Sigurður segir brýnt að rannsaka Lindarhvol: „Miklir hagsmunir eru undir“

Sigurður Þórð­ar­son, settur rík­is­end­ur­skoð­andi í mál­efnum Lind­ar­hvols, segir brýnt að rík­is­sak­sókn­ari taki mál­efni Lind­ar­hvols til efn­is­legrar með­ferðar.

<span>Sigurður segir brýnt að rannsaka Lindarhvol:</span> „Miklir hagsmunir eru undir“
Áríðandi „Tel ég brýnt að emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara taki mál­efni Lind­ar­hvols ehf. til efn­is­legrar með­ferðar og afgreiðslu,“ skrifar Sigurður. Mynd: Skjáskot/Rúv

Veru­legur skortur“  var á því að Lind­ar­hvoll, Seðla­banki Íslands og slitabú bank­anna sem féllu í efna­hags­hrun­inu veittu Sigurði Þórð­ar­syni, fyrr­ver­andi settum rík­is­end­ur­skoð­anda „nauð­syn­legar upp­lýs­ingar“  sem hann þurfti til að sinna skoðun sinni. 

Þetta kemur fram í bréfi sem Sigurður sendi rík­is­sak­sókn­ara í lok júní og Heim­ildin hefur undir höndum. 

Hlutverk Lind­ar­hvols var að halda utan um og koma í verð eignum sem feng­ust frá slita­búum föllnu bank­anna eftir hrun. Sigurður fékk það hlut­verk að end­ur­skoða og hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd samn­ings rík­is­ins við Lind­ar­hvol um það. 

Hann var leystur frá emb­ætti setts rík­is­end­ur­skoð­anda fyrir tæpum fimm árum síðan. 

„Samhliða því að ég lauk störfum tók ég saman grein­ar­gerð um stöðu verks­ins og vakti sér­staka athygli á til­teknum atriðum, sem ég hafði ekki, þrátt fyrir beiðnir þar um, fengið upp­lýs­ingar og svör við,“ skrifar Sigurður. 

„Meðal þess­ara atriða voru upp­lýs­ingar um verð­mat og ráð­stöfun til­tek­inna eigna, sem ég taldi …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Eg renndi yfir plaggið sem birtist á Pírata vefnum. Ég reyndar fór hratt yfir en skildi illa. Það þarf greinilega heilmikla yfirlegu til að átta sig nægilega vel á því því sem þarna var tínt til.

    Greinilegt er að Sigurður hafði hvergi uppi neina dóma sem er auðvitað skiljanlegt. En víða er sagt frá stirðbusahætti þeirra sem áttu að vinna hlutina með algjörlega gegnsæjum hætti.

    Af reynslu þjóðarinnar af þögguðum hundakúnstum ráðandi afla í gegnum tíðina sem urðu svo sannarlega ljós við hrunið hefði maðu haldið að þessir karlar hefðu vandað sig. Það virðist ljóst enn einu sinni hvernig viðskiptahættir og pólitík fara saman.

    Það er auðvitað mikilvægt að t.d. saksóknari rannsaki þessa greinargerð og jafnvel aðrir sem gætu verið óhultir af hagsmunagæslu fjármaálaflana og af gömlu valdaflokkunum.
    1
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Má saksóknari það... getur hann það ... hefur hann þekkinguna og mannskapinn og heilindin ? Ég efa það stórlega.

      Saksóknari tilheyrir kerfinu... svo hann á að rannsaka yfirmenn sína ??? Í alvöru Æi.
      -1
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Umtalsverðum fjármunum stolið
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lindarhvoll

Ríkisendurskoðandi: „Sigurður hafði ekki umboð til að hafa afskipti af málum“
FréttirLindarhvoll

Rík­is­end­ur­skoð­andi: „Sigurður hafði ekki umboð til að hafa afskipti af málum“

Guð­mundur Björgvin Helgason rík­is­end­ur­skoð­andi segir dreif­ingu grein­ar­gerðar Sigurðar Þórð­ar­sonar, setts rík­is­end­ur­koð­anda með Lind­ar­hvoli, vera lög­brot. Grein­ar­gerðin hafi ekk­ert erindi átt út úr húsi Rík­is­end­ur­skoð­unar. Þá hafi Sigurður alls ekki haft fullar heim­ildir rík­is­end­ur­skoð­anda í störfum sínum, ólíkt því sem haldið hafi verið fram.
Sigurður Þórðarson: „Vegið alvarlega að starfsheiðri mínum“
FréttirLindarhvoll

Sigurður Þórð­ar­son: „Vegið alvar­lega að starfs­heiðri mínum“

Settur rík­is­end­ur­skoð­andi vegna Lind­ar­hvols, Sigurður Þórð­ar­son, gerði margar og harð­orðar athuga­semdir við skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar í bréfi sem hann sendi Stein­grími J. Sig­fús­syni for­seta Alþingis í febr­úar 2021. Sagði hann meðal ann­ars að Rík­is­end­ur­skoðun rang­túlk­aði bæði gögn um virð­is­aukn­ingu stöð­ug­leika­eigna, sem og skrif hans sjálfs um stjórn­skipu­lag félags­ins.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár