Mynd: Íslandsbanki

„Sælir strákar, gaman að hitta ykkur í dag“

Á meðal þeirra alvar­legu lög­brota sem starfs­menn Íslands­banka frömdu í tengslum við útboð á hlut íslenskra rík­is­ins í bank­anum var að flokka suma við­skipta­vini sína sem fag­fjár­festa. Slík flokkun var stundum fram­kvæmd á nokkrum mín­útum og í ein­hverjum til­vikum nokkrum dögum eftir að útboðið var yfir­staðið. Þá hvöttu starfs­menn Íslands­banka almenna fjár­festa til að óska eftir því að fá stöðu fag­fjár­festis svo þeir gætu tekið þátt í útboð­inu, sem var ein­ungis ætlað hæfum fjár­festum.

Í febr­úar 2022 var birt grein­ar­gerð Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um frek­ari sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Ein helsta nið­ur­staða hennar var sú að skyn­sam­legt væri að næsta skref í sölu á Íslands­banka væri með lok­uðu útboði þar sem ein­ungis hæfir fjár­festar, einnig kall­aðir fag­fjár­festar, myndu fá að kaupa hluti í bank­anum með afslætti. Eftir söl­una yrði íslenska ríkið ekki lengur meiri­hluta­eig­andi í Íslands­banka.

Þann 22. mars sama ár var svo 22,5 pró­sent hlutur íslenska rík­is­ins í Íslands­banka seldur á 52,65 millj­arða króna, sem var 2,25 millj­örðum króna undir dagsloka­gengi bank­ans á sölu­degi. Alls voru 207 fjár­festar valdir til að fá að taka þátt í kaup­unum. 

Til að flokk­ast sem fag­fjár­festir þarf að upp­fylla tvö af þremur skil­yrðum sam­kvæmt lögum. Skil­yrðin þrjú eru: að hafa átt ákveðið mörg við­­skipti á árs­fjórð­ungi, að fjár­­­­­­­mála­­­­gern­ingar þeirra og inn­­­i­­­­stæður væru sam­an­lagt virði 500 þús­und evra (um 75 millj­ónir króna) eða meira eða að fjár­­­­­­­festir hafi gegnt eða gegni, í að minnsta eitt ár, stöðu í fjár­­­­­­­mála­­­­geir­­­­anum sem krefst þekk­ingar á fyr­ir­hug­uðum við­­­­skiptum eða þjón­ust­u.

Í skýrslu um sátt sem Íslands­banki hefur gert við Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands vegna lög­brota sem bank­inn framdi í tengslum við útboðið, og mun borga tæp­lega 1,2 millj­arða króna í sekt vegna, kemur skýrt fram að starfs­menn Íslands­banka reyndu ítrekað að flokka ein­stak­linga sem upp­fylltu ekki skil­yrði til þess að telj­ast fag­fjár­festar sem slíka, og veita þeim þannig aðgengi að því að kaupa rík­is­eign í útboð­inu. 

Átta almennir fjárfestar urðu fagfjárfestar

Fjár­mála­eft­ir­litið kemst að þeirri nið­ur­stöðu að í átta til­vikum hafi starfs­menn Íslands­banka náð að flokkað við­skipta­vini sína, sem voru almennir fjár­festar, sem fag­fjár­festa svo þeir gætu tekið þátt í útboð­inu. Í þessum átta til­vikum hafi þeir fjár­festar sem undir voru ekki upp­fyllt skil­yrði laga til að vera fá þannig flokkun. 

Í skýrslu eft­ir­lits­ins kemur enn fremur fram að starfs­menn Íslands­banka hafi ýmist átt frum­kvæði að því að flokka við­skipta­vin­ina með þessum hætti eða hvatt þá til að óska eftir að fá stöðu fag­fjár­festis. 

Þessi hátt­semi var lög­brot. Ein­stak­lingar sem áttu ekk­ert erindi við að taka þátt í útboði sem ein­ungis var ætlað fag­fjár­festum fengu það samt.

Í skýrsl­unni er hvert þeirra átta til­vika þar sem fag­fjár­festa­hattur var hengdur á almenna fjár­festa til að tryggja þeim þátt­töku í útboð­inu rakið nokkuð ítar­lega. 

Banka­stjór­innBirna Ein­ars­dóttir hefur stýrt Íslands­banka frá árinu 2008.

Fyrsta félagið, kallað Félag A, sótti ekki um stöðu fag­fjár­festis fyrr en þremur dögum eftir að útboðið var yfir­staðið, eða 25. mars 2022. Það var því enn flokkað sem almennur fjár­festir þegar það tók þátt í lok­uðu útboði sem ein­ungis var ætlað fag­fjár­festum.  

Félag A átti aldrei að fá slíka flokkun yfir höfuð. Gögn máls­ins sýni að Íslands­banki hafi ekki kannað með full­nægj­andi hætti hvort nettó eignir félags­ins hafi upp­fyllt skil­yrði. Þannig hafi til að mynda engin gögn borist um skulda­stöðu Félags A. 

Uppfyllti ekkert skilyrði

Saga Félags B var svipuð, en brotin umfangs­meiri. Það und­ir­rit­aði ekki umsókn um að fá stöðu fag­fjár­festis fyrr en þremur dögum eftir útboðið, og var því almennur fjár­festir þegar hlutur rík­is­ins var seldur. Raunar var það þannig að lög­fræði­deild Íslands­banka sam­þykkt umsókn Félags B með tölvu­pósti skömmu eftir hádegið þann dag, en þá lá hvorki fyrir und­ir­rituð umsókn um flokkun sem fag­fjár­festir né umboð þess sem sótt­ist eftir þátt­töku fyrir hönd eig­and­ans til að taka ákvarð­anir fyrir hönd félags­ins.

Að mati fjár­mála­eft­ir­lits­ins upp­fyllti það ekki neitt af skil­yrð­unum sem þarf að upp­fylla til að telj­ast fag­fjár­festir. 

Sá sem kom fram fyrir Félög A og B lagði líka inn til­boð fyrir Félag C. Líkt og í hinum til­fell­unum var sótt um stöðu fag­fjár­festis þremur dögum eftir útboðið. Í skýrsl­unni segir að eig­andi félags­ins hafi veitt for­svars­mann­inum umboð til að taka ákvarð­anir um við­skipti með fjár­mála­gern­inga félags­ins sama dag og umsóknin var lögð inn. Engin gögn fylgdu umsókn félags­ins um flokkun sem fag­fjár­festir. 

Eignastaða á reiki

Félag D sótti um að verða flokkað sem fag­fjár­festir sama dag og útboðið fór fram, 22. mars 2022. Samkvæmt tölvu­póst­sam­skiptum sem áttu sér stað milli lög­fræði­deildar Íslands­banka og starfs­manns bank­ans sem kom að kaupum Félags D í bank­anum, sem áttu sér stað milli 19:02 og 19:28 það kvöld, upp­fyllti félagið hins vegar ekki skil­yrði um fjölda við­skipta sem þarf til að telj­ast fag­fjár­festir. 

Í skýrsl­unni segir að svo virð­ist sem Íslands­banki hafi hins vegar kom­ist að því að félagið upp­fyllti skil­yrði um eigna­stöðu án þess að verð­gildi fjár­mála­gern­inga og inn­stæðna þess væri til­greint í umsókn­inni. „Þau gögn sem máls­að­ili vísar til um mat á fram­an­greindu skil­yrði er vörslu­reikn­ingur hjá máls­að­ila. Fjár­mála­eft­ir­litið óskaði eftir gögnum og barst ein­ungis hreyf­inga­yf­ir­lit fyrir umræddan vörslu­reikn­ing. Því liggur ekki fyrir hvaða verð­bréfa­eign máls­að­ili mið­aði við í mati sínu.“ 

Engin gögn bár­ust auk þess um skulda­stöðu félags­ins og virð­ist hún ekki hafa verið höfð til hlið­sjónar við mat á nettó eign félags­ins í fjár­mála­gern­ingum og inn­stæðum eins og reglur máls­að­ila kveða á um.

Ekki nógu mörg viðskipti til að teljast fagfjárfestir

Í fimmta til­vik­inu sem er til­greint í skýrsl­unni er búið að sverta út hluta upp­lýs­inga um við­skipta­vin­inn. Við­kom­andi ein­stak­lingur sendi inn umsókn um að telj­ast fag­fjár­festir sama dag og útboðið fór fram og fékk umsókn­ina sam­þykkta 48 mín­útum síðar. 

Seðla­banka­stjóriFjár­mála­eft­ir­lits­nefnd Seðla­banka Íslands tók ákvörðun um það á fundi sínum 7. júní síð­ast­lið­inn að ljúka mál­inu með sátt við Íslands­banka. Í því felst að bank­inn greiði tæp­lega 1,2 millj­arða króna sekt til rík­is­sjóðs.

Í skýrsl­unni segir að með umsókn­inni hafi fylgt hreyf­inga­listi með upp­lýs­ingum um tölu­verð við­skipti með gjald­eyri á árinu 2021. „Á hreyf­ing­ar­list­anum eru ekki nægi­lega skýrar upp­lýs­ingar um hvort um stund­ar­við­skipti með gjald­eyri sé að ræða eða fram­virk við­skipti. Fjár­mála­eft­ir­litið bendir á að stund­ar­við­skipti með gjald­eyri telj­ast ekki til við­skipta með fjár­mála­gern­inga og því ekki hægt að leggja slík við­skipti til grund­vallar mati á umfangi við­skipta. Við­skiptin sem koma fram á hreyf­inga­list­unum ná ekki við­miði sam­kvæmt reglum máls­að­ila um umfang við­skipta, þ.e. 40 við­skipti sem nema a.m.k. 1 milljón króna hver.“

Fjár­mála­eft­ir­litið taldi því við­kom­andi ekki upp­fylla skil­yrði laga um að flokk­ast sem fag­fjár­festir. „Að mati fjár­mála­eft­ir­lits­ins geta upp­lýs­ingar sem veittar voru í umsókn­inni ekki talist nægj­an­lega ítar­legar til að veita við­un­andi vissu um að við­skipta­vinur búi yfir nægj­an­legri þekk­ingu og reynslu til að taka sjálfur ákvörðun um fjár­fest­ingar og skilja þá áhættu sem í þeim felst.“

Umsóknir samþykktar á örfáum mínútum

Sjötta til­vikið sem fjallað er um snýr að fjár­festi sem sendi tölvu­póst til sam­starfs­manns síns sama dag og útboðið fór fram og óskaði eftir því að verða fag­fjár­festir. Umsóknin var sam­þykkt sex mín­útum eftir að hún var und­ir­rituð að kvöldi 22. mars. 

Til að upp­fylla kröfur um að vera flokk­aður sem fag­fjár­festir þarf að eiga umtals­verð við­skipti sem eiga að vera að með­al­tali að minnsta kosti tíu á hverjum árs­fjórð­ungi næst­liðna fjóra árs­fjórð­unga á við­eig­andi mark­aði. Sá sem hér um ræðir sendi inn upp­lýs­ingar um nákvæm­lega 40 við­skipta, þar af sex sem voru að fjár­hæð 30 þús­und krónur hvert. Við­skipta sem námu yfir einni milljón króna voru ein­ungis 13 á tíma­bil­inu. Þannig var það mat fjár­mála­eft­ir­lits­ins að við­skipti við­kom­andi fjár­festis hafi ekki verið nægi­lega mörg né nægi­lega umtals­verð til að telj­ast fag­fjár­festir. 

Í til­viki sjö sendi fjár­festir tölvu­póst til sam­starfs­manna sinna sama dag og útboðið fór fram með ósk um að vera flokk­aður sem fag­fjár­festir. Umsóknin var sam­þykkt þremur mín­útum eftir und­ir­ritun. 

Samkvæmt við­skipta­yf­ir­liti sem fylgdi með umsókn­inni hans kom fram að við­kom­andi fjár­festir hefði átt að minnsta kosti 40 verð­bréfa­við­skipti fyrir eigin kenni­tölu á árunum 2021 og 2022. Einungis 16 þeirra við­skipta voru hins vegar yfir einni milljón króna. Átta þeirra voru með skráð hluta­bréf, fjögur með hlut­deild­ar­skír­teini í hluta­bréfa­sjóði og fjögur með hlut­deild­ar­skír­teini í lausa­fjár­safni. Fjár­mála­eft­ir­litið telur að þau við­skipti upp­fylli ekki skil­yrði laga til að telj­ast sem fag­fjár­festir. 

Auk þess hafi engar upp­lýs­ingar verið lagðar fram sem sýni að nettó­eign við­kom­andi nái 500 þús­und evrum. 

Í afstöðu fjár­mála­eft­ir­lits­ins segir að við grein­ingu gagna sem Íslands­banki lagði fram og matið byggði á voru meðal ann­ars 28 við­skipti með hlut­deild­ar­skír­teini í verð­bréfa­sjóðum að fjár­hæð 15.000 krónur. „Þá eru tvenn við­skipti mjög óvenju­leg að umfangi en um er að ræða kaup á hlut­deild­ar­skír­teinum [...] að fjár­hæð 27,8 millj­ónir króna [...] og sala á hlut­deild­ar­skír­teinum í sama sjóði. [...] Þessi tvenn við­skipti notar máls­að­ili til þess að reikna heild­ar­veltu og með­al­fjár­hæð við­skipta, til rök­stuðn­ings fyrir því hversu umfangs­mikil við­skipti starfs­manns­ins eru á við­eig­andi mark­aði svo hann geti talist fag­fjár­festir í öllum við­skiptum þ.m.t. flóknum afleiðum.“

Í átt­unda og síð­asta til­vik­inu sem greint er frá var um að ræða fjár­festi sem óskaði eftir því að vera flokk­aður sem fag­fjár­festir klukkan 21:10 á útboðs­dag­inn, og hlaut þá flokkun sex mín­útum síðar. Engar upp­lýs­ingar var að finna í umsókn­inni um fjölda við­skipta með fjár­mála­gern­inga og á fyrri stigum athug­unar eft­ir­lits­ins afhenti Íslands­banki engin gögn til stað­fest­ingar á verð­bréfa­eign eða inn­stæðum, né gögn um skulda­stöðu og virt­ist hún ekki hafa verið höfð til hlið­sjónar á mati á nettó eign við­kom­andi. 

Sam­an­dregið var það því nið­ur­staða fjár­mála­eft­ir­lits­ins að flokkun við­skipta­vina Íslands­banka hafi í átta til­fellum verið fram­kvæmd án þess að upp­fylla að minnsta kosti tvö af þremur skil­yrðum sem þarf að upp­fylla til að telj­ast fag­fjár­festir sam­kvæmt lögum. Með því var framið lög­brot. 

Hvöttu almenna fjárfesta til að breyta sér í fagfjárfesta

Enn fremur kemur fram að við yfir­ferð fjár­mála­eft­ir­lits­ins á tölvu­póstum hafi verið ljóst að starfs­menn Íslands­banka hafi „í all­mörgum til­vikum haft frum­kvæði að eða hvatt almenna fjár­festa til að óska eftir því að vera flokk­aðir sem fag­fjár­festar.“

Starfs­menn bank­ans höfðu sam­band við 21 við­skipta­vin og hvöttu þá til þess að sækja um slíka stöðu til að eiga kost á því að taka þátt í útboð­inu. 

Í skýrsl­unni segir að for­stöðu­maður hjá Íslands­banka hafi til að mynda sent tíu við­skipta­vinum tölvu­póst sem voru flestir svohljóð­andi: „Sæl/sæll [nafn for­svars­manns], Langar að benda þér á neð­an­greinda umsókn í tengslum við að félagið þitt [nafn fyr­ir­tækis] yrði flokkað sem fag­fjár­festir. Bið þig um að skoða það á morgun og hafa sam­band við [nafn starfs­manns máls­að­ila] og [nafn starfs­manns máls­að­ila] (cc-d) til að fram­kvæma það.“ Tölvu­póst­arnir voru sendir á milli kl. 21:33 og 23:53 hinn 21. mars 2022.

Afstaða fjár­mála­eft­ir­lits­ins er að Íslands­banki hafi með þessu haft frum­kvæði að því, og jafn­vel hvatt til þess, að við­skipta­vin­irnir sæktu um að fá flokkun sem fag­fjár­festir með vísan til fyr­ir­liggj­andi máls­gagna. 

„Sælir strákar, gaman að hitta ykkur í dag“

Sami for­stöðu­maður sendi tveimur öðrum við­skipta­vinum en þeim tíu sem fjallað er um hér að ofan eft­ir­far­andi tölvu­póst 22. mars kl. 00:04: „Sælir strákar, gaman að hitta ykkur í dag þó svo að ég hafi þurft að hlaupa í fyrra fall­inu. Þar sem við ræddum aðeins um Íslands­banka þá skoð­aði ég aðeins í kerfin í dag og hjó eftir að félögin ykkar [nafn fyr­ir­tækis] og [nafn fyr­ir­tækis] eru ekki sett upp til að eiga verð­bréfa­við­skipti hjá bank­anum. Hér að neðan eru allar upp­lýs­ingar til að setja félögin upp með raf­rænum hætti auk þess að sækja um að félögin verði flokkuð sem fag­fjár­festir (gerð krafa um það í sumum útboðum). Ekki hika við að hafa sam­band við [nafn starfs­manns Íslands­banka] og [nafn starfs­manns Íslands­banka] (bæði í CC) ef eitt­hvað er óljóst varð­andi upp­setn­ing­una.“ 

„Hér að neðan eru allar upp­lýs­ingar til að setja félögin upp með raf­rænum hætti auk þess að sækja um að félögin verði flokkuð sem fag­fjár­festir“

Afstaða fjár­mála­eft­ir­lits­ins er að Íslands­banki hafi með þessu haft frum­kvæði að því að félögin sæktu um að fá flokkun sem fag­fjár­festar með vísan til fyr­ir­liggj­andi máls­gagna. 

„Kanna hvort hann geti gefið eitthvað meira kjöt á beinin“

Þá sendi sami for­stöðu­maður sam­bæri­legan tölvu­póst á fjár­mála­stjóra við­skipta­vinar bank­ans. Í sam­skiptum sem áttu sér stað að morgni útboðs­dags­ins kom fram að við­kom­andi við­skipta­vinur upp­fyllti ekki skil­yrði þess að flokk­ast sem fag­fjár­festir. 

Í skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits­ins segir að for­svars­maður félags­ins hafi í kjöl­farið sent inn umsókn fyrir eigið félag og spurt hvort það myndi upp­fylla skil­yrði til þess. For­stöðu­mað­ur­inn sendi öðrum starfs­manni Íslands­banka tölvu­póst klukkan 19:16 á útboðs­degi og spurði hvort flokk­unin væri klár. Starfs­mað­ur­inn svar­aði því til að  félagið „upp­fyllti hvorki skil­yrði um eignir né fjölda við­skipta en eftir sam­skipti við [nafn for­svars­manns] þá sendum við inn umsókn fyrir [...] sem á eignir sem upp­fylla skil­yrðin en ég fæ ekki sam­þykki fyrir því heldur þar sem færslu­fjöld­inn dugar ekki nægi­lega til að upp­fylla a lið­inn og hann upp­fyllir ekki heldur starfs­reynsl­una. Ætla samt að senda á hann línu og kanna hvort hann geti gefið eitt­hvað meira kjöt á beinin varð­andi starfs­reynsl­una.“

Fjár­mála­eft­ir­litið segir að svo virð­ist sem Íslands­banki hafi haft frum­kvæði að því að við­skipta­vin­ur­inn sækti um flokkun sem fag­fjár­festir og hafi auk þess hvatt for­svars­mann félags­ins til að  leggja fram ítar­legri upp­lýs­ingar til að stuðla að því að félagið upp­fyllti skil­yrði um starfs­reynslu á fjár­mála­mark­aði. „Með hátt­sem­inni hafi máls­að­ili hvatt félagið að sækja um stöðu fag­fjár­festis með vísan til fyr­ir­liggj­andi máls­gagna.“

„Uppfæra í fagfjárfesti hið fyrsta“

 Að lokum voru starfs­menn Íslands­banka í sam­skiptum við sex við­skipta­vini dag­anna 22. til 25. mars vegna þess að þeir voru flokk­aðir sem almennir fjár­festar en þyrftu, að mati starfs­manna bank­ans, að „upp­færa í fag­fjár­festi hið fyrsta“. 

Í einu til­viki voru starfs­menn bank­ans í sam­bandi við for­svars­mann við­skipta­vinar þann 27. mars, fimm dögum eftir að útboð­inu lauk, í gegnum smá­skila­boð. Þau voru svohljóð­andi: „hæ, afsakið að ég sé að hafa sam­band svona um helgi :) málið er að [nafn fyr­ir­tækis] þyrfti að klára að fá upp­færslu í fag­fjár­festi fyrir upp­gjör á morgun. Við getum ekki klárað upp­gjörið nema það ger­ist, því miður. Ég sendi póst á föstu­dag með umsókn­inni. Væri ofsa gott að klára sem fyrst :)“

Í sím­tali starfs­manns Íslands­banka við sam­starfs­mann sinn sem sá um afgreiðslu umsókna um breytta flokkun við­skipta­vina, og sagt er frá í skýrsl­unni, sjást dæmi um hvernig staðið var að þeirri breyttu flokkun. 

„ Starfs­mað­ur­inn sem sá um umsókn­irnar seg­ist þá ætla að googla for­svars­mann­inn“

„Símtalið hófst kl. 16:07:01 hinn 22. mars 2022 og því lauk kl. 16:10:58. Banka­sýsla rík­is­ins birti til­kynn­ingu í frétta­kerfi kaup­hall­ar­innar kl. 16:11:58 um að útboð væri hafið. Í sam­skiptum starfs­mann­anna kemur í ljós að við­skipta­vinur sem bjóða átti þátt­töku í útboð­inu var ekki flokk­aður sem fag­fjár­festir og hafði ekki sótt um slíka flokkun. Starfs­mað­ur­inn sem sá um afgreiðslu umsókna um breytta flokkun seg­ist hafa skoðað árs­reikn­ing félags­ins og það upp­fylli ekki skil­yrði þess að flokk­ast á grund­velli stærðar og því þurfi við­skipta­vin­ur­inn að sækja um að fá flokkun sem fag­fjár­festir. Starfs­mað­ur­inn, sem var tengiliður við­skipta­vin­ar­ins, sagð­ist þá ætla að hringja í for­svars­mann félags­ins og upp­lýsa hann um að verið væri að senda honum eyðu­blað til að sækja um flokkun sem fag­fjár­festir, hann þurfi að fylla það út og senda skjá­skot af inn­stæðu­reikn­ingum hjá við­skipta­banka félags­ins. Starfs­mað­ur­inn sem sá um umsókn­irnar seg­ist þá ætla að googla for­svars­mann­inn og senda upp­lýs­ingar sem er að finna á vefnum um hann til Lög­fræði­deildar.“

Fjár­mála­eft­ir­litið telur að Íslands­banki hafi brotið gegn lögum með því að hafa ýmist frum­kvæði eða hvatt til þess að alls 21 við­skipta­vinur óskaði eftir stöðu fag­fjár­festis í tengslum við útboðið og afsal­aði sér með því rétt­ar­vernd sem tryggð er almennum fag­fjár­festum. „Verð­bréfa­fyr­ir­tæki eigi að forð­ast í lengstu lög að hvetja til, þrýsta á eða hafa frum­kvæði að því að við­skipta­vinur afsali sér rétt­ar­vernd. “

Kjósa
55
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Ætli þessi menningarheimur einskorðist við Íslandsbanka? Væri fróðlegt ef einhver væri í færum til að kanna það.
    2
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Ja herna þetta er otrulegt en virðist vera satt.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár