nefna fyrst og fremst tvær ástæður fyrir ákvörðun Pútíns um inn­rás­ina í fyrra. Í fyrsta lagi geopóli­tískan og rétt­mætan ótta Rússa við útþenslu NATO og í öðru lagi illa með­ferð Úkra­ínu­manna á Rússum í Donbass.

Mikhail Zygar er fæddur 1982. Hann er í hópi virt­ustu blaða­manna Rúss­lands og starf­aði lengi hjá sjón­varps­stöð­inni Dozhd. Hann yfir­gaf Rússland rétt eftir inn­rás­ina í Úkraínu.

Um þetta má margt segja en merki­legt er sem sé að Rússar sjálfir hafa lít­inn áhuga á þessum ástæðum, þegar þeir eru spurðir um ástæður inn­rás­ar­innar. Þeir þvaðra gjarnan eitt­hvað um „nas­isma“ Úkra­ínu­manna sem er tómt bull. Margt …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Tjörvi Schiöth skrifaði
    "Um þetta má margt segja en merkilegt er sem sé að Rússar sjálfir hafa lítinn áhuga á þessum ástæðum [útenslu NATO], þegar þeir eru spurðir um ástæður innrásarinnar.... En svo fara þeir að tala um allt aðra hluti."

    Þetta er fullkomið kjaftæði og höfundur veit það. Ég þekki og hef talað við marga Rússa, og hef fylgst með því sem margir Rússar segja á netinu (eins og bloggarar o.s.frv.), á samskiptamiðlum, á vinsælum rússneskum Telegram-rásum o.s.frv. Þeir tala allir - alltaf - um austurstækkun NATO sem eina af helstu ástæðunum fyrir stríðinu. Ef eitthvað er þá er eins og þeir séu með NATO á heilanum... Að Vesturlönd séu að umrkringja Rússland (með NATO) o.s.frv. Þið þekkið söguna... Svo talar Pútín nú um NATO í nánast öllum af sínum ræðum.

    Þetta er mjög furðuleg afneitun hjá þér Illugi á staðreyndunum. Hvað ertu eiginlega að reyna að fela?
    2
  • Tjörvi Schiöth skrifaði
    "Þeir þvaðra gjarnan eitthvað um „nasisma“ Úkraínumanna sem er tómt bull."

    Neinei, það er sko ekkert nasistavandamál í Úkraínu. Sástu ekki nýlega grein New York Times þar sem var fjallað um þetta? Þetta var stórfrétt. Þegar NYT er farið að viðurkenna þetta, þá er ekki eins og þetta sé eitthvað vafamál lengur...

    Prófið líka bara að gúggla "nazi problem ukraine" (passa að setja "nazi problem" í gæsalappir, eins og bein tilvitnun), og þá fáið þið endalaust af greinum (mest fyrir febrúar 2022) sem fjalla um nasistavandamálið í Úkraínu. Þetta var svo vel þekkt...

    https://www.nytimes.com/2023/06/05/world/europe/nazi-symbols-ukraine.html
    2
  • Tjörvi Schiöth skrifaði
    Þetta stríð snýst allt um útþenslu NATO. Hættið þessari endalausu afneitun á staðreyndunum, þetta er orðið frekar vandræðalegt og örvæntingarfullt.

    Svo er einnig verulega kjánalegt í þessari grein hvernig höfundur afneitar ný-nasista vandamálinu í Úkraínu.

    Það var nú bara nýlega fjallað í New York Times um nasistana í úkraínska hernum, þar sem það þykir vera vandamál hversu algengt það að hermenn noti nasísk einkennismerki, eins og alræmdu Totenkopf hauskúpuna (sem var helsta einkennismerki SS-sveitanna).

    Í hvaða öðru ríki hafa líka paramilitary ný-nasistaherdeildir verið teknar inn í herinn og þjóðvarðliðið? Eins og Azov hersveitin, Sich, Aidar, Kraken og fleiri slíkar sveitir.

    Fasismi 101 - þegar paramilitary sveitir (eins og SS og SA sveitirnar á sínum tíma) fara að sameinast ríkisvaldinu, hernum og lögreglunni, þá á það að hringja miklum viðvörunarbjöllum. En ekki að vera sópað undir teppið í einhverri afneitunarhyggju og hentistefnu gagnvart staðreyndunum, eins og höfundur gerir hér í þessari grein.
    2
    • Gudmundur Einarsson skrifaði
      Heil Wagner. Eða þannig. Geta Rússar ekki verið nazistar? Stalín og Hitler voru bestu vinir 1939 og ætluðu að þurrka Pólland af kortinu. Pólverjar fengu völina um að vera drepnir af nazistum Hitlers eða kommum Stalíns. Svo sendi Stalín úkraínska herinn inn í Finnland um svipað leiti, Eystrarsaltsríkin hernumin og kúguð til hlýðni. Rússum leiddist ekki þegar Hitler rústaði veikburða lýðræðisríkjum Evrópu, heldur studdu hann af bestu getu. Það var fyrst eftir svik Hitlers sem þeir fóru að væla og hafa gert alla tíð síðan.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár