Ásmundur hættur hjá Íslandsbanka

Ásmundur Tryggva­son hefur sagt upp störfum hjá Íslands­banka. Hann var einn þeirra starfs­manna bank­ans sem keyptu í lok­uðu útboði á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka.

Ásmundur hættur hjá Íslandsbanka
Farinn Ásmundur var einn af þeim starfs­mönnum sem keyptu í útboði Íslands­banka á sjálfum sér. Mynd: Íslandsbanki

Ásmundur Tryggva­son hefur látið af störfum sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­festa hjá Íslands­banka. Í hans stað hefur verið ráðin Kristín Hrönn Guð­munds­dóttir. Í til­kynn­ingu frá Íslands­banka segir að Ásmundur hafi sjálfur ákveðið að hætta, eða stíga til hliðar, eins og það er orðað í til­kynn­ing­unni. 

Ásmundur var einn þeirra starfs­manna Íslands­banka sem keyptu hluti fyrir 11,2 millj­ónir króna í bank­anum í lok­uðu útboði á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins á síð­asta ári. Í skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands um sátt sem Íslands­banki gerði, þar sem stjórn­endur bank­ans geng­ust við lög­brotum við útboðið, kom fram að Ásmundur hefði haft sam­band við reglu­vörð bank­ans með það fyrir augum að liðka fyrir kaupum starfs­manna í útboð­inu. 

Með upp­sögn sinni fylgir Ásmundur í fót­spor Birnu Ein­ars­dóttur sem lét af störfum sem banka­stjóri Íslands­banka í kjöl­far þess að sátt …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Eini tilgangur regluvarðar er að tryggja að reglunum sé framfylgt.

    I þessu tilfelli líkt og flestum öðrum var regluvarslan bara sýndarmennska... eða byggð á heimsku.

    Þurfum að taka gagnrýnið tal við regluverði eða fella þessa sýndarstarfsgrein niður líkt og sýndarframkvæmdir gegn spillingu og peningarþvætti.

    Sektin er eins og áður hefur verið sagt ... bara djók... því hún hefur öngva vikt á bankann sem veltir þessu strax áfram og öngvar kvaðir eru um tímabundið eftirlit um að "nýjir" aðilar fari eftir reglunum.

    Sama gamla 2000 og 2008 lagið.
    0
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    Hef enga skoðun á stjórnmálum er líka orðin of gömul til þess að pæla í þeim hlutum í dag
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Ásmundur Tryggvason er eiginmaður framkvæmdarstjóra Vinstri-grænna, hvað sem öllu líður þá er þetta góð ákvörðun hjá Ásmundi að hirða pokann sinn.
    1
    • ÁH
      Ásmundur Harðarson skrifaði
      Björg Eva Erlendsdóttir er framkvæmdastjóri Vinstri grænna. Eiginkona Ásmundar er hins vegar framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár