Jón Guðni Ómarsson: Starfslok stjórnenda Íslandsbanka ekki að þeirra frumkvæði

Nýr banka­stjóri Íslands­banka tók ákvörðun um að tveir stjórn­endur innan bank­ans yrðu að víkja vegna ábyrgðar þeirra á útboði á hlut rík­is­ins í bank­anum. Jón Guðni Ómarsson segir að með því og öðrum aðgerðum haldi hann að takast megi að vinna aftur traust í garð bank­ans en það muni taka tíma „og mikla vinnu“.

<span>Jón Guðni Ómarsson:</span> Starfslok stjórnenda Íslandsbanka ekki að þeirra frumkvæði
Sagir bank­ann hafa axlað ábyrgð Með ákvörðun sinni um að stjórn­endur innan Íslands­banka yrðu að víkja úr störfum telur nýr banka­stjóri, Jón Guðni Ómarsson, að búið sé að axla ábyrgð á lög­brotum við útboð á hlut rík­is­ins á bank­anum á síð­asta ári. Engir sem hafi borið höf­uð­á­byrgð á því ferli séu nú starf­andi innan bank­ans. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Starfs­lok tveggja stjórn­enda hjá Íslands­banka, þeirra Atla Rafns Björns­sonar og Ásmundar Tryggva­sonar, voru ekki að þeirra frum­kvæði heldur sam­kvæmt kröfu nýs banka­stjóra bank­ans, Jóns Guðna Ómars­sonar. Gert var sam­komu­lag um starfs­lok þeirra beggja og með því eru, að sögn Jóns Guðna, allir þeir sem ábyrgð báru á mis­gjörðum og laga­brotum bank­ans við útboð á hlut rík­is­ins í bank­anum í mars 2022 hættir störfum innan bank­ans.  

„Þetta eru fyrstu verkin sem ég fór að skoða, eftir að ég tók við, hvaða breyt­ingar ætti að gera, og þetta er eftir sam­tal okkar á milli og sam­komu­lag um starfs­lok,“ segir Jón Guðni í sam­tali við Heim­ild­ina, spurður um hvort að þeim Atla Rafni og Ásmundi hafi verið sagt upp störfum. Spurður enn frekar hvort hann hafi talið nauð­syn­legt að þeir vikju, með heild­ar­hags­muni bank­ans í huga, játar hann því.

„Með þessum aðgerðum þá er eng­inn af þeim stjórn­endum sem komu að verk­inu lengur í þeim störfum, og við erum búin að axla ábyrgð.“
Jón Guðni Ómarsson

 „Já, það má segja það. Þegar ég skoð­aði þetta heilt yfir og hvað væri rétt að gera þá horfði ég til þess að þarna voru klár­lega mis­tök gerð í heild­ar­ferl­inu. Ef einn starfs­maður gerir mis­tök þá eru mis­tökin svo­lítið hans en ef hópur starfs­manna gerir mis­tök þá eru það stjórn­endur sem bera ábyrgð­ina. Með þessum aðgerðum þá er eng­inn af þeim stjórn­endum sem komu að verk­inu lengur í þeim störfum, og við erum búin að axla ábyrgð.“

Þannig að eftir að Birna hætti störfum, og núna Atli Rafn og Ásmundur, þá eru engir starf­andi hjá bank­anum sem báru meg­in­á­byrgð­ina á sölu­ferl­inu á sínum tíma?

„Nákvæm­lega.“

Vill ekki tjá sig um yfirmann lögfræðisviðs

Jón Guðni tók við stöðu banka­stjóra Íslands­banka aðfara­nótt 28. júní síð­ast­lið­ins, þegar Birna Ein­ars­dóttir lét af störfum á stjórn­ar­fundi bank­ans sem hófst síð­degis 27. júní og stóð fram á nótt. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar hafði Birna ekki hug á að láta af starfi sem banka­stjóri þegar stjórn­ar­fund­ur­inn hófst og gerði hvað hún gat til að halda í stöðu sína en án árang­urs. Brott­hvarf Birnu, auk þeirra Ásmundar og Atla Rafns, er það sem Jón Guðni vísar til þegar hann segir að eng­inn stjórn­andi sem bar ábyrgð á útboðinnu og því sem þar fór úrskeiðis sé nú starf­andi í bank­anum.

Tómas Sig­urðs­son er yfir­maður lög­fræðis­viðs Íslands­banka og var það einnig þegar útboðið fór fram og í aðdrag­anda þess. Spurður út í stöðu hans, í ljósi þess að segja má að það hljóti að hafa átt að vera á sviði lög­fræði­deildar bank­ans að hafa yfir­sýn yfir ýmsa þætti þess verk­lags sem mis­fórst við útboðið, svo sem að stefna um hags­muna­á­rekstra innan bank­ans hafi ekki tekið mið af nýjum og strengri lögum, svarar Jón Guðni: „Einmitt. Ég ætla svo sem ekki að tjá mig um ein­staka starfs­menn umfram það sem kom í fréttum um helg­ina. Það hefur verið mikil umræða um ýmsa þætti verks­ins en það er mitt mat að þeir stjórn­endur sem báru ábyrgð á verk­efn­inu hafi þegar stigið til hliðar.“ Spurður hvort frek­ari skipu­lags­breyt­ingar standi fyrir dyrum neitar Jón Guðni því.

Var á svæðinu þegar kallið kom

Ráðning Jóns Guðna átti sér stuttan aðdrag­anda enda hafði Birna lýst því yfir að hún hefði traust stjórnar og hyggð­ist ekki víkja sem banka­stjóri. Annað kom hins vegar á dag­inn seint aðfar­arnótt síð­ast­lið­ins mið­viku­dags. Jón sat sjálfur ekki fund­inn en segir aðspurður að það hafi verið fal­ast eftir kröftum hans að kvöldi þriðju­dags­ins.

Og hvernig ger­ist það, tók Finnur Árnason [stjórn­ar­for­maður Íslands­banka] bara upp sím­ann, hringdi í þig og spurði: Viltu verða banka­stjóri?

„Nei nei, ég var á svæð­inu þó ég væri ekki á fund­inum sjálfum svo hann þurfti ekki langt að sækja.“

Hvernig varð þér við þegar hann nálg­að­ist þig með þetta?

„Mér brá í fyrstu, þó að ein­hverju leyti hafi ég verið við­bú­inn því að ýmis­legt gæti gerst þá vissi maður ekki hvernig þetta myndi enda.“

„Það var ein­hver umhugsun en ég ákvað svo að það væri rétt að henda mér í þetta“
Jón Guðni Ómarsson
um ákvörðun sína um að taka að sér banka­stjóra­starfið

En þú hefur aug­ljós­lega ekki hikað lengi við. Sagðir þú bara fljótt og fal­lega já?

„Það er nú kannski ekki alveg svo ein­falt. Ég var beð­inn um að taka þetta að mér og sem stað­geng­ill var það kannski eðli­leg­ast. Það var ein­hver umhugsun en ég ákvað svo að það væri rétt að henda mér í þetta.“

Það gerir gott betur en að gusta um bank­ann þessa dag­ana, það er tölu­vert verk­efni sem þú tekur í fangið, hvarfl­aði aldrei að þér að þú værir betur kom­inn með að þurfa ekki að taka við sím­tölum eins og þessu?

„Jú, þú getur rétt ímyndað þér.“

En þú telur að þú sért vel í stakk búinn til að takast á við verk­efnið, og leiða til að mynda þessa end­ur­skoðun til lykta á far­sælan hátt?

„Já, ég tel það. En það er svo ann­arra að meta það.“

Þú ert ráð­inn í þessa stöðu en það er boðað til hlut­hafa­fundar í bank­anum 28. þessa mán­aðar. Telurðu að þú þurfir að hafa ein­hverjar áhyggjur af starfi þínu á þeim fundi?

„Ja, þegar stórt er spurt. Það er kannski ekki mitt að meta. Ég er bara að hugsa um hvern dag í einu núna, að gera mitt allra besta til að róa hlut­ina og tryggja að bank­inn sé í góðri starf­semi og sinni okkar við­skipta­vinum. Hitt er svo bara eitt­hvað sem kemur í ljós.“

En þú ert áfram um það, og fús til, að gegna starf­inu áfram?

„Já, það er rétt.“

Vonast til að sjálfsskoðun gagnist bankanum

Eins og Jón Guðni nefndi segir hann að með skipu­lags­breyt­ingum innan bank­ans sé búið að axla ábyrgð á því sem mis­fórst í útboð­inu. Spurður hvort hann fari í það verk að velta við frek­ari steinum í rekstri bank­ans, svarar hann:

„Ég fer auð­vitað í það að stýra bank­anum heilt yfir en úrbóta­kröf­urnar sem settar voru fram í sátt­inni við Seðla­bank­ann snúa mest að þeim ein­ingum sem komu að verk­inu. Á sama tíma förum við í sjálfs­skoðun varð­andi áhættu­menn­ing­una heilt yfir, hvort við getum bætt hana, en á flestum sviðum bank­ans er sterk menn­ing, við þurfum bara að styrkja hana heilt yfir.“

Segir áhættumenningu hafa verið ábótavant

Í við­tali Heim­ild­ar­innar við Finn Árnason, stjórn­ar­for­mann bank­ans, í síð­ustu viku vildi Finnur ekki kann­ast við að það væri eitt­hvað brogað við áhættu­menn­ing­una innan bank­ans.

Í umræddu við­tali sagði Finnur að fjár­mála­eft­ir­litið drægi of víð­tækar álykt­anir í sátt­inni, ekki síst varð­andi áhættu­menn­ingu innan bank­ans. „Það er langur vegur frá að hér sé áhættu­menn­ing eða áhættu­stýr­ing í ólagi,“ sagði Finnur. Spurður enn frekar hvort hann væri þá ósam­mála þeirri nið­ur­stöðu í mati fjár­mála­eft­ir­lits­ins að áhættu­men­ing innan bank­ans hafi verið óeðli­leg þegar kom að útboð­inu og sölu­ferl­inu á hlutum í bank­anum svar­aði Finnur: „Mér finnst ekki skýrt afmarkað í þess­ari skýrslu, þegar verið er að segja frá þessum álykt­unum sem eru dregnar mjög víða í skýrsl­unni, að það eigi við um þetta verk­efni.“

„Þessi skýrsla segir hins vegar að áhættu­menn­ingu var ábóta­vant, klár­lega, varð­andi ýmsa þætti“
Jón Guðni Ómarsson
um áhættu­menn­ingu innan Íslands­banka

Því er ekki hægt að segja að Finnur hafi svarað því mjög skýrt hvaða afstöðu hann taki til þess hvort áhættu­menn­ingu hafi verið áfátt í tengslum við útboðið. Spurður hvort hann telji að svo hafi verið svarar Jón Guðni: „Þannig að ég tali algjör­lega skýrt: Áhættu­menn­ing bank­ans er mjög sterk á mörgum sviðum, til að mynda í útlánum. Þessi skýrsla segir hins vegar að áhættu­menn­ingu var ábóta­vant, klár­lega, varð­andi ýmsa þætti. Við munum nýta þá vinnu sem framundan er í hvort við getum styrkt hana ann­ars staðar líka.“

Þannig að ergo, henni var ábóta­vant í bank­anum?

„Nei, ég var ekki að segja það. Bankinn nátt­úru­lega er í mjög fjöl­þættri starf­semi og megnið af dag­legri starf­semi er í föstum skorðum til langs tíma, og áhættu­menn­ing mjög, mjög sterk. Þegar við förum hins vegar að skoða heilt yfir með ráð­gjöfum hvernig áhættu­menn­ing getur verið enn betri getur alveg verið að það nýt­ist þvert yfir bank­ann allan, en ekki bara á þessum sviðum sem um ræðir. Svo það sé alveg skýrt.“

Verið að kanna hvort um einangrað tilvik hafi verið að ræða

Varðandi sátt­ina við fjár­mála­eft­ir­litið, ert þú sam­mála atvika­lýs­ing­unni í henni í meg­in­at­riðum?

„Við getum sagt að við auð­vitað skrifum undir sátt­ina og erum sam­mála því að þarna hafi ýmis­legt mis­farist. Svo munum við fara ítar­lega yfir þetta á hlut­hafa­fundi og reyna að greina grunnor­sök­ina, hvers vegna þessi mis­tök urðu. Við munum síðan ein­blína á úrbætur og tryggja að slíkt ger­ist ekki aftur.“

Lítur þú á þau mis­tök og brot sem urðu í sölu­ferl­inu sem ein­angrað til­vik, sem ekki sé hægt að draga víð­tækar álykt­anir af um starf­semi bank­ans?

„Það er einmitt það sem við erum að skoða núna, við erum að fá ráð­gjafa til að skoða með okkur hvernig ýmis konar skipu­lagi er best háttað erlendis. Út úr þeirra vinnu sjáum við kannski hvernig það liggur allt saman.“ Umræddir ráð­gjafar eru frá fyr­ir­tæk­inu Oliver Wyman, sem er alþjóð­legt ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar í New York.

Segir starfsmenn finna fyrir mikill samkennd

Spurður hvort Íslands­banki hafi misst frá sér við­skipta­vini und­an­farna daga vegna máls­ins segir Jón Guðni að bank­inn hafi ekki fundið fyrir því. „Við höfum einmitt fundið mjög mikla sam­kennd hjá okkar við­skipta­vinum og fengið mjög mikið af sím­tölum þar sem haft er sam­band við fram­línu­starfs­fólk hjá okkur.“

Erum við að tala um að fólk sem vinnur í þjón­ustu­veri eða gjald­kera, sem er að fá klapp á bakið?

„Ég myndi nú ekki segja það. Vissu­lega verðum við vör við ein­hver dæmi um ósátta við­skipta­vini en við finnum líka fyrir mik­illi sam­kennd, þetta eru erf­iðir tímar. Fólk er búið að vera í við­skipta­sam­böndum lengi og þekk­ist vel þannig að það er bara sam­kennd sem við finnum í allri fram­línu bank­ans.“

Hyggst reyna að vinna traust VR

Stjórn VR for­dæmdi í lið­inni viku við­brögð Íslands­banka varð­andi brot starfs­manna bank­ans í útboð­inu. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, lýsti því að með sam­þykkt stjórn­ar­innar fælist hótun um að félagið myndi hætta við­skiptum sínum við bank­ann, en þau er veru­lega mikil. Spurður hvernig yfir­lýs­ingar sem þessar slægu hann svarar Jón Guðni: „Það slær mig nátt­úru­lega ekki vel. Ég ætla að hitta þau, og við munum gera okkar allra besta gagn­vart þeim eins og öðrum við að end­ur­vinna traustið.“

Meðal ann­ars eins og þú sagðir í upp­hafi sam­tals­ins með þessum skipu­lags­breyt­ingum sem þið hafið þegar gert varð­andi Atla Rafn og Ásmund?

„Já, nákvæm­lega.“

„Því má segja að útboðið var ekki vel heppnað að því leyti til“
Jón Guðni Ómarsson
spurður um álit hans á orðum for­stjóra Banka­sýsl­unnar um að útboðið hafi verið það best heppn­aða í Íslands­sög­unni

Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýsl­unnar, er ennþá á því að þetta hafi verið besta útboð Íslands­sög­unnar og kannski best heppn­aða útboð í Evrópu fyrr og síðar. Getur þú deilt þeirri skoðun með Jóni Gunnar?

„Ég held að ég sé kannski ekk­ert að tjá mig um það, eða setja ein­hver sér­stök lýs­ing­ar­orð á það. Ég held að útkoman fjár­hags­lega, borið saman við önnur við­skipti erlendis, þá kom selj­and­inn ágæt­lega út. Hins vegar voru mis­tök í fram­kvæmd­inni og þær hafa haft afleið­ingar. Því má segja að útboðið var ekki vel heppnað að því leyti til.“

Er sektin sem lögð er á bank­ann mikið högg fyrir rekstur hans, í stóra sam­heng­inu?

„Þetta er vit­an­lega högg en þrátt fyrir það högg er und­ir­liggj­andi afkoma bank­ans sterk og gert ráð fyrir að afkoman verði yfir arð­sem­is­mark­miðum á árinu.“

Ef þú horfir á þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til, manna­breyt­ingum og end­ur­skoðun á starf­semi bank­ans, áttu þá von á að ykkur tak­ist að end­ur­vinna til­trú almenn­ings, stjórn­mála­manna og ykkar við­skipta­vina fljótt og vel?

„Ég held að okkur muni takast það en það mun klár­lega taka tíma og mikla vinnu.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KÞ
    Kristín Þorsteinsdóttir skrifaði
    Vantar alveg að spyrja um hvers vegna lögbrjótarnir eru verðlaunaðir með milljóna starfslokagreiðslum.
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    3 feitar meyjafornir sem fá feita skilapakka og málið er dautt. Kostnaði velt a almenning. Oh hvar er rannsóknin Heimild ? Greining og collateral beneficiaries?

    Deja Vu.
    0
  • HK
    Helga Kristjánsdóttir skrifaði
    Það slær mig hvað nýráðinn bankastjóri, Jón Guðni talar ýtrekað um að mistök hafi verið gerð í söluferlinu. Þannig eru lögbrotin sem framin voru í raun gengisfelld því mistök fela í sér að eitthvað hafi verið gert óvart og án ásetnings. Um það er ekki að ræða í þessu máli.
    1
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Gott viðtal við Jón Guðna. ,,Fleiri stjórnendum verður ekki sagt upp," en hvað með aðra, sem útveguðu sér eða nákomnum aðgang að kaupum á hlutabréfum fram hjá réttum leikreglum í skjóli slælegrar stjórnunar? Er hræddur um, að flórmokstrinum sé ekki lokið, ef endurvinna á traust markaðarins. Ætla má, að núverandi stjórn Íslandsbanka liggi banaleguna. Hvað gerir ný stjórn?
    0
  • Viðar Eggertsson skrifaði
    Takk Heimildin. Nú þyrfti að upplýsa hvað hver þessara starfsmanna fær í laun í starfslokasamningum sínum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár