Birna hætt sem bankastjóri Íslandsbanka

„Ég hef ákveðið að stíga til hliðar sem banka­stjóri Íslands­banka með hags­muni bank­ans að leið­ar­ljósi svo ró geti mynd­ast vegna sáttar Íslands­banka við fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Birnu Ein­ars­dóttur.

Birna hætt sem bankastjóri Íslandsbanka
Hætt Birna Ein­ars­dóttir hefur ákveðið að stíga til hliðar sem banka­stjóri Íslands­banka. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, og stjórn bank­ans hafa gert sam­komu­lag um starfs­lok Birnu að hennar frum­kvæði. Stjórnin hefur ráðið Jón Guðna Ómarsson í starf banka­stjóra. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­anum.

Birna hættir í kjöl­far þess að sátt Ís­lands­banka við fjár­mál­eft­ir­lit Seðla­banka Ís­lands var birt en hún fel­ur í sér við­ur­kenn­ingu á að lög hafi ver­ið brot­in við sölu á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­an­um á síð­asta ári.

Jón Guðni hefur starfað hjá Íslands­banka og for­verum hans frá árinu 2000 og gegnt starfi fram­kvæmda­stjóra fjár­mála bank­ans frá 2011. Jón Guðni mun áfram gegna stöðu fram­kvæmda­stjóra fjár­mála Íslands­banka uns ráðið hefur verið í þá stöðu.

Í yfir­lýs­ingu frá Birnu kemur fram:

„Ég hef ákveðið að stíga til hliðar sem banka­stjóri Íslands­banka með hags­muni bank­ans að leið­ar­ljósi svo ró geti mynd­ast vegna sáttar Íslands­banka við fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands. Með því axla ég ábyrgð á mínum þætti máls­ins. Umræðan hefur verið óvægin og ýmsum stjórn­mála­mönnum hefur verið tíð­rætt um afsögn mína. Ég óska þeim vel­farn­aðar í þeirra störfum. 

Það er með miklum trega sem ég yfir­gef Íslands­banka enda hef ég starfað hjá bank­anum og for­verum hans í um 30 ár. Starfsævi mín hefur nán­ast öll verið helguð bank­anum og okkur hefur tek­ist að byggja upp eitt öfl­ug­asta fyr­ir­tæki lands­ins með ein­stökum starfs­manna­hópi. Ég hef eign­ast marga góða vini bæði í hópi starfs­fólks og við­skipta­vina. Sátt fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands snýr ein­göngu að þessu eina verk­efni, að öðru leyti hefur fer­ill minn hjá bank­anum verið far­sæll. 

Undir minni stjórn, sem banka­stjóri, hefur eigið fé bank­ans auk­ist um næstum 150 millj­arða auk þess sem ríf­lega 110 millj­arðar hafa verið greiddir í arð til hlut­hafa.

Okkur hefur tek­ist að ná fram fjölda sigra á fjár­mála­mark­aði með mann­leg gildi að leið­ar­ljósi. Ég kveð bank­ann með sökn­uði en sátt við mitt verk. Ég óska öllu mínu sam­starfs­fólki góðs gengis og vona inni­lega að með þessu skap­ist friður í kringum fyr­ir­tækið og fólkið sem mér þykir svo vænt um.“

Jón Guðni var for­stöðu­maður fjár­stýr­ingar frá 2008 til 2011. Jón hefur sinnt ýmsum störfum hjá bank­anum og for­verum hans, til dæmis innan mark­aðsvið­skipta, þar sem hann veitti ráð­gjöf um áhættu­varnir og á fyr­ir­tækja­sviði, þar sem hann tók þátt í erlendum lán­veit­ingum. Jón Guðni hefur einnig sinnt ráð­gjöf við áhættu­stýr­ingu banka hjá SunGard í Boston.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár